Forseti Íslands kominn í sóttkví

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands þarf að vera í sótt­kví fram til mánu­dags­ins 9. nóv­em­ber vegna kór­ónu­veirusmits sem greinst hefur hjá starfs­manni á Bessa­stöðum.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands er kominn í sóttkví.
Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands er kom­inn í sótt­kví. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son for­seti Íslands þarf að vera í sótt­kví fram yfir næstu helgi, til mánu­dags­ins 9. nóv­em­ber, vegna kór­ónu­veirusmits sem greinst hefur hjá starfs­manni á Bessa­stöðum. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá for­seta­emb­ætt­inu í kvöld.

Þar segir að starfs­mað­ur­inn sem smit­ast hefur af veirunni sé nær ein­kenna­laus og að for­set­inn hafi engin ein­kenni COVID-19. Tekið er fram í til­kynn­ingu emb­ætt­is­ins að Eliza Reid for­seta­frú og börn þeirra hjóna þurfi ekki að vera í sótt­kví.

Yfir 2.000 manns í sóttkví

Forseti Ísland bæt­ist þar með í hóp þeirra rúm­lega tvö­þús­und Íslend­inga sem nú eru í sótt­kví eftir að hafa orðið útsett fyrir mögu­legu kór­ónu­veirusmiti. Til við­bótar eru alls 859 manns nú í ein­angrun á land­inu öllu með virkt smit COVID-19, sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vefnum covid.is.

Sjötíu og fjórir ein­stak­lingar eru nú inn­lagðir á sjúkra­hús vegna sjúk­dóms­ins og hafa þeir aldrei verið fleiri en um þessar mundir. Fjórir eru á gjör­gæslu­deild, en alls hafa 17 manns lát­ist eftir að hafa smit­ast af COVID-19 síðan að kór­ónu­veiran lét fyrst á sér kræla hér á landi í lok februar.

Þar af hafa sjö lát­ist und­an­farnar vikur, í svo­kall­aðri þriðju bylgju far­ald­urs­ins, sem nú geisar og hefur leitt til þess að stjórn­völd hafa gripið til ströng­ustu sam­komu­tak­mark­ana í lýð­veld­is­sög­unni, með það að mark­miði að hægt sé að hægja á vexti far­ald­urs­ins eins og hægt er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár