Leggja fram frumvarp um sanngirnisbætur í kjölfar sýknudóms í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu

For­sæt­is­ráð­herra lagði fram í rík­is­stjórn í morgun frum­varp til laga um sann­girn­is­bætur í kjöl­far sýknu­dóms Hæsta­réttar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra og formaður VG.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra og for­maður VG. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra lagði fram í rík­is­stjórn í morgun frum­varp til laga um sann­girn­is­bætur í kjöl­far sýknu­dóms Hæsta­réttar í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. Var sam­þykkt að frum­varpið verði lagt fram á Alþingi. Þetta kemur fram í frétt for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í dag.

Samkvæmt ráðu­neyt­inu kveður frum­varpið á um heim­ild ráð­herra til að greiða sann­girn­is­bætur til þeirra sem sýkn­aðir voru með dómi Hæsta­réttar þann 27. sept­em­ber árið 2018.

„Bætur verði einnig greiddar til aðstand­enda þeirra sýkn­uðu sem fallnir eru frá. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins er rakin for­saga máls­ins og hvar sátta­við­ræður hafa verið á vegi staddar til þessa dags,“ segir í frétt ráðu­neyt­is­ins.

[links]Allir sak­born­ingar í Guð­mund­ar- og Geir­finns­mál­inu svo­kall­aða voru sýkn­aðir af öllum ákæru­lið­um en dómur í mál­inu var kveð­inn upp eins og áður segir þann 27. sept­em­ber í fyrra.

Fyr­ir­fram var búist við sýknu­dómi, enda krafð­ist ákæru­valdið sýknu í sínum mál­flutn­ingi. Erfitt var að sjá hvernig rétt­ur­inn hefði getað sak­fellt í mál­inu þar sem eng­inn gerði kröfu um sak­fell­ingu. Mönnum greindi helst á í því hversu langt Hæsti­réttur myndi ganga í að lýsa yfir sak­leysi ákærðu í dóms­nið­ur­stöðu sinni.

End­ur­upp­töku­nefnd féllst í febr­úar árið 2017 á að dómur Hæsta­réttar í mál­inu sem felldur var árið 1980 skyldi tek­inn upp hvað varð­aði fimm sak­born­inga af sex. End­ur­upp­töku­beiðni Erlu Bolla­dóttur var hins vegar hafn­að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár