Kóreska vandamálið: Hvað er til ráða?

Síðasti hluti þrí­skiptrar umfjöll­unar um ógn­ina á Kóreu­skaga. Norður-Kórea verður eld­fimara vanda­mál með hverri hern­að­ar­til­raun­inni sem Kim Jong-un gerir.

Norður-Kórea er kjarnorkuríki og það þarf að meðhöndla það sem slíkt. Kostir alþjóðasamfélagsins eru fáir, og allir slæmir, þegar kemur að þessu vandamáli.
Norður-Kórea er kjarn­orku­ríki og það þarf að með­höndla það sem slíkt. Kostir alþjóða­sam­fé­lags­ins eru fáir, og allir slæmir, þegar kemur að þessu vanda­máli.

Banda­ríkin hafa greint fjórar færar leiðir þegar kemur að við­brögðum við kjarn­orkuógn frá Norður-Kóreu. Allar þessar leiðir eru slæmar og hafa í för með sér miður góða fylgi­fiska eða nið­ur­stöður.

[links]Á und­an­­förnum árum hefur norð­­ur­kóreski her­inn gert til­­raunir með kjarn­orku­vopn og hefur tek­ist svo vel til að nú er talið að Norð­­ur­-Kórea búi yfir lang­­drægum skot­flaugum sem geta borið kjarna­odda alla leið yfir Kyrra­hafið og til Banda­­ríkj­anna. Til­­raunin sem gerð var 4. júlí síð­­ast­lið­inn, á þjóð­há­­tíð­­ar­degi Banda­­ríkj­anna, sann­­færði umheim­inn end­an­­lega um þetta.

Valda­­jafn­­vægið í heim­inum vó salt um leið.

Í þrí­­­skiptri umfjöllun Kjarn­ans um Norð­­ur­-Kóreu er hér reynt að svara eft­ir­far­andi spurn­ing­um: Hvað er til ráða? Hvað hefur verið reynt? Og hvers vegna er ástandið svona?

Á sunnu­dag var fjallað um hvernig Norð­ur­-Kórea og vanda­málið varð til. Í gær, mánu­dag, var fjallað um hvaða leiðir hafa verið farnar til þess að bregð­ast við kjarn­orkuógn­inni á síð­ustu ára­tugum.

Í þessum síð­asta hluta sér­stakrar umfjöll­unar Kjarnans um kjarn­orkuógn Norður-Kóreu er fjallað um þá kosti sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur gagn­vart Norður-Kóreu.

[adspot]

Allir valkostir eru slæmir

Nú þegar Norður-Kórea er víg­búið lang­drægum eld­flaugum og kjarn­orku­vopnum hefur kóreska vanda­málið orðið enn flókn­ara.

Eftir að norð­an­menn gerðu til­raun með lang­dræga skot­flaug 4. júlí síð­ast­lið­inn hefur alþjóða­sam­fé­lagið brugð­ist við með því að herða við­skipta­þving­anir á hið fátæka og ein­angr­aða ríki Norður-Kóreu.

Kín­verjar stóðu einir eftir sem banda­manna Norður-Kóreu eftir að Sov­ét­ríkin féllu í lok síð­ustu aldar. Nú hafa Kín­verjar einnig snúið bak­inu við Norður-Kóreu, að því er virð­ist, því rík­is­rekna olíu­fé­lagið er hætt að selja olíu yfir landa­mærin.

Mest af elds­neyt­inu sem brennt er í Norður-Kóreu kemur frá Kína en einnig kemur eitt­hvað frá Rúss­landi.

Rússar og Kín­verjar hafa tekið höndum saman þegar kemur að sam­skiptum við Norður-Kóreu. Þannig ætla ríkin að tryggja öryggi sitt, enda eiga bæði lönd landa­mæri að Norður-Kóreu.

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, á við erfitt verk­efni að etja. Hann er á margan hátt ein­angr­aður sem leið­togi á alþjóða­vett­vangi, eftir að hafa dregið Banda­ríkin úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu um lofts­lags­mál og sagst vilja end­ur­skoða við­skipta­samn­inga við ríki heims­ins.

Trump hefur einnig sagst vera þeirrar skoð­unar að Banda­ríkin eigi að loka her­stöðvum sínum í Suður-Kóreu og í Japan, sem mundi gera þennan heims­hluta mun veik­ari fyrir árás Norður-Kóreu en hann er nú.

Þetta hjálpar ekki þegar Trump þarf að taka ákvarð­anir í sam­ein­ingu með banda­lags­þjóðum gagn­vart Norður-Kóreu, þe. Kína, Japan, Suður-Kóreu og Rúss­landi, og afla stuðn­ings meðal Evr­ópu­þjóða.

Hers­höfð­ingjar í banda­ríska hernum hafa tekið saman fjórar mögu­legar aðferðir til þess að takast á við Norður-Kóreu. Fjallað er um þessar aðferðir í veftíma­rit­inu The Atlantic. Nú er það í höndum Donalds Trump að velja.

Aðferð­irnar eru eft­ir­far­andi:

Allsherjarárás

Banda­ríkin gera alls­herj­ar­árás og leggja vopna­búr Norður-Kóreu í rúst, fella stjórn Kim Jong-un og gera her lands­ins óstarf­hæfan. Þetta mundi hafa það í för með sér að Kóreu­stríð­inu myndi ljúka fyrir fullt og allt, og Kim-ættin myndi engu ráða lengur.

[quote]Þungt fyrsta högg banda­manna undir for­ystu Banda­ríkj­anna mundi valda dauða margra óbreyttra borg­ara. Kjarn­orku­árás Norður-Kóreu mundi á hinn bóg­inn hugs­an­lega hafa verri afleið­ingar.[/quote]Þessi leið mun eflaust hljóma vel í eyrum stuðn­ings­manna Trump. Vandinn er hins vegar að svo þetta geti gerst þurfa Banda­ríkin standa í stærri og meiri hern­aði en í fyrsta Kóreu­stríð­inu – og um leið kosta gríð­ar­lega mikið af pen­ingum.

Þungt fyrsta högg banda­manna undir for­ystu Banda­ríkj­anna mundi valda dauða margra óbreyttra borg­ara. Kjarn­orku­árás Norður-Kóreu mundi á hinn bóg­inn hugs­an­lega hafa verri afleið­ingar.

Eftir að stríð­inu lýkur og Kim-ætt­inni hefur verið hrundið frá völdum taka við önnur vanda­mál, sem munu verða lang­vinn­ari og erf­ið­ari við að etja; Sam­ein­ing kóresku þjóð­ar­innar mun verða gríð­ar­lega erfitt sam­fé­lags­legt vanda­mál. Á þeim rúm­lega árum sem liðin eru síðan Kóreu­skag­anum var skipt upp hefur Suður-Kórea orðið efna­hags­legt stór­veldi í þessum heims­hluta, á meðan frænd­fólkið í norðri lepur dauð­ann úr skel.

Jafnvel þó þetta sé í grunn­inn sama þjóðin hefur skipt­ingin eflaust haft djúp­stæð áhrif. Þetta er sá veru­leiki sem mun blasa við þeim öflum sem sigra í nýju Kóreu­stríði.

Tökin hert

Trump gæti fyr­ir­skipað hefð­bundna hern­að­ar­árás, eða margar slíkar árásir yfir lengra tíma­bil, þar sem vopnum úr lofti og af sjó yrði beitt. Þessar árásir ættu að hafa það að mark­miði að valda Norður-Kóreu nægi­lega miklum skaða svo Kim geti ekki beitt mætti hers síns og þjóðar.

Mark­miðið væri að leyfa Kim Jong-un að stjórna en þvinga hann til þess að hætta kjarna­vopna­þróun í Norður-Kóreu.

Þessi leið er flókin enda þyrftu árás­irnar að vera þess eðlis að Kim gæti ekki, eða mundi ekki vilja, svara með árás á nágranna sína í suðri eða með kjarn­orku­árás á Banda­ríkin.

Í því liggur helsti galli þess­arar leiðar; að hún má ekki valda ofboði meðal stjórn­valda í Pjongj­ang, en hún má heldur ekki valda því að hers­höfð­ingjar Kim Jong-un telji banda­menn of raga til þess að gera árás. Ef þetta er ekki fram­kvæmt rétt gæti versta sviðs­myndin blasað við; Norður-Kórea gerir árás á Seúl og leggur höf­uð­borg Suður-Kóreu í rúst.

Norður-Kórea hefur ítrekað hótað því að leggja Seúl í rúst. Þar búa rúm­lega tíu millj­ónir manna. Sér­fræð­ingar eru ósa­mála um hversu mikil alvara býr að baki þess­ara hót­ana úr norðri, enda er það allt annað að ráð­ast á þétt­býla íbúa­byggð en að ráð­ast á hern­að­ar­virki.

Annar galli þess­arar aðferðar er að nær ómögu­legt verður að stöðva það sem kemur í fram­hald­inu. Átökin munu eflaust stig­magn­ast og verða að nýju Kóreu­stríði á end­anum. Lítið þarf út af að bregða svo það ger­ist.

Leiðtogaskipti

Banda­menn gætu einnig tekið ákvörðun um að afhöfða stjórn­ina í Pjongj­ang með því að taka Kim Jong-un og hers­höfð­ingja hans úr umferð.

Það eru vís­bend­ingar um að þetta hafi þegar verið reynt. Í mars tóku bæði banda­rískir og suð­ur­kóreskir her­menn þátt í æfingum sem sner­ist um eitt­hvað í þessa átt­ina. Dagblað í Suður-Kóreu sagði meira að segja fréttir af því að sér­sveit sjó­hers Banda­ríkj­anna (Navy SEAL) hafi æft fyrir þetta. Svo var það í maí að stjórn­völd í Pjongj­ang stærðu sig af því að hafa komið í veg fyrir morðið á leið­toga sínum.

Það gæti þess vegna verið að Trump hafi þegar valið þessa leið fram yfir hinar sem eru taldar hér upp. Bæði leyni­þjón­usta Banda­ríkj­anna og Suður-Kóreu þver­taka fyrir að hafa lagt á ráðin um slíka árás.

Banda­rískum hers­höfð­ingjum og leyni­þjón­ustu­full­trúum er raunar bannað að taka erlenda leið­toga „úr umferð“, ef svo má að orði kom­ast. Þeim skip­unum getur Donald Trump, eða hver sem ræður Hvíta hús­inu, breytt.

Leið­toga­skipti í Norður-Kóreu leysa hins vegar ekki vanda­málið sem steðjar að: Kjarn­orkuvá. Nýr leið­togi gæti tekið við völdum og verið mun hall­ari undir hug­myndir um að nota kjarn­orku­vopnin sem búið er að smíða.

Morðið á Kim Jong-un gæti einnig orðið til þess að hreyfa við her­for­ingjum sem myndu svara með hern­að­ar­árás á nágranna sína í suðri.

Afhöfðun Norður-Kóreu fylgir þess vegna mikil áhætta og það er óskyn­sam­legt að taka áhættu þegar kjarn­orku­vopn eru í spil­inu. Búa verður um hnút­ana þannig að ljóst er hvað taki við eftir Kim.

Viðurkenning

Það virð­ist eng­inn hern­að­ar­á­ætlun í tengslum við Norður-Kóreu vera fær. Svo það kann að vera besti kost­ur­inn að við­ur­kenna að Norður-Kórea sé kjarn­orku­ríki.

Ef Norður-Kórea myndi nota kjarn­orku­vopn sín, mundi það þýða að önnur ríki myndu bregð­ast snögg­lega við og gjörsigra Norður-Kóreu á skömmum tíma. Svarið yrði öfl­ugt og algert.

Valda­jafn­vægið í heim­inum var tví­pólað fram eftir 20. öld­inni. Börnum var kennd við­brögð við kjarn­orku­árás og hættan virt­ist yfir­vof­andi á tíma­bili. Til beinna átaka kom aldrei milli Banda­ríkj­anna og Sov­ét­ríkj­anna. Kjarn­orku­valdið var hins vegar gagn­kvæmt, ef eitt ríki mundi ráð­ast til atlögu myndi hitt ríkið tryggja tor­tím­ingu hins á móti.

Eftir að Sov­ét­ríkin féllu hefur valda­jafn­vægið í heim­inum snú­ist um Banda­ríkin sem, í krafti öfl­ug­asta kjarn­orku­vopna­búrs í heimi, gæti tor­tímt hvaða ríki sem er, og ver­öld­inni allri mörgum sinnum.

Í til­felli Norður-Kóreu er kjarn­orku­valdið ekki gagn­kvæmt, en ef Kim Jong-un mundi voga sér að beita kjarna­vopnum yrði ríki hans tor­tímt.

Vandinn leystur eftir friðsælum leiðum

Kóreska vanda­málið verður ekki leyst nema með frið­sam­legum leiðum. Þeir hern­að­ar­kostir sem í boði eru munu kosta of mörg manns­líf og valda of miklum óstöð­ug­leika í heim­inum til þess að hægt sé að leggja í þann leið­angur.

Kim Jong-un getur beitt kjarna­vopnum sínum á frið­saman hátt og notað þau sem skipti­mynt fyrir þá efna­hags­legu aðstoð sem afi hans fékk í áskrift frá Sov­ét­ríkj­unum á seinni hluta 20. ald­ar­innar. Faðir leið­tog­ans unga tók við erf­iðu búi og tókst ekki að leysa vanda þjóð­ar­innar. En hann arf­leiddi son sinn af öfl­ugri spila­mynt: Kjarn­orku­vopnum.

Það er til mik­ils að vinna í Norður-Kóreu og staðan geysi­lega flókin. Það mun taka mörg ár og ára­tugi að tempra hætt­una frá Norður-Kóreu.


Í þrí­skiptri umfjöllun um kjarn­orkuvá Norður-Kóreu hefur verið útskýrt hvers vegna Alþýðu­lýð­veldið Norður-Kórea hat­ast út í alþjóða­sam­fé­lagið, hvers vegna ríkið er ein­angrað og rakið hvernig ríki heims hafa brugð­ist við. Í þess­ari síð­ustu grein var svo fjallað um þá mögu­leika sem í boði eru. Allir eiga það sam­eig­in­legt að vera slæmir kostir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hernaður

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár