Kóreska vandamálið: Allt hefur mistekist

Annar hluti þrí­skiptrar umfjöll­unar um ógn­ina á Kóreu­skaga. Norður-Kórea verður eld­fimara vanda­mál með hverri hern­að­ar­til­raun­inni sem Kim Jong-un gerir. Allar aðgerðir sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur ráð­ist í til að hefta Norður-Kóreu hafa mis­tek­ist.

Kim Jong-un stýrir nú kjarnorkuveldi.
Kim Jong-un stýrir nú kjarn­orku­veldi. Mynd: EPA

Við­brögðin við kjarn­orku­vopna­væð­ingu Norður-Kóreu hafa öll verið mis­heppnuð síð­ustu tvo ára­tug­ina. „Við erum að sjá afleið­ing­arnar af því núna,“ segir Sheena Greitens, sér­fræð­ingur í mál­efnum Norður-Kóreu við Missouri-háskóla í Banda­ríkj­unum.

[links]Á und­an­förnum árum hefur norð­ur­kóreski her­inn gert til­raunir með kjarn­orku­vopn og hefur tek­ist svo vel til að nú er talið að Norð­ur­-Kórea búi yfir lang­drægum skot­flaugum sem geta borið kjarna­odda alla leið yfir Kyrra­hafið og til Banda­ríkj­anna. Til­raunin sem gerð var 4. júlí síð­ast­lið­inn, á þjóð­há­tíð­ar­degi Banda­ríkj­anna, sann­færði umheim­inn end­an­lega um þetta.

Valda­jafn­vægið í heim­inum vó salt um leið.

Í þrí­skiptri umfjöllun Kjarn­ans um Norð­ur­-Kóreu verður reynt að svara eft­ir­far­andi spurn­ing­um: Hvað er til ráða? Hvað hefur verið reynt? Og hvers vegna er ástandið svona? Í gær var fjallað um hvernig Norður-Kórea og vanda­málið varð til.

[adspot]

Í neyð

Eftir að Sov­ét­ríkin féllu í upp­hafi tíunda ára­tugs síð­ustu aldar varð Norður-Kórea ein­angrað á alþjóða­vett­vangi. Þeirra helsti bak­hjarl í Moskvu var flú­inn úr Kreml og póli­tískt kaos þýddi að efna­hags­leg aðstoð mundi ekki koma aftur í nán­ustu fram­tíð.

Eini vin­veitti nágranni Norður-Kóreu sem eftir stóð var Kína. Það er enn þann dag í dag stærsta við­skipta­land hins ein­angr­aða ríkis. Kína hefur hins vegar sagst vera ósátt við kjarn­orku­til­raunir Norður-Kóreu.

Eins og rakið var í fyrsta hluta þess­ara umfjöll­unar um norð­ur­kóresku kjarn­orku­vána var það ekki fyrr en árið 2006 sem Norður-Kórea gerði fyrstu til­raunir sínar með kjarn­orku­vopn. Þá voru tólf ár liðin síðan að Kim il-Sung, fyrsti leið­togi rík­is­ins, hafði lát­ist og sonur hans Kim Jong-il hafði tekið við skelfi­legu búi.

Örbirgð þjóð­ar­innar var mikil, jafn­vel þó fyr­ir­menni í Pjongj­ang hefðu það ágætt. Hung­ursneyð þjóð­ar­innar stóð í fjögur ár og hefur það tíma­bil verið kallað „Þrauta­gangan“. Í reynd staf­aði hung­ursneyðin af mörgum þáttum, títt­nefnd aðstoð Sov­ét­ríkj­anna barst ekki lengur sem varð til þess að fæðu­fram­leiðsla og -inn­flutn­ingur minnk­aði hratt. Nátt­úru­ham­farir á borð við flóð og þurrka gerðu neyð­ina enn meiri.

Miðstýrt stjórn­kerfi Norður-Kóreu gerði stjórn­völdum það svo erf­ið­ara um vik að binda endi á neyð þjóð­ar­innar. Óvíst er hversu margir lét­ust vegna hung­urs eða kvilla tengdum ham­för­unum. Talið er að allt að 3,5 milljón manns hafi farist, flestir árið 1997. Til sam­an­burðar þá er talið að íbúar Norður-Kóreu hafi verið um það bil 22 millj­ónir.

Á sama tíma og hung­ursneyð reið yfir Norður-Kóreu var Kim Jong-il að taka við stjórn­ar­taumunum í rík­inu. Faðir hans hafði verið dáður leið­togi og skildi eftir sig risa stórt skarð í stjórn­kerf­inu sem þurfti að fylla. Til þess að treysta völd sín á fyrstu árum sínum sem leið­togi ákvað Jong-il – sem fyllti ekki alveg út í rammann sem faðir hans hafði mótað – að færa her­inn ofar í stjórn­skip­an­inni.

Magn mataraðstoðar til Norður-Kóreu

Tölurnar eru í þúsundum tonna

Songun-stefnan var inn­leidd í land­inu í lok tíunda ára­tugs síð­ustu aldar. Þannig náði Kim Jong-il að fylla í skarð hins dáða leið­toga föður síns. Herinn hafði nú mun meiri völd en áður og fór með fram­kvæmd inn­an­rík­is­mála og alþjóða­sam­skipta. Um leið fékk her­inn for­gang að öllum efna­hags­mætti og auð­lindum þjóð­ar­innar hvort sem þær eru efn­is­legar eða félags­legar.

Við­skipta­þving­anir alþjóða­sam­fé­lags­ins hamla allri efna­hags­þróun í Norður-Kóreu. Það sést glöggt ef skoðuð er gervi­tungla­mynd af jörð­inni, sveipuð nátt­myrkri. Ljós frá mann­virkjum lýsa upp þétt­býl­ustu svæði ver­aldar, nema í Norður-Kóreu þar sem myrkrið umlykur að því er virð­ist allt.

Sex ríkja viðræður

Í kjöl­far þess að her­inn var færður ofar í valda­skip­an­ina í Norður-Kóreu hefur kjarn­orku­á­ætlun lands­ins farið hratt fram. Yfirvöld í Pjongj­ang líta á kjarn­orku­á­ætl­un­ina sem öfl­ugt verk­færi í samn­inga­við­ræðum á alþjóða­vett­vangi og hafa litið svo á að með áfram­hald­andi þróun öfl­ugra vopna sem heim­ur­inn er and­vígur megi knýja á um betri kjör lands­ins. Það þarf svo ekki að vera enda­punktur þess­arar stefnu að eiga til­búin vopn, þvert á móti getur það eflt samn­ing­stöð­una enn frekar.

Talið er að kjarn­orku­vopna­á­ætlun Norður-Kóreu hafi haf­ist á fyrri hluta tíunda ára­tug­ar­ins. Ríkið er ekki hluti af samn­ingum alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­un­ar­innar og hefur ekki inn­leitt reglur samn­ings­ins um kjarna­vopn. Þvert á móti hefur Norður-Kórea í tvígang sagt sig frá sam­þykkt­unum.

Nokkur óvissa ríkti um stöðu kjarn­orku­vopna­á­ætl­unar Norður-Kóreu þar til vís­bend­ingar bár­ust um að vís­inda­menn úr Norður-Kóreu hafi aflað sér kjarn­orku­þekk­ingar í Pakistan og Líbýu árið 2002. Yfirvöld í Norður-Kóreu við­ur­kenndu svo að þau réðu yfir kjarna­vopnum árið 2005.

Alþjóða­sam­fé­lagið hefur beitt Norður-Kóreu við­skipta­þving­unum vegna hinna ýmsu mála, en þar ber kjarn­orku­á­ætl­unin auð­vitað hæst.

Vegna þess að Norður-Kórea dró sig úr samn­ingum um að ríki heims myndu ekki fram­leiða fleiri kjarna­vopn árið 2003 hófust svo­kall­aðar sex ríkja við­ræður um stöðu Norður-Kóreu og kjarn­orku­á­ætl­un­ina. Þar komu saman, auk Norður-Kóreu, Suður-Kórea, Japan, Kína, Rússland og Banda­ríkin.

Þessi sex ríki fund­uðu í fimm lotum með litlum árangri á árunum 2003 til 2007. Fimmta lotan árið 2007 reynd­ist skila mestum árangri en þar sam­þykkti Norður-Kórea að hætta þróun kjarn­orku­vopna gegn því að alþjóða­sam­fé­lagið veitti þeim elds­neyt­is­að­stoð og að Banda­ríkin og Japan myndu beita sér fyrir upp­byggi­legum sam­skiptum við Norður-Kóreu.

Norður-Kórea rifti þessum sex ríkja við­ræðum og öllum sam­þykktum þess í apríl árið 2009 eftir að hafa gert mis­heppn­aða til­raun með eld­flaug. Eld­flaugin var, að sögn yfir­valda í Pjongj­ang, ætluð til þess að koma gervi­hnetti á braut um jörðu en Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna taldi víst að hér væri verið að gera til­raunir með lang­drægar eld­flaugar. Harðorð yfir­lýs­ing örygg­is­ráðs­ins varð til þess að reita Norður-Kóreu­menn til reiði og hefja kjarn­orku­á­ætlun sína á nýjan leik. Um leið var öllum eft­ir­lits­mönnum Alþjóða­kjarn­orku­mála­stofn­un­ar­innar kastað út úr Norður-Kóreu.

Allt mistekst

Sé litið á við­brögð alþjóða­sam­fé­lags­ins með gler­augum Banda­ríkja­manna er stefnu­mót­un­inni oftar en ekki skipt í tíma­bil eftir því hver gegndi emb­ætti for­seta Banda­ríkj­anna.

Síðan Sov­ét­ríkin féllu hafa þrír menn gengt emb­ætti for­seta í Banda­ríkj­unum í meira en eitt kjör­tíma­bil; Þeir Bill Clinton, George W. Bush og Barack Obama. Allir nálg­uð­ust vanda­málið á Kóreu­skaga með mis­mun­andi hætti.

Bill Clinton ákvað að fara hina diplómat­ísku leið og senda neyð­ar­að­stoð til Norður-Kóreu, fullur vonar um að greið­inn yrði laun­aður síðar og að hægt væri að eiga eðli­leg milli­ríkja­sam­skipti við Norður-Kóreu í kjöl­far falls komm­ún­ísku blokk­ar­innar.

George W. Bush hélt þess­ari stefnu þar til hann ákvað að fara í stríð við hryðju­verka­menn. Norður-Kórea var þá stimplað sem ríki sem studdi hryðju­verka­menn og fljót­lega hvarf nær öll neyð­ar­að­stoð frá Banda­ríkj­unum og við­skipta­þving­anir voru hertar. Fyrsta kjarn­orku­til­raunin var gerð á meðan Bush var for­seti í Banda­ríkj­unum og sex ríkja við­ræð­urnar voru allar haldnar í tíð hans. Aðferðir hans um að hafa bein afskipti af nýju kjarn­orku­ríki höfðu þess vegna mis­jafnar afleið­ingar.

Barack Obama tók við emb­ætti for­seta í jan­úar 2009. Aðeins þremur mán­uðum seinna gerðu Norður-Kóreu­menn til­raun með lang­drægu eld­flaug­ina og sá árangur sem náðst hafði í sex ríkja við­ræð­unum hvarf á skot­stundu.

Í stað þess að grípa til sér­tækra ráða ákvað Obama að halda við­skipta­þving­unum til streitu og aðhaf­ast ekk­ert frekar, von­góður um að vanda­málið mundi leys­ast af sjálfu sér með hruni stjórn­ar­innar í Norður-Kóreu. Stjórn Obama hefur eflaust haft veður af slæmri heilsu Kim Jong-il og talið lík­legt að valda­bar­átta eftir yfir­vof­andi frá­fall hans ætti eftir að verða alræð­is­stjórn­inni í Pjongj­ang að falli.

Kim Jong-un

Kim Jong-il lést árið 2011 og lítið þekktur sonur hans Kim Jong-un tók við valda­taumunum. Jong-un hafði gengið í skóla í Sviss og bundnar voru vonir við að hann yrði mild­ari leið­togi en faðir hans.

Þær vonir urðu svo að engu þegar fregnir bár­ust af því að Kim Jong-un hefði fyr­ir­skipað aftöku frænda síns Jang Song-thaek sem átti að hafa framið föð­ur­lands­svik. Í febr­úar árið 2017, eftir að Jong-un hafði tryggt völd sín, er því haldið fram að hinn ungi leið­togi hafi fyr­ir­skipað morðið á bróður sínum, Kim Jong-nam, á flug­velli í Malasíu.

Þessi þriðji leið­togi Norður-Kóreu hefur hraðað kjarn­orku­vopna­þróun rík­is­ins. Í stuttri valda­tíð hans hefur meira en helm­ingur flug­skeyta­til­rauna og kjarn­orku­til­rauna Norður-Kóreu farið fram. Nú er svo komið að flug­skeytin eru talin geta náð ströndum Banda­ríkj­anna, handan Kyrra­hafs­ins.

Erkió­vin­ur­inn er kom­inn í skot­færi.


Á morgun verður fjallað um þá stöðu sem nú er komin upp og þau úrræði sem alþjóða­sam­fé­lagið hefur til þess að stemma stigu við ógn­inni frá Norður-Kóreu. Nú þegar hefur verið fjallað um stofnun Norður-Kóreu og upp­runa hat­urs norð­an­manna á alþjóða­sam­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár