Gylfi Zoega: Þörf á nýju hagstjórnartæki

„Ef sú hag­stæða efna­hags­þróun sem hér hefur verið lýst á að við­hald­ast eftir að fjár­magns­höftum hefur verið aflétt þá er nauð­syn­legt að tekið sé upp nýtt hag­stjórn­ar­tæki sem minnkar virkan vaxta­mun á milli Íslands og helstu við­skipta­landa. Ef þetta er ekki gert má búast við að fjár­festar reyni að hagn­ast á vaxta­mun með því að kaupa krónur og fjár­festa í inn­lendum skulda­bréfum. Gengi krón­unnar mun þá styrkj­ast og afkoma ferða­þjón­ustu versna.“

Þetta kemur fram í grein Gylfa Zoega, hag­fræði­pró­fess­ors, í Vís­bend­ingu. Í grein­inni, sem ber heitið Hug­leið­ingar um verð­bólgu og efna­hags­þróun, fer hann vítt og breytt yfir stöðu efna­hags­mála, og talar ekki síst um stöðu ferða­þjón­ust­unnar, og hvað geti gerst ef gengi krón­unnar styrk­ist of mikið. Hætta sér á því að hækkun olíu­verðs leiði til versn­andi sam­keppn­is­hæfni í ferða­þjón­ustu, einkum ef gengi krón­unnar styrk­ist á sama tíma. „Ört vax­andi fjöldi ferða­manna felur þó í sér nokkra áhættu. Ef ferða­þjón­usta verður fyrir höggi, t.d. vegna geng­is­hækk­unar krón­unnar sem verður vegna spá­kaup­mennsku í krón­unni eða hækkun olíu­verðs sem hækkar flug­far­gjöld mun rík­is­sjóður verða fyrir tjóni vegna eign­ar­halds á við­skipta­bönk­unum. Ekki verður hægt að kenna óreiðu­mönnum um í þetta skiptið. Það er því afar mik­il­vægt að reynt sé að búa til umhverfi fyrir ferða­þjón­ustu með hóf­legri gjald­töku og upp­bygg­ingu inn­viða þannig að ekki fari illa, enn einu sinni, og vöxt­ur­inn verði ekki of ör,“ segir Gylfi. 

Þá segir hann stöðu efna­hags­mála nú, ekki síst markast af því að hag­stjórnin hafi gengið vel eftir hrunið. Sér­stak­lega hafi Seðla­bank­inn náð að stýra málum betur frá árinu 2013, þegar hann fór að beita öðrum tækjum vöxtum í meira mæli, til að ná gengi krón­unnar stöð­ugu. Inngrip á gjald­eyr­is­mark­aði hafi heppn­ast vel, og stuðlað að betra jafn­vægi í þjóð­ar­bú­skapnum, en um þessar mundir er verð­bólga 1,6 pró­sent, hag­vöxtur um fjögur pró­sent og atvinnu­leysi um þrjú pró­sent. Spár gera ráð fyrir að 1,6 millj­ónir ferða­manna komi til lands­ins á þessu ári, en árið 2010 voru þeir innan við 500 þús­und.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár