Segir réttlætanlegt að taka skipulagsvald af sveitarstjórnum

Njáll Trausti Frið­berts­son segir það rétt­læt­an­legt að skipu­lags­valdið verði tekið af Reykja­vík­ur­borg ef það er til að gæta örygg­is­hags­muna þjóð­ar­innar.

Njáll Trausti Friðbertsson er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í norðausturkjördæmi.
Njáll Trausti Frið­berts­son er þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: xd.is

Njáll Trausti Frið­berts­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fyrr­ver­andi flug­um­ferð­ar­stjóri á Akureyri, segir það vera rétt­læt­an­legt að taka skipu­lags­vald af sveit­ar­stjórnum ef til­gang­ur­inn er að gæta að örygg­is­hags­munum þjóð­fé­lags­ins í heild.

Þetta sagði Njáll Trausti í umræð­unum um flug­völl­inn í Vatns­mýri í Viku­lok­unum á Rás 1. Tilefni umræð­anna er umræða sem Logi Már Ein­ars­son, þing­maður og for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hóf í hlað­varps­þætt­inum Aðför­inni hér á Kjarn­anum um síð­ustu helgi.

Logi Már líkti veru flug­vall­ar­ins við það ef hann sjálfur myndi reyna að troða sér í ferm­ing­ar­fötin. Nú væri þrengt að Reykja­vík­ur­flug­velli í skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og að nauð­syn­legt væri að und­ir­búa það vel hvað tæki við þegar flug­vell­inum yrði lokað. Honum yrði lokað á end­anum hvort sem okkur lík­aði það betur eða verr.

[adspot]

Njáll Trausti hefur verið virkur í sam­fé­lag­inu Hjartað í Vatns­mýri. Hann segir að orð­ræða þess sam­fé­lags hafa í meg­in­at­riðum snú­ist um að flug­völl­ur­inn verði að fá að vera á meðan það er ekki búið að finna betri eða sam­bæri­lega lausn á högun inn­an­lands­flugs og sjúkra­flugs hér á landi.

[links]Bjarkey Olsen, þing­kona Vinstri grænna, var einnig gestur Viku­lokanna. Hún benti á að mik­il­vægt væri að allir rök­ræddu sama hlut­inn um sama hlut­inn. Hún spurði svo Njál Trausta hvort honum þætti eðli­legt að skipu­lags­valdið yrði tekið úr hendi Reykja­vík­ur­borgar.

„Ef að sér­hags­munir eins sveit­ar­fé­lags ganga gegn hags­munum heils þjóð­fé­lags þá er það eðli­legt,“ svar­aði Njáll Trausti. Hann sagði einnig að það væri fram­hjá því lít­andi að slík aðgerð gæfi for­dæmi fyrir önnur sveit­ar­fé­lög. „Alþingi á að gæta örygg­is­hags­munum þjóð­fé­lags­ins um fram allt annað. Við náum aldrei að lenda þessu máli fyrr en Alþingi fer að skoða málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár