Flugvöllur í Vatnsmýri eins og „ef ég reyndi að troða mér í fermingarfötin“

Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, segir næsta víst að flug­völl­ur­inn fari úr Vatns­mýr­inni fyrr eða síðar. Þegar það ger­ist þurfi að vera búið að gera áætl­anir.

Logi Már Einarsson tók sæti á Alþingi eftir kosningarnar í haust. Hann hefur áður tekið þátt í bæjarmálum á Akureyri og starfað sem arkitekt.
Logi Már Ein­ars­son tók sæti á Alþingi eftir kosn­ing­arnar í haust. Hann hefur áður tekið þátt í bæj­ar­málum á Akureyri og starfað sem arki­tekt. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Logi Már Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, Akur­eyr­ingur og arki­tekt, segir næsta víst að flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri muni hverfa þaðan fyrr eða síðar og að gera þurfi áætl­anir um hvernig hann eigi að fara. Ekki sé hægt að leyfa byggð­inni að þrýsta flug­vell­inum út án þess að búið sé að und­ir­búa fram­haldið.

[links]Umræðan um flug­vall­ar­málin hefur á und­an­förnu færst frá því að snú­ast ein­göngu um veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri og yfir í aðrar hugs­an­legar lausnir við þeim vanda sem við blasir. Logi seg­ist hafa sjálfur tekið eftir þess­ari breyt­ingu á umræð­unni.

„Ég geng svo langt að segja að þeir sem vilja ekki neitt nema Vatns­mýr­ina eða dauða, þeir beri á end­anum ábyrgð á því þegar þessi þjón­usta skerð­ist,“ segir Logi Már. „Vegna þess að ef að flug­völl­ur­inn fer til Kefla­víkur – vegna þess að hann fer fyrr eða síðar – án þess að það sé búið að gera ein­hverjar úrbætur á sam­göngum þar á milli þá erum við í hrylli­legri stöðu. Þá gætu sam­göngur með inn­an­lands­flugi lagst af.“

Logi Már var gestur Aðfar­ar­innar, þátts um skipu­lags­mál í Hlað­varpi Kjarnans í gær. Hann ræddi skipu­lags­mál á Akureyri og umræð­una um skipu­lags­mál og lands­byggð­ina í þætt­inum í til­efni þess að skipu­lags­yf­ir­völd á Akureyri lögðu fram nýtt aðal­skipu­lag á dög­unum þar sem áhersla er lögð á aukna þétt­ingu byggðar í bænum. Hægt er að hlusta á þátt­inn hér á vefnum.

Logi Már hefur ára­langa reynslu í skipu­lags­málum á Akur­eyri og bendir á að þrátt fyrir smæð sína, þarf höf­uð­staður Norð­ur­lands að fást við sömu áskor­anir um sam­göngur og þétt­ingu byggðar eins og flestar aðrar borgir í dag.

„Það er enn þá þannig,“ segir Logi Már þegar hann er spurður hvort Akur­eyr­ingar séu ekki flestir mót­fallnir því að Reykja­vík­ur­flug­völlur hverfi úr Vatns­mýr­inni.

Um flug­vall­ar­málið seg­ist hann vilja fá það besta fyrir lands­byggð­ina og Reykja­vík. Þeir hags­munir liggi ekki með flug­velli í Vatns­mýr­inni. „Ég er þeirrar skoð­unar að það verði að horfa til beggja aðila. Við getum fundið lausn sem er bæði betri fyrir lands­byggð­ar­fólk og höf­uð­borg­ina, það er að segja að borgin fái að byggj­ast upp á skyn­sam­legan hátt en að við á lands­byggð­inni höfum líka góðan og greiðan aðgang inn á höf­uð­borg­ar­svæðið.“

Logi Már bendir á að hér sé um tækni­lega lausn að ræða. „Stjórn­mála­menn eiga að skil­greina aðgengi, tíðni, verð og annað. Svo geta skipu­lags­fræð­ingar og verk­fræð­ingar og arki­tektar fundið lausn­ina. Þannig að ég held að það yrði betra fyrir okkur að fá flug­völl, kannski Hafn­ar­firði – í Hvassa­hraun­inu – sem gæti þá tengst milli­landa­flug­inu líka. Þá fengjum við fleiri ferða­menn norður líka þannig.“

„Það hafa allir aðilar í þessu máli sömu hags­muni og þeir liggja, held ég, ein­hvers staðar í mjög skömmu nágrenni við Reykja­vík. Flug­vellir – eins og aðrir hlutir – breyt­ast og stækka og þurfa meira pláss. Þetta svæði þarna verður á end­anum eins og ef ég færi að reyna að troða mér í ferm­ing­ar­fötin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár