Forsetaembættið hástökkvari í traustsmælingum

Flestir Íslend­ingar bera mikið traust til Land­helg­is­gæsl­unnar og lög­regl­unnar, en emb­ætti for­seta Íslands er hástökkvari í traustsmælingum og er í þriðja sæti. Traust á heil­brigð­is­kerfið og dóms­kerfið hefur auk­ist.

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands.
Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Traust almenn­ings til emb­ættis for­seta Íslands stór­eykst milli mæl­inga Gallup. 83 pró­sent Íslend­inga bera mikið traust til for­seta Íslands, sem er aukn­ing um 26 pró­sentu­stig milli ára.

Sem fyrr ber almenn­ingur mest traust til Land­helg­is­gæsl­unnar, en 92 pró­sent segj­ast bera mikið traust til gæsl­unnar. Traust til lög­regl­unnar hefur auk­ist tölu­vert milli ára, eða 11%, og segj­ast nú 85 pró­sent bera mikið traust til lög­regl­unnar.

Forseti Íslands er í þriðja sæti yfir þær stofn­anir sam­fé­lags­ins sem almenn­ingur ber mikið traust til, en Háskóli Íslands er í fjórða sæti. 76 pró­sent Íslend­inga segj­ast bera mikið traust til HÍ.

62 pró­sent bera mikið traust til heil­brigð­is­kerf­is­ins, sem er tölu­verð hækkun milli ára, um 16 pró­sentu­stig. Í fyrra mæld­ist traustið tölu­vert lægra en árin þar á undan. Sömu sögu er að segja um mæl­ingar á trausti til dóms­kerf­is­ins, sem lækk­uðu tölu­vert í fyrra, en traust á dóms­kerfið hefur auk­ist um ell­efu pró­sentu­stig milli ára. 43 pró­sent segj­ast nú bera mikið traust til þess.

Þriðj­ungur lands­manna ber mikið traust til Seðla­banka Íslands, fjórum pró­sentu­stigum meira en í fyrra, en 19 pró­sent bera traust til Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, þremur pró­sentu­stigum minna en í fyrra. Traust á banka­kerfið mælist lít­il­lega meira en í fyrra, og er í 14 pró­sentum, lægst allra stofn­ana.

Traust til Alþingis hefur auk­ist um fimm pró­sentu­stig milli ára, en 22 pró­sent Íslend­inga segj­ast bera mikið traust til lög­gjaf­ar­sam­kom­unnar. Alþingi er komið upp fyrir borg­ar­stjórn Reykja­víkur, sem stendur í stað með 19% traust.

Af öðrum stofn­unum sam­fé­lags­ins, sem mældar voru, hefur umboðs­maður Alþingis hefur mikið traust 51% þjóð­ar­innar og rík­is­sak­sókn­ari hefur mikið traust hjá 50%. 48 pró­sent treysta rík­is­sátta­semj­ara mikið og traust til emb­ættis umboðs­manns skuld­ara er 22 pró­sent.

Spurt var hversu mikið eða lítið traust fólk bar til við­kom­andi stofn­ana. Könnunin var hluti af net­könnun sem Gallup gerði dag­ana 9. til 21. febr­úar, heild­ar­úr­tak var 1.411 manns og þátt­töku­hlut­fallið 59,8 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár