Óvart of mikið gagnsæi hjá heilbrigðisráðuneytinu

Per­sónu­vernd­ar­full­trúi stjórn­ar­ráðs­ins til­kynnti í gær örygg­is­brest til Per­sónu­verndar vegna mis­taka sem urðu við birt­ingu á upp­lýs­ingum úr mála­skrá heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins. Rangt skjal með of miklum upp­lýs­ingum fór á vef­inn í skamma stund.

Ráðuneytin byrjuðu á föstudag að birta upplýsingar úr málaskrám sínum, eins og þeim ber að gera samkvæmt breytingum á upplýsingalögum.
Ráðu­neytin byrj­uðu á föstu­dag að birta upp­lýs­ingar úr mála­skrám sínum, eins og þeim ber að gera sam­kvæmt breyt­ingum á upp­lýs­inga­lögum. Mynd: Bára Huld Beck

Per­sónu­vernd­ar­full­trúi stjórn­ar­ráðs­ins hefur til­kynnt Per­sónu­vernd um örygg­is­brest vegna mis­taka sem urðu við birt­ingu lista með máls­heitum úr mála­skrá heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins föstu­dag­inn 26. febr­úar. Þetta var gert í gær, í kjöl­far þess að Kjarninn sendi fyr­ir­spurnir á bæði heil­brigð­is­ráðu­neytið og Per­sónu­vernd vegna máls­ins.

Stjórn­völd hófu síð­asta föstu­dag að birta upp­lýs­ingar úr mála­skrám ráðu­neyta, eins og þeim er skylt að gera sam­kvæmt breyt­ingum á upp­lýs­inga­lögum sem tóku gildi um ára­mót. Stjórn­völdum ber að lág­marki að birta skrá yfir mál sem eru til með­ferðar í ráðu­neyt­unum í til­efni af inn­sendu eða útsendu erindi.

„Birting upp­lýs­inga úr mála­skrám ráðu­neyta er liður í vinnu stjórn­valda við að auka upp­lýs­inga­frelsi og gagn­sæi í stjórn­sýsl­unni,“ sagði í til­kynn­ingu stjórn­valda á föstu­dag­inn. Gagnsæið reynd­ist þó of mikið hjá einu ráðu­neyti.

Ráðu­neytin taka mál sín saman í Excel-skjöl til birt­ingar á vefnum, en í flestum til­fellum er ekki hægt að finna í skjöl­unum per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar um málin í mála­skránni og því segja mála­skrár ráðu­neyt­anna eins og þær birt­ast almenn­ingi ekki mikla sögu. Sú var hins vegar ekki raunin varð­andi það skjal frá heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu sem fyrst fór á netið á föstu­dag.

„Málsheiti í málaskrá - Fer ekki á vef“

Í skjali heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins sem birt­ist á vef stjórn­ar­ráðs­ins voru tveir dálkar, annar sam­bæri­legur þeim sem hin ráðu­neytin settu fram en hinn bar yfir­skrift­ina „Máls­heiti í mála­skrá - Fer ekki á vef“. Í þeim dálki var ekki búið að fjar­lægja per­sónu­grein­an­legar upp­lýs­ingar og upp­runa þeirra erinda sem fóru inn eða út úr ráðu­neyt­inu í jan­ú­ar­mán­uði.

Skjalið var á vefnum í skamma stund og innan þess tímara­mma sótti blaða­maður Kjarnans það, ásamt skjöl­unum frá öðrum ráðu­neytum. Heil­brigð­is­ráðu­neytið segir að sam­kvæmt þess bestu vit­und hafi rangt skjal verið í birt­ingu í innan við tvær mín­útur.

Í skjal­inu eru upp­lýs­ingar sem ætla má að fólk úti í bæ kæri sig ekki um að ráðu­neytið geri opin­berar. Til dæmis má þar lesa að nafn­greindur maður kom í jan­úar á fram­færi mót­mælum til ráðu­neyt­is­ins vegna fyr­ir­hug­aðrar útskriftar nafn­greindrar konu af bráða­öldr­un­ar­deild sjúkra­stofn­unar og að rík­is­lög­maður óskar eftir áliti frá ráðu­neyt­inu vegna bóta­máls nafn­greinds starfs­manns sjúkra­stofn­unar, sem slas­að­ist við vinnu.

Einnig má þar lesa að þing­maður hafi komið á fram­færi athuga­semd vegna ráðn­ingar starfs­manns hjá til­tek­inni sjúkra­stofnun utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Kjarninn hafði sam­band við þing­mann­inn, sem stað­festi þetta, en skildi reyndar ekki af hverju málið væri inni á borði hjá ráðu­neyt­inu, þar sem hann hefði sent athuga­semdir sínar beint á stjórn­anda sjúkra­stofn­un­ar­innar. Málið væri af per­sónu­legum toga.

Í skjal­inu er einnig hægt að sjá nöfn fjöl­margra blaða- og frétta­manna og lesa meg­in­inn­tak fyr­ir­spurna þeirra til ráðu­neyt­is­ins, sem flestar tengj­ast COVID-19.

Dæmi: „Kjarninn miðlar - Beiðni um afrit af fyr­ir­liggj­andi gögnum vegna ráð­staf­ana á landa­mær­unum - Arnar Þór Ing­ólfs­son (ME)“.

Einnig má lesa að ráðu­neytið kom á fram­færi ein­hverri ábend­ingu vegna fréttar Morg­un­blaðs­ins frá 6. jan­úar, þar sem fjallað var um að sam­kvæmt áætl­unum yrði komið bólu­efni fyrir 30 þús­und manns í lok mars­mán­aðar, eða 8,1 pró­sent lands­manna.

Þá má einnig sjá fyr­ir­spurnir og beiðnir frá bæði ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum varð­andi und­an­þágur frá gild­andi sótt­varna­ráð­stöf­unum, til dæmis vegna útfara eða ann­arra við­burða.

Svo einnig fyr­ir­spurnir frá fólki um það hvaða tak­mark­anir á eðli­legu mann­lífi séu í gildi: „Covid-19 - Fyr­ir­spurn hvort 2 metra reglan sé í gildi“ heitir eitt málið í mála­skránni, en alls eru þau rúm­lega 350 tals­ins.

Ekki efnisleg umfjöllun um málefni einstaklinga

„Skjalið var fjar­lægt án tafar þegar mis­tökin við birt­ingu urðu ljós. Ráðu­neytið vill taka fram að þær upp­lýs­ingar sem birtar voru fela ekki í sér efn­is­lega umfjöllun um mál­efni ein­stak­linga, þótt í nokkrum til­vikum hafi komið fram nöfn ein­stak­linga í tengslum við til­tekin mál,“ segir í svari ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans, þar sem einnig var sagt frá því að örygg­is­brestur hefði verið til­kynntur til Per­sónu­verndar vegna mis­tak­anna.

Þegar Kjarninn spurð­ist fyrir um málið hjá Per­sónu­vernd í gær hafði hvorki stjórn­ar­ráðið né heil­brigð­is­ráðu­neytið til­kynnt örygg­is­brest, en undir kvöld bár­ust svör frá ráðu­neyt­inu um að það hefði verið gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

upplýsingaréttur

Leiðari

Fanney Birna Jónsdóttir

Til hvers eru Píratar?

Stefna Pírata hefur verið gagn­rýnd frá upp­hafi, eða öllu heldur meint stefnu­leysi þeirra. Það er enda stundum erfitt að skil­greina flokk­inn hvort heldur sem er til hægri eða vinstri. Oft og tíðum virð­ast mál þing­manna þeirra jaðra við að vera hrein­ræktuð frjáls­hyggju­mál en ekki sjaldnar má í mál­flutn­ingi þeirra greina mjög sterk sós­íal­ísk gildi. Hún er líka rugl­ings­leg saga flokks­ins...
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Brú­neggin eru víða

Umfjöllun Kast­ljóss um fyr­ir­tækið Brúnegg hefur eðli­lega vakið mikla athygli. Fyrir liggur að Brúnegg blekkti neyt­endur stór­kost­lega með því að nota merk­ingar á vörur sínar sem héldu því fram að eggja­fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins væri vist­væn, að hænur þess væru „frjálsar“ og að þær fái ást og umhyggju. „Atlætið skilar sér í hollri og góðri afurð,“ sagði á heima­síðu Brú­neggja áður en...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár