Samráðsnefnd um afnám hafta boðuð til fundar í dag eða á morgun

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra hefur gert þing­mönnum, sem eiga sæti í sam­ráðs­nefnd um afnám hafta, að þeir eigi að vera við­búnir fundi í nefnd­inni í dag eða á morgun. Þetta kom fram í máli Árna Páls Árna­sonar, for­manns Sam­fylk­ing­ar­innar, á þingi í dag.

Árni Páll gerði stöð­ug­leika­skil­yrðin, sem slita­búum gömlu bank­anna er gert að upp­fylla til að fá und­an­þágu frá fjár­magns­höftum og klára nauða­samn­inga, að umtals­efni í þing­inu. Hann sagði að mjög mis­vísandi upp­lýs­inga hefði gætt um málið, og nefndi frétt Bloomberg frá því í morgun í því sam­hengi.

Bloomberg greindi frá því að ólík­legt væri að íslensk stjórn­völd myndu sam­þykkja til­lögur slita­bú­anna, sem hljóða upp á greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags upp á rúm­lega 340 millj­arða króna. Bloomberg segir að stjórn­völd vilji minnst 470 millj­arða króna úr stöð­ug­leika­fram­lag­inu.

„Ekkert hefur verið upp­lýst opin­ber­lega um for­sendur þess­ara mik­il­vægu ákvarð­ana,“ sagði Árni Páll, en sagð­ist meta það við Bjarna að hann hefði boðað til fundar í sam­ráðs­nefnd­inni í dag eða á morgun. Hann vildi því spyrja hvort allar for­sendur verði ekki gerðar opin­berar áður en ákvörðun yrði tekin af hálfu rík­is­stjórn­ar­innar.

Bjarni sagði að það væri skrifað inn í lögin hvernig ferl­inu við und­an­þágu­beiðnir er háttað. Seðla­bank­inn meti til­lög­urnar, og svo leggi fjár­mála­ráðu­neytið sjálf­stætt mat á þær. Fjár­mála­ráð­herra eigi svo að kynna málið fyrir efna­hags- og við­skipta­nefnd þings­ins. „Það er alveg ljóst að við munum, ef til þess kemur, ræða málið hér í þing­inu.“

Sigmundur segir kröfuhafa vera að brenna inni á tíma


Í áður­nefndri frétt Bloomberg segir að stjórn­völd miði við að stöð­ug­leika­fram­lagið þurfi að vera um 470 millj­arðar króna í útreikn­ingum sínum, og því beri enn of mikið á milli hug­mynda þeirra og slita­bú­anna. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir í sam­tali við Bloomberg að slita­búin séu að brenna inni á tíma við að klára sín mál. Hann sagði að hluti kröfu­hafa vær nær því að mæta stöð­ug­leika­skil­yrð­unum en aðrir, en vildi ekki útskýra það nánar.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans gengur mun betur að ganga frá stöð­ug­leika­fram­lagi slita­búa Lands­bank­ans og Kaup­þings en Glitnis, sem er það bú sem sam­þykkt hefur að greiða lang­hæstu greiðsl­una í fram­lag, alls um 200 millj­arða króna.

Mikil gagn­rýni hefur verið á það upp­gjörs­ferli sem er í gangi og stefnt er að því að klára með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags, sér­stak­lega vegna skorts á gagn­sæi. InDefence-hóp­ur­inn, sem Sig­mundur Davíð var einu sinni hluti af, hefur til að mynda sagt að að kröfu­hafar séu að fá ódýra leið út úr íslenskum höftum sem muni skerða lífs­kjör almenn­ings.

Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri virð­ist þó mun bjart­sýnni en margir aðrir á að það muni takast að ljúka nauða­samn­ings­gerð föllnu bank­anna fyrir ára­mót. Í bréfi sem hann skrif­aði InDefence-hópnum í sept­em­ber sagði hann að þau ð nauða­samn­ingum sem slitabú föllnu bank­anna þriggja hafa sent inn til Seðla­bank­ans upp­fylla „í stórum dráttum skil­yrði um stöð­ug­leika í gengis- og pen­inga­málum“ og tryggja fjár­mála­legan stöð­ug­leika í íslensku hag­kerfi. Ýmis atriði þarf þó að skoða nánar, meðal ann­ars áhrif nauð­samn­ing­anna á á lausa­fjár­stöðu fjár­mála­fyr­ir­tækja og sölu­ferli Íslands­banka og Arion. „Sú skoðun er á loka­stigi og í fram­haldi af því gætu skap­ast for­sendur fyrir nán­ari opin­berri kynn­ingu“.

Kjarninn fjall­aði um það nýverið að titr­ings gæti á meðal kröfu­hafa föllnu bank­anna um þessar mundir vegna tafa sem hafa orðið á ferl­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár