Stríðskonan sem varð forseti fyrir slysni

Fyrir einu og hálfu ári var hún svo að segja óþekkt á hinu póli­tíska sviði. Hún varði yfir­mann­inn með kjafti og klóm en hefur nú tekið við stöðu hans. Og er þar með orðin fyrsta konan sem gegnir emb­ætti for­seta Perú.

Dina Boluarte, forseti Perú, heilsar fólki á götum Lima.
Dina Boluarte, for­seti Perú, heilsar fólki á götum Lima. Mynd: EPA

Dina Boluarte skráði sig á spjöld sög­unnar fyrir nokkrum dögum er hún tók við emb­ætti for­seta Perú, fyrst kvenna. Fyrir einu og hálfu ári síðan tók hún við emb­ætti vara­for­seta og segja má að þá hafi hún verið óþekkt í stjórn­mála­líf­inu.

Hinu sögu­lega hlut­verki tekur hún þó við í skugga þess að Pedro Castillo var bolað úr stóli for­seta eftir að hafa reynt að slíta þingi til að koma í veg fyrir að þing­menn gætu greitt atkvæði um ákæru á hendur honum fyrir emb­ætt­is­glöp. Upp­á­komur sem þessar eru algengar á þing­inu í Perú þar sem ólga og ósætti ein­kenna almennt stjórn­málin.

[adspot]

Þessu vill Boluarte breyta. Hún kallar eftir „vopna­hléi“ og friði til handa stjórn­völdum svo hægt verði að vinna að nauð­syn­legum umbóta­verk­efnum og hefur for­dæmt fyrr­ver­andi banda­mann sinn Castillo fyrir það sem hún kall­aði „til­raun til valda­ráns“.

Boluarte er sex­tug að aldri og lög­fræð­ingur að mennt. Castillo valdi hana sem vara­for­seta­efni sitt og svo einnig til að gegna emb­ætti ráð­herra þró­unar- og félags­mála í nýrri rík­is­stjórn sinni sum­arið 2021. Hún gegndi báðum þessum stöðum allt þar til fyrir tveimur vikum. Þá ætl­aði Castillo enn og aftur að stokka upp í ráð­herra­liði sínu og nú með þeim hætti að Boluarte gat ekki sætt sig við það. Hún sagði af sér.

Castillo tókst þó ekki ætl­un­ar­verk sitt, að halda stöðu sinni, því síð­asta mið­viku­dag var hann hand­tek­inn, ákærður fyrir til­raun til upp­reisnar og emb­ætt­is­glöp, og sam­tímis sviptur for­seta­emb­ætt­inu.

Litlu mátti muna að Boluarte kæmi ekki til greina sem eft­ir­maður hans. Fyrir aðeins nokkrum dögum fjall­aði þing­nefnd um ásak­anir póli­tískra and­stæð­inga sem sök­uðu hana um stjórn­ar­skrár­brot. Var hún m.a. sökuð um að hafa gegnt opin­beru starfi á sama tíma og hún var for­seti átt­haga­fé­lags fólks frá Apurimac, svæðis í suð­aust­ur­hluta lands­ins, sem búa í höf­uð­borg­inni Lima. Þetta fannst fjár­hirði rík­is­sjóðs and­stætt anda stjórn­ar­skrár Perú.

Nefndin vís­aði umkvört­unum hins vegar frá. Og hún varð for­seti.

Óhrædd

„Hún er stríðs­kona,“ segir per­úska þing­konan Sigrid Pazan um Boluarte, þegar hún er beðin að lýsa per­sónu nýja for­set­ans. Segir að hún gef­ist ekki upp. Búi yfir mik­illi þraut­seigju.

Þá er hún ekki hrædd við að skipta um skoðun. Slík dæmi blasa við ef farið er yfir póli­tískan feril hennar síð­ustu mán­uði.

„Ef að for­set­anum verður vikið úr starfi þá fer ég með honum,“ sagði hún fyrir ári síðan. Þá var þingið að fara að greiða atkvæði um ákæru um emb­ætt­is­glöp Castillo, þeirrar fyrstu af þremur sem hann átti eftir að fá á sig á skömmum tíma. Boluarte stóð þétt við bakið á for­set­anum þáver­andi og steig opin­ber­lega fram honum til varnar. „Ekki aðeins hef ég barist með félaga Pedro til sig­urs í kosn­ingum heldur höfum við sagt hægr­inu: Þið eruð ekki að fara að beygja okkur.“

Í sumar var komið nokkuð annað hljóð í strokk­inn, umræða um spill­ingu Castillo orðin yfir­þyrm­andi og fátt annað blasti við en að hann yrði að víkja. Ef til þess kæmi sagð­ist Boluarte vera til­búin til að taka við völdum.

Þessi breytta staða átti sér aðdrag­anda. Í árs­byrjun, aðeins nokkrum dögum eftir að hún hét tryggð við for­set­ann þáver­andi, var hún rekin úr vinstri­flokknum Peru Libre, þeim hinum sama og hafði borið Castillo á höndum sér og komið til valda. Stefna for­manns flokks­ins, Vladimir Cerrón, átti ekki upp á pall­borðið hjá Boluarte. „Ég hef alltaf verið vinstrisinnuð og verð það áfram en á lýð­ræð­is­legum grunni – ekki alræð­is­legum,“ sagði hún. Áfram sagð­ist hún við þessi tíma­mót styðja for­seta sinn þótt flokkspóli­tískar leiðir hefðu skilið.

[adspot]

Og nú, ári eftir að hún hét því að berj­ast við hlið félaga Pedro, er hún komin í stól­inn hans. Þannig vildi það til, nán­ast fyrir slysni, að Boluarte varð fyrsti kven­for­seti Perú. Á hött­unum eftir þeirri stöðu hefur kyn­systir hennar, Keiko Fujimori, verði í fleiri ár. Hún hefur í þrí­gang boðið sig fram til for­seta en ekki haft erindi sem erf­iði.

Þær gætu þó vart verið ólík­ari, Boluarte og Fujimori. Sú fyrr­nefnda fædd­ist í smábæ lengst suður í land­inu og átti þrettán eldri systk­ini. Hún ætl­aði sér lengst af að læra hjúkrun en skipti um skoðun og lagði lög­fræð­ina fyrir sig.

Þótt flestir hafi ekk­ert vitað hver hún var er hún tók við emb­ætti vara­for­seta hafði hún áður sýnt áhuga á stjórn­málum. Fyrir nokkrum árum reyndi hún að ná kjöri sem borg­ar­stjóri í Surquillo, einum borg­ar­hluta höf­uð­borg­ar­innar Lima. Það gekk ekki eftir. Hún bauð sig fram til þings árið 2020 en varð ekki heldur kápan úr því klæð­inu. Hún hvarf því aftur til starfa hjá þjóð­skrá Perú, RENIEC, þar sem hún vann í sautján ár eða allt þar til Castillo bauð henni ráð­herra- og vara­for­seta­stól­inn.

Ævi Fujimori er mjög frá­brugðin. Hún er dóttir Alberto Fujimori, fyrr­ver­andi for­seta Perú, og ólst því upp við góð efni og umgengni við valda­fólk allt frá unga aldri.

Boluarte er vinstrisinnuð. Fujimori er hægri­kona. Castillo vann nauman sigur á Fujimori í for­seta­kosn­ing­unum í fyrra.

Í þriðja sinn á fjórum árum

Það er hefð fyrir því að vara­for­seti taki við stöðu for­seta í Perú ef þær aðstæður skap­ast að hann fari frá völdum. Og slík valda­skipti hafa nú orðið þrisvar sinnum á aðeins fjórum árum.

Í mars árið 2018 var þáver­andi for­seti, Pedro Pablo Kuczynski, ákærður fyrir emb­ætt­is­glöp. Við tók vara­for­seti þess tíma, Martín Vizcarra. Í nóv­em­ber 2020 var svo komið að Vizcarra að missa emb­ættið og vara­for­seti hans, Francisco Sagasti, tók við. Í síð­ustu viku var Pedro Castillo vikið úr emb­ætti for­seta og Boluarte tók við.

„Ég er með­vituð um þá gríð­ar­legu ábyrgð sem ég tek nú að mér,“ sagði Boluarte er hún sór emb­ætt­is­eið­inn. „Mín fyrsta bón er sú að kalla eftir breiðri sam­stöðu allra Per­úmanna.“

Kjör­tíma­bil­inu lýkur ekki fyrr en árið 2026. Boluarte von­ast til að geta setið á for­seta­stóli þangað til. Hún segir verk að vinna í Perú. „Við verðum að nota næstu fjögur ár til að vinna í þágu við­kvæm­ustu landa okkar, þá sem mest þurfa á því að halda.“

[adspot]

Þrátt fyrir að vera lýst sem stríðs­konu vill Boluarte frið. Frið til að vinna verk sín, frið til að koma á umbótum fyrir fátæka þjóð í menn­ing­ar­ríku landi. Landinu þar sem Inkarnir bjuggu og reistu sín miklu mann­virki, land­inu þar sem kókaín er fram­leitt í meira magni en nokkru öðru landi. Og land­inu þar sem efna­hag­ur­inn hefur verið að vænkast á und­an­förnum árum, ekki síst vegna erlendra fjár­fest­inga í vinnslu nátt­úru­auð­linda, stundum í mik­illi and­stöðu við heima­menn.

Hvort Boluarte tak­ist ætl­un­ar­verk sitt á eftir að koma í ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár