Sex frambjóðendur heltast líklega úr lestinni

Ætla má að Baldur Ágústs­son, Benedikt Kristján Mewes, Elísabet Jök­uls­dóttir, Magnús Ingi Magn­ús­son og Magnús Ingberg Jónsson nái ekki að vera með í bar­átt­unni um Bessa­staði í vor. Þau ná lík­lega ekki nægum fjölda með­mæl­enda, sem þau eiga að skila í dag.

Ástþór Magnússon, Hildur Þórðardóttir, Halla Tómasdóttir og Andri Snær Magnason segjast öll hafa safnað tilskyldum fjölda. Benedikt Kristján Mewes náði því ekki, en skilafrestur rennur út í dag.
Ástþór Magn­ús­son, Hildur Þórð­ar­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir og Andri Snær Magnason segj­ast öll hafa safnað til­skyldum fjölda. Benedikt Kristján Mewes náði því ekki, en skila­frestur rennur út í dag. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Níu af fjórtán for­seta­fram­bjóð­endum segj­ast vera búnir að safna til­skyldum fjölda und­ir­skrifta sem þarf til að fá form­legt for­seta­fram­boð gilt. Þeir sem hafa enn ekki safnað nægum fjölda eru Baldur Ágústs­son, Benedikt Kristján Mewes, Magnús Ingberg Jónsson, Elísabet Jök­uls­dóttir og Magnús Ingi Magn­ús­son, eða Texas-Maggi. Í dag til­kynnti Ari Jós­eps­son að hann ætli ekki að bjóða sig fram, en hann sag­ist engu að síður við Frétta­blaðið hafa safnað til­skildum fjölda. Þau sem segj­ast vera búin að safna nægum und­ir­skriftum og ætla að skila inn í dag eru þau Andri Snær Magnason, Ástþór Magn­ús­son, Davíð Oddsson, Guðni Th. Jóhann­es­son, Guðrún Margrét Páls­dóttir, Halla Tóm­as­dóttir, Hildur Þórð­ar­dóttir og Sturla Jónsson. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

Skilafrestur rennur út í dag

Fram­bjóð­endur þurfa að skila inn með­mæl­endum í öllum fjórð­ungum lands­ins í dag, und­ir­skriftum 1.500 manns. Yfir­kjör­stjórn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmum norður og suður taka á móti listum í Ráðhúsi Reykja­víkur í dag á milli klukkan 13 og 15. 

Farið verður yfir listana næstu viku og nöfn og kenni­tölur bornar saman við þjóð­skrá og gengið úr skugga um að ekk­ert nafn sé tvisvar, þar sem það ógildir und­ir­skrift­ina. Fram­bjóð­endur fá svo nokkra daga fram að mið­nætti 20. maí næst­kom­andi, föstu­dag­ur­inn í næstu viku, til að lag­færa sína lista ef eitt­hvað vantar upp á.

Sex náðu inn árið 2012

Í síð­ustu for­seta­kosn­ingum 2012 voru sex manns í fram­boði og var það sögu­legur fjöldi. Framboð Ástþórs Magn­ús­sonar hafði verið dæmt ógilt þar sem ekki lá fyrir lög­boðið vott­orð frá yfir­kjör­stjórn Norð­vest­ur­kjör­dæmis. Framboð Ástþórs hafði líka verið dæmt ógilt árið 2000, þegar hann náði ekki að skila inn til­skyldum fjölda með­mæl­enda á réttum tíma.

Fram­bjóð­endur 2012 voru þau Andrea Jóhanna Ólafs­dóttir, Ari Trausti Guð­munds­son, Hannes Bjarna­son, Herdís Þor­geirs­dóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arn­órs­dóttir.

Fréttin var upp­færð klukkan 15:55 þegar RÚV greindi frá því að Ari Jós­eps­son væri hættur við fram­boð. Hann hafði áður sagt við Frétta­blaðið að hann væri búinn að safna til­skyldum fjölda und­ir­skrifta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár