Pólverjum er vandi á höndum

Stærsti fram­leið­andi kola í Evrópu utan Rúss­lands er í vanda staddur eftir að hafa bannað inn­flutn­ing á rúss­neskum kolum vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu.

Kolafarmi frá Suður-Afríku skipað upp í pólskri höfn í sumar.
Kolafarmi frá Suður-Afríku skipað upp í pól­skri höfn í sumar. Mynd: EPA

Á hverju ári nota Pól­verjar 10 millj­ónir tonna af kolum til að hita hús sín, um 87 pró­sent af allri kola­notkun Evr­ópu­sam­bands­ins í þeim til­gangi. Um helm­ingur kol­anna er unn­inn innan landamæra Póllands en síð­ustu ár hafa um 40 pró­sent verið flutt inn frá Rúss­landi eða um 4 millj­ónir tonna á ári. En nú þegar stjórn­völd í Póllandi hafa bannað inn­flutn­ing á rúss­neskum kolum vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu er þeim vandi á höndum.

Það er dýrt að vinna kol í Póllandi og því hafa rúss­nesku kolin, sem eru mun ódýr­ari, hentað hingað til, segir tals­maður umhverf­is­vernd­ar­sam­tak­anna Smog Alert, í sam­tali við þýska fjöl­mið­il­inn Deutsche Welle, DW.

[adspot]

Rúss­lensku kolin hafa hingað til verið notuð til að kynda verk­smiðjur í aust­ur­hluta Póllands. Og það er ekki ein­falt mál að skipta þeim út fyrir pólsk kol að sögn sér­fræð­inga. Þau rúss­nesku eru, þrátt fyrir að vera ódýr­ari, af betri gæðum og inni­halda minna brenni­stein­s­trí­oxíð en þau pólsku.

Annað vanda­mál felst í því að á síð­asta ári sam­þykktu stjórn­völd í Póllandi loks að draga úr kola­notkun og fram­leiðslu sinni svo hægt verði að mæta los­un­ar­mark­miðum sem Evr­ópu­sam­bandið skuld­batt sig til á Lofts­lags­ráð­stefn­unni í Glasgow. Samkvæmt þeim áformum sam­þykktu Pól­verjar til dæmis að að hætta við frek­ari inn­viða­upp­bygg­ingu í kola­iðn­aði.

[links]Verð á pólskum kolum hefur hækkað mikið upp á síðkastið og talið er víst að margir, fyr­ir­tæki sem og heim­ili, muni verða í vand­ræðum með að greiða orku­reikn­inga sína. Sér­stak­lega eru þeir lægst laun­uðu taldir í miklum vanda í þessum efnum. Og vet­ur­inn, sem oft getur verið kaldur á þessum slóðum, er framundan.

Stjórn­völd ætla sér að létta undir með þeim og eiga neyt­endur að fá ein­greiðslu sem hugsuð er til að greiða niður hús­hit­un­ar­kostnað. Þá hafa þau skipað tveimur kola­fyr­ir­tækjum í rík­i­s­eigu að nið­ur­greiða kol til fátæk­ustu íbúa lands­ins.

En sér­fræð­ingar segja þessar aðgerðir ekki duga til.

Kola­birgðir Póllands hafa ekki verið minni síðan í síð­ari heims­styrj­öld­inni. Þegar það hægði á hag­kerf­inu í heims­far­aldr­inum safn­að­ist mikið magn kola upp en veru­lega hefur gengið á þær birgðir síð­ustu vikur og mán­uði. Ljóst þykir að skortur á kolum verði í vetur.

Vegna hins yfir­vof­andi kola­skorts hafa pólsk orku­verið verið að draga úr raf­magns­fram­leiðslu sinni. Hluti raf­magns­ins hefur verið fluttur til nágranna­ríkja en nú hefur verið dregið úr þeim útflutn­ingi. Í júlí urðu þau tíma­mót í fyrsta skipti í langan tíma að Pól­verjar flutti meira raf­magn inn en út.

Dýrt að flytja kol þvert yfir hnöttinn

Pólsk stjórn­völd eru að leita samn­inga við önnur kola­ríki en Rússland og hafa m.a. horft til Kólumbíu, Ástralíu, Suður-Afríku og Indónesíu. Sá inn­flutn­ingur yrði alltaf mjög dýr, bæði vegna flutn­ings­kostn­aðar og fram­leiðslu­kostn­aðar í þessum löndum. Að flytja aðföng til Póllands um Eystra­saltið er svo ekki ein­falt mál þar sem miklir her­gagna­flutn­ingar eru þar nú í fyr­ir­rúmi vegna stríðs­átak­anna í Úkraínu.

Inn­flutn­ingur gæti þó reynst nauð­syn­legur þar sem ekki er hægt að auka kola­fram­leiðslu í Póllandi á aðeins nokkrum mán­uðum.

Þannig að vand­inn er mik­ill og enn óleystur. Meðal þess sem til greina kemur að gera er að aflétta banni við sölu á kolum af mjög lélegum gæðum, banni sem sett var á árið 2020 í við­leitni til að hægja á lofts­lags­breyt­ingum af manna­völdum. Þá hafa stjórn­völd þegar heim­ilað fólki að afla sér eldi­viðar í skógum lands­ins.

[adspot]

Allt hangið þetta svo saman við yfir­vof­andi orku­skort í öðrum löndum ESB. Mörg þeirra eru farin að draga úr notkun jarð­efna­elds­neyta og Frakkar og Þjóð­verjar hafa sett sér háleit mark­mið um lokun kjarn­orku­vera. Þetta hefur, í alls­herjar skorti vegna stríðs­ins í Úkraínu, orðið til þess að eft­ir­spurn eftir gasi og kolum hefur stór­auk­ist. Rætt hefur verið um að kveikja aftur á kjarn­orku­verum í Frakk­landi af þessum sökum.

Enginn hafði reiknað með að hætta þyrfti inn­flutn­ingi á rúss­neskum kolum. Ekki var gert ráð fyrir slíku í neinum áætl­unum pól­skra stjórn­valda. Og þegar þau gripu til þeirra aðgerða í apríl var ekki spurt hvað myndi koma í stað­inn og alltof seint farið af stað í að finna leiðir til að koma í veg fyrir alvar­legt ástand.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár