Brottkast hefur sést hjá um 40 prósentum báta sem flogið hefur verið yfir á dróna

Brott­kasts hefur orðið vart hjá um 40 pró­sentum þeirra báta sem Fiski­stofa hefur flogið yfir á drónum sínum frá því að dróna­eft­ir­lit hófst í upp­hafi síð­asta árs. Hlut­fallið er svipað óháð veið­ar­færum, sam­kvæmt stofn­un­inni.

Skjáskot af meintu brottkasti sem náðist á upptöku úr flugvél Landhelgisgæslunnar árið 2019. Fiskistofa flýgur nú drónum yfir báta á miðunum. Mynd: Skjáskot/LHG
Skjáskot af meintu brott­kasti sem náð­ist á upp­töku úr flug­vél Land­helg­is­gæsl­unnar árið 2019. Fiski­stofa flýgur nú drónum yfir báta á mið­unum. Mynd: Skjáskot/LHG

Brott­kast hefur sést hjá um 40 pró­sentum allra báta sem Fiski­stofa hefur flogið yfir á dróna, síðan að dróna­eft­ir­lit Fiski­stofu hófst í árs­byrjun 2021. Hlut­fallið er óháð teg­und veið­ar­færa, en reyndar hefur ein­ungis lít­ill hluti fluga farið fram yfir stærri skipum fjarri landi.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Svan­dísar Svav­ars­dóttur mat­væla­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ingu Sæland for­manns Flokk fólks­ins um afla­heim­ildir. Þar segir einnig að Fiski­stofa leiti nú töl­fræði­legra aðferða til að magn­meta brott­kast út frá þeim gögnum sem safnað hefur verið með dróna­eft­ir­lit­inu, en brott­kast hefur mælst allt upp í 27 pró­sent af heild­ar­afla eins báts í stakri veiði­ferð.

[adspot]

„Fiski­stofa metur, eftir þetta fyrsta ár í dróna­eft­ir­liti, að umfang ólög­legs brott­kast við Íslands­mið sé all­nokk­urt og mun meira en áður hefur verið talið. Hins vegar þarf að vinna betur úr þeim gögnum sem safn­ast hafa og end­ur­bæta skrán­ingar til að auð­velda töl­fræði­grein­ingar til að geta metið umfangið nákvæmar. Sú vinna stendur nú yfir,“ segir í svari sem ráðu­neytið færir fram frá Fiski­stofu.

Eins og Kjarninn sagði frá í des­em­ber síð­ast­liðnum hafa veiði­eft­ir­lits­menn hjá Fiski­stofu á und­an­förnum ára­tug oft­ast skráð um eða innan við tíu mál sem varða brott­kast afla á ári hverju. Í árs­byrjun 2021 hófst dróna­eft­ir­litið og von­að­ist Fiski­stofa eftir því að sjá úr lofti góða umgengni við sjáv­ar­auð­lind­ina. En málin þar sem ætlað var að afla bæði stórra og smárra skipa hefði verið kastað í sjó­inn end­uðu á því að vera alls um 140 tals­ins árið 2021.[links]

Hefur ekki heimild til að banna búnað sem nota má til brottkasts

Inga Sæland spurði mat­væla­ráð­herra að því hvort Fiski­stofa rann­sak­aði útbúnað skipa til að athuga hvort skipin væru með búnað sem mætti nýta til að fela ummerki brott­kasts. Ráðu­neytið leit­aði svara hjá stofn­un­inni og fékk þau svör að eft­ir­lits­menn hennar hefðu augun opin í eft­ir­liti sínu fyrir bún­aði sem nýta má til að fela ummerki brott­kasts.

„Fiski­stofa hefur hins vegar ekki heim­ildir til að banna slíkan búnað eða t.d. opna brunna sem vart verður við. En eft­ir­lits­menn benda á slíkan búnað eða opna brunna í eft­ir­liti og óska eftir úrbótum ásamt því að Fiski­stofa sendir leið­bein­ing­ar­bréf þar sem bann við brott­kasti er áréttað og óskað eftir að brunnum verði lokað eða bún­aður fjar­lægður. Lengra ná heim­ildir Fiski­stofu ekki.

Einnig hefur sést við dróna­eft­ir­liti bún­aður s.s. rennur o.fl. til að auð­velda brott­kast og hefur sá bún­aður sést í notkun. En það sama á við og áður, Fiski­stofa getur sent leið­bein­inga­bréf og óskað eftir að bún­aður verði fjar­lægður,“ segir í svar­inu frá Fiski­stofu.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár