Stjórnvöldum verði heimilt að afla gagna um farsæld barna við gerð mælaborðs

Stjórn­völd vinna að gerð mæla­borðs um far­sæld barna. Svo það verði að veru­leika telur mennta- og barna­mála­ráðu­neytið nauð­syn­legt að inn­leiða sér­stök lög sem heim­ila stjórn­völdum að afla gagna um líðan, vel­ferð og far­sæld barna.

Farsæld barna
Farsæld barna Með frum­varp­inu er ætl­unin að lög­festa heim­ildir stjórn­valda til að mæla og kanna líðan, vel­ferð og far­sæld barna og safna upp­lýs­ing­unum í sér­stakt mæla­borð. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mennta- og barna­mála­ráð­herra hyggst leggja fram frum­varp sem heim­ilar stjórn­völdum að afla gagna til að mæla og kanna líðan, vel­ferð og far­sæld barna á Íslandi. Frum­varpið teng­ist áformum stjórn­valda um að útbúa mæla­borð um far­sæld barna sem hefur verið í þróun síð­ustu ár og er það mat ráðu­neyt­is­ins að nauð­syn­legt sé að sér­stakur laga­grund­völlur verði lagður undir verk­efnið. 

Með því að safna gögnum um far­sæld barna von­ast stjórn­völd til að fá betri yfir­sýn yfir stöðu barna á Íslandi sem unnt er að nýta við stefnu­mótun, for­gangs­röðun fjár­muna og fleiri atriði.  

Áform um frum­varp til laga um gagna­öflun um far­sæld barna var birt í sam­ráðs­gátt stjórn­valda 20. jan­úar. Engar umsagnir hafa verið skrif­aðar um áformin enn sem komið er en í umsögnum um áform um mæla­borð um far­sæld barna sem birt var í mars 2021 var áformunum almennt vel tekið. Þroska­hjálp benti á að við gerð mæla­borðs­ins yrði samn­ingur Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks hafður til hlið­sjónar auk Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.     

Tillit tekið til athugasemda barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna

Í grein­ar­gerð um frum­varps­á­formin segir að að stjórn­völd vilji tryggja aðgengi að óper­sónu­grein­an­legum gögnum sem gefa yfir­sýn yfir stöðu barna, ekki síst barna sem til­heyra við­kvæmum hópum. Gögnin verði nýtt með mark­vissum hætti í stefnu­mótun og eft­ir­fylgni með aðgerðum. Einnig er horft til þess að tryggja opið aðgengi að töl­fræði­gögnum og afurðum þeim tengdum. 

Komið var til móts við athuga­semdir barna­rétt­ar­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna til íslenskra stjórn­valda við vinnslu frum­varps­á­for­manna. Nefndin kall­aði eftir mark­vissri gagna­öflun og opnu aðgengi að töl­fræði­gögnum um stöðu og hagi barna á Íslandi.

Nefndin beindi því til íslenskra stjórn­valda að töl­fræði­gögnum um líðan og vel­ferð barna væri safnað og þau væru sund­ur­liðuð með til­liti til ald­urs, kyns, fötl­unar, stað­setn­ingar, þjóð­ern­is­upp­runa og félags­legrar stöðu. Þá mælt­ist nefndin til þess að gögnin væru aðgengi­leg öllum stjórn­völdum, félaga­sam­tökum og hag­að­ilum. Einnig hefur nefndin kallað eftir því að töl­fræði­gögn séu mark­visst nýtt í stefnu­mótun í mála­flokkum er varða börn og eins for­gangs­röðun fjár­muna og verk­efna.

Námsmat, mæting og upplýsingar frá barnavernd meðal gagna sem má afla

Gögnunum sem stjórn­völd hyggj­ast safna má skipta í tvennt hvað varðar upp­runa. Annars vegar er um að ræða skrán­ing­ar­gögn sem falla til víðs vegar í starf­semi með börnum og ung­mennum. Sem dæmi má nefna nem­enda­skrá í skólum, nið­ur­stöðu náms­mats, mæt­ingu nem­enda, skrán­ing­ar­gögn vegna barna­verndar og gögn frá Þjóðskrá Íslands.

Hins vegar er um að ræða gögn sem falla til vegna gagna­öfl­unar frá börnum og ung­mennum sjálfum vegna spurn­inga­lista­rann­sókna þar sem gögnum er safnað nafn­laust frá börnum og ung­menn­unum, svo sem varð­andi hlut­læg og hug­læg atriði í þeirra lífi, til dæmis æsku­lýðs­rann­sóknir sem fram­kvæmdar hafa verið um ára­bil.   

Mennta- og barna­mála­ráð­herraÁsmundur Einar Daðason kynnti áform um mæla­borð um far­sæld barna í lok árs 2020, þá sem félags- og barna­mála­ráð­herra. Nú hyggst hann leggja fram frum­varp sem heim­ilar stjórn­völdum að afla gagna um líðan og vel­ferð barna svo hægt verði að inn­leiða mæla­borðið.

Ríki, opin­berar stofn­anir, sveit­ar­fé­lög, fyr­ir­tæki, félaga­sam­tök og fræða­sam­fé­lagið, svo dæmi séu tekin, koma til með að geta nálg­ast þau gögn sem stjórn­völd afla í opnu aðgengi, eftir að búið er að vinna gögnin með til­liti til per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­miða. 

Skýrari lagaheimild nauðsynleg

Skýrari heim­ild þarf í lögum fyrir öflun gagn­anna og því telur ráðu­neytið nauð­syn­legt að sér­stakur laga­grund­völlur verði lagður undir verk­efnið svo hægt sé að inn­leiða mæla­borð um far­sæld barna. Önnur úrræði en laga­setn­ing koma ekki til greina til að ná settum mark­miðum að mati ráðu­neyt­is­ins og er laga­setn­ingin ekki síst mik­il­væg til að tryggja per­sónu­vernd­ar­sjón­ar­mið. 

Ráðu­neytið metur það sem svo að ef frum­varpið nær ekki fram að ganga væri erfitt að tryggja að stefnu­mótun stjórn­valda í mála­flokknum bygg­ist á mark­vissri gagna­söfnun við alla ákvörð­un­ar­töku, stefnu­mótun og for­gangs­röðun er varðar mál­efni barna. 

Til stendur að birta frum­varps­drögin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í næsta mán­uði og stefnt er að því að leggja frum­varp fyrir Alþingi á vor­þingi. Áður en frum­varpið verður lagt fram þarf að gera breyt­ingar á æsku­lýðslögum, barna­vernd­ar­lögum, lögum um leik-, grunn- og fram­halds­skóla og lögum um sam­þætt­ingu í þágu far­sældar barna.

Frestur til að skila inn umsögn um frum­varps­á­formin til laga um gagna­öflun um far­sæld barna er til 3. febr­úar og hægt er að skila inn umsögn hér. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár