Eigið fé bankanna ofmetið um 50 prósent 2007 - Heimatilbúið hrun

End­ur­skoð­end­urnir Stefán Svav­ars­son og Jón H. Stef­áns­son segja í grein á vef Við­skipta­blaðs­ins að gömlu bank­arnir hafi verið kolólög­legir löngu fyrir form­legt fall þeirra haustið 2008.

End­ur­skoð­end­urnir Stefán Svav­ars­son og Jón Þ. Hilm­ars­son segja að eigið fé íslensku bank­anna hafi verið ofmetið um að minnsta kosti 50 pró­sent í lok árs 2007, og að rótin að því að þeir féllu eins og spila­borg, haustið 2008, hafi að mestu verið heima­til­búin.

Kolólöleg fjár­mögnun þeirra á eigin hlutafé, og hvernig hún var færð til bókar, er þar stærsti áhrifa­þátt­ur­inn.

Þetta kemur fram í grein sem þeir skrifa á vef Við­skipta­blaðs­ins sem ber heitið Eigið fé úr engu.

Í grein­inni segja þeir meðal ann­ars: „Í umræðu um hrunið á umliðnum árum hefur því verið haldið á lofti að hrunið á Íslandi hafi aðal­lega átt rót að rekja til atburða erlendis. Sú skoðun orkar mjög tví­mælis, því gild rök styðja, eins og hér verður reynt að gera grein fyrir, að hrunið hafi fyrst og fremst verið af inn­lendum upp­runa og eru umfangs­mikil kaup á eigin bréfum stór hluti skýr­ing­ar­innar. Það hefði haft geipi­lega mikil og jákvæð áhrif fyrir marga not­endur reikn­ings­skila bank­anna ef hin fjár­hags­lega frá­sögn af stöðu bank­anna í árs­lok 2007 hefði verið þokka­lega rétt varð­andi eigin bréf, meira hefði trú­lega ekki þurft til. Það er auð­vitað hægt að halda því fram að þetta sé eft­irá­speki en það er langt í frá svo. Í októ­ber 2007 lá fyrir að veru­lega var farið að hall­ast á til hins verra. Öllum sem að gerð reikn­ings­skila bank­anna komu mátti vera ljóst að gjald­þrot var þá þegar orðið eða yfir­vof­andi. Ekki þurfti annað til en farið hefði verið að gild­andi lögum og reikn­ings­skila­reglum varð­andi eigin bréf þá hlaut sú hætta að blasa við. Rétt bók­halds­leg með­ferð eigin bréfa ein og sér hefði sagt þessa sögu og hefði dugað flestum til að forð­ast við­skipti við íslensku bank­ana.“

Í grein þeirra segir að eigið fé bank­anna hafi verið oftalið eða rang­fært um 230 millj­arða kr. í árs­lok 2007 „en þessi fjár­hæð, sem fengin er frá RNA, er trú­lega of lág. Samkvæmt þessu þurfti að leið­rétta oftalið eigið fé bank­anna um allt að 50% til lækk­unar og það munar um minna,“ segir enn fremur.

Þeir segja enn fremur, að þessi fram­setn­ing á reikn­ingum bank­anna hafi ekki verið litin alvar­legum augum á Íslandi. „Það er líka sam­eig­in­legt í þeim málum, þar sem til hag­ræð­ingar bók­halds hefur verið gripið, að slíku er ekki aðeins beitt á einum stað heldur er allt bók­haldið meira og minna und­ir­lagt. Það gerð­ist í Enron mál­inu, Pharmalat mál­inu, Haf­skips­mál­inu, Worldcom mál­inu, BCCI mál­inu, Mattel mál­inu og svo sýn­ist enn­fremur eiga við í til­viki íslensku bank­anna 2007 en hér aðeins fjallað um einn þátt þess máls. Munurinn er þó sá að erlendis hefur verið tekið alvar­lega á slíkum brotum en það á síður við hér­lendis.

Lesa má grein­ina í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár