Samþykktu 690 íbúða byggð í Skerjafirði

Stefnt að bland­aðri byggð með hag­kvæmu hús­næði og stúd­enta­görðum auk versl­unar og þjón­ustu.

Fyrsti áfangi samþykktur
Fyrsti áfangi sam­þykktur Um er að ræða fyrsta áfanga upp­bygg­ing­ar­innar en stefnt er að 1.200 íbúða upp­bygg­ingu á svæð­inu.

Deiliskipu­lag fyrir fyrsta áfanga nýrrar byggðar í Skerja­firði var sam­þykkt í borg­ar­stjórn síð­ast­lið­inn mið­viku­dag. Um er að ræða bland­aða byggð með 690 íbúðum, leik­skólum og grunn­skólum auk versl­unar og þjón­ustu.

Íbúð­irnar verða af ýmsum stærðum og hluti þeirra fellur undir verk­efnið Hagkvæmt hús­næði, sem miðar að upp­bygg­ingu fyrir ungt fólk og kaup­endur fyrstu íbúða. Þá byggir Bjarg íbúða­fé­lag íbúðir fyrir sína félags­menn og Félags­stofnun stúd­enta einnig stúd­enta­garða.

Deiliskipu­lags­til­lagan var sam­þykkt með atkvæðum flokk­anna sem mynda meiri­hluta í borg­ar­stjórn gegn atkvæðum full­trúa minn­hlut­ans, en borg­ar­full­trúi Sós­í­alista og Katrín Atla­dóttir, borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks, sátu hjá. Í bókun meiri­hlut­ans var upp­bygg­ing­unni fagnað en full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks töldu ákvörð­un­ina ótíma­bæra vegna meðal ann­ars álita­mála er varða sam­göngur og álag á umferð auk umhverf­is­þátta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár