Björt andvíg olíuvinnslu og framlengingu sérleyfis á Drekasvæðinu

Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra er mót­fallin olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu og er einnig and­víg því að sér­leyfi til olíu­leitar verði fram­lengt. Leyf­is­veit­ingar falli þó ekki undir verk­svið ráðu­neyt­is­ins.

Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, er and­víg olíu­leit á Dreka­svæð­inu. Þá er hún einnig and­víg því að sér­leyfi til olíu­leitar verði fram­lengt eftir að það rennur út árið 2026, en segir þó að leyf­is­veit­ingar vegna slíkra leyfa falli ekki undir verk­svið umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins.

Þetta kemur fram í svari Bjartar við fyr­ir­spurn frá Hildi Knúts­dóttur, vara­þing­manni Vinstri grænna, um olíu­leit og olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu.

Hildur spurði Björtu einnig um það hvort hún teldi að olíu­vinnsla í íslenskri lög­sögu geti sam­ræmst þeirri stefnu að Íslend­ingar verði for­ystu­þjóð í lofts­lags­málum, og um það hvernig slík starf­semi félli að aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum, sem stjórn­völd hafa sagst ætla að gera.

Björt segir Ísland lengi hafa talið sig vera for­ystu­þjóð í lofts­lags­málum, einkum byggt á því að nær öll orka til raf­magns­fram­leiðslu og hit­unar komi frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum. „Nú eru blikur á lofti, þar sem spár benda til mik­illar aukn­ingar los­unar og að Ísland standi ekki að óbreyttu við skuld­bind­ingar sínar sam­kvæmt Kyoto-bók­un­inni til 2020 eða Par­ís­ar­samn­ingnum til 2030. Ráðherra telur engu að síður að Ísland geti áfram talið sig í far­ar­broddi ef metn­aður er auk­inn og meiri kraftur settur m.a. í orku­skipti í sam­göngum og sjáv­ar­út­vegi, lofts­lagsvæna nýsköpun og bind­ingu kolefnis úr and­rúms­lofti,“ segir í svari ráð­herra.

Olíu­vinnsla í íslenskri lög­sögu myndi hins vegar gjör­breyta þess­ari mynd að mati ráð­herra og sér­staða Íslands varð­andi mikla nýt­ingu end­ur­nýj­an­legra orku­gjafa hyrfi. „Ísland gæti auð­vitað eflt aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum ef olíu­vinnsla hæf­ist og nýtt til þess m.a. tekjur af vinnslu olíu. Mörg olíu­vinnslu­ríki verja miklum fjár­hæðum til lofts­lags­mála, svo sem Noregur. Það er þó ljóst að öll ásýnd Íslands í lofts­lags­málum og for­sendur í aðgerða­á­ætlun breytt­ist veru­lega með vinnslu olíu. Það væri afar erfitt að halda því fram að Íslend­ingar væru for­ystu­þjóð í lofts­lags­málum í því til­felli. Þess ber líka að geta að olíu­vinnsla á Dreka­svæð­inu fæli alltaf í sér hættu fyrir líf­ríki hafs­ins og sjáv­ar­út­veg, eins þótt afar strangar kröfur verði gerðar til umhverfis- og örygg­is­mála fyrir slíka vinnslu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár