Bjarni hefur „mjög miklar áhyggjur“ af stjórnarmyndun

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir stöð­una í íslenskum stjórn­málum miklu alvar­legri en fólk vilji almennt við­ur­kenna. Útlit sé fyrir að fjóra eða fimm flokka þurfi til að mynda rík­is­stjórn. Hann hefur miklar áhyggjur af stöð­unni.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur miklar áhyggjur af því hvernig rík­is­stjórn verður mynduð eftir kosn­ingar, miðað við stöð­una eins og hún birt­ist í skoð­ana­könn­unum, þar sem ómögu­legt gæti orðið að mynda tveggja flokka stjórn.

Þetta kom fram í máli Bjarna á fundi Félags kvenna í atvinnu­líf­inu í morgun. Þar voru full­trúar flokk­anna meðal ann­ars spurðir að því með hvaða flokkum þeir gætu hugsað sér að mynda rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum.

„Ég held að við stöndum frammi fyrir miklu alvar­legri stöðu heldur en almennt er við­ur­kennt í umræð­unni. Fólki finnst voða gaman að þess­ari stöðu. Þetta er svona sam­kvæm­is­leikur að velta fyrir sér hvernig verður þetta eig­in­lega?“ sagði Bjarni.

„Ég hef bara mjög miklar áhyggjur af þessu, það er nú bara staðan. Það er líka reynslan á þessu landi að þriggja flokka stjórnir hafa almennt ekki lifað lengi, en nú þurfum við að fara í fjóra eða fimm. Það er það sem ég hef miklar áhyggjur af. Þetta er ekki sam­kvæm­is­leikur, þetta snýst um stöð­ug­leika.“

Bjarni sagði í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV í gær­kvöldi að núver­andi rík­is­stjórn myndi ekki halda velli, þar sem að fylgi þeirra verði að öllum lík­indum ekki nægt til að mynda tveggja flokka rík­is­stjórn. Hann sagði einnig að aðstæður í stjórn­málum væru mjög óvenju­leg­ar. Fyrir honum væri alltaf fyrsti kostur að mynda tveggja flokka stjórn, mörg erfið mál komi upp á hverju kjör­tíma­bili og eftir því sem flokk­arnir í stjórn verði fleiri verði sér­sjón­ar­miðin magn­aðri. Það geti leitt til stjórn­ar­falls.

Hægt er að horfa á upp­töku af fund­inum hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár