Hafa beðið í rúman áratug eftir að eignast eigið heimili

Aðstæður fatl­aðra á hús­næð­is­mark­aði eru „ólíð­andi“ sem „ábyrg stjórn­völd ríkis og sveit­ar­fé­laga“ verða að setja í algjöran for­gang að bæta úr. Þroska­hjálp sendir stjórn­völdum tón­inn og hvetur til þess að breyt­ingum á skipu­lags­lögum verði hraðað.

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, og Unnur Helga Óttarsdóttir, formaður samtakanna
Árni Múli Jónasson, fram­kvæmda­stjóri Þroska­hjálpar, og Unnur Helga Ótt­ars­dóttir, for­maður sam­tak­anna Mynd: Aðsend

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp fagna drögum að frum­varpi um breyt­ingar á skipu­lags­lögum þar sem m.a. er að finna ákvæði er veitir sveit­ar­fé­lögum heim­ild til þess að gera kröfu um að 25 pró­sent bygg­ing­ar­magns í nýju deiliskipu­lagi verði fyrir hag­kvæmar íbúðir, félags­legar íbúðir, eða aðrar leigu­í­búðir, óháð því hvort sveit­ar­fé­lagið, ríkið eða einka­að­ili á landið sem um ræðir.

[adspot]

Í umsögn sam­tak­anna um frum­varps­drögin, sem Unnur Helga Ótt­ars­dóttir for­maður Árni Múli Jónasson fram­kvæmda­stjóri rita, eru hlut­að­eig­andi stjórn­völd og Alþingi hvött til að hraða með­ferð máls­ins þannig að frum­varpið verði sem fyrst að lögum. Það muni greiða fyrir því að „sveit­ar­fé­lög standi við laga­legar skyldur sínar til að fatlað fólk hafi tæki­færi til hús­næðis og eigin heim­ilis, án ófor­svar­an­legs dráttar“.

[links]Unnur Helga og Árni Múla benda í umsögn Þroska­hjálpar á að í lögum nr. 38/2018, um þjón­ustu við fatlað fólk með langvar­andi stuðn­ings­þarfir, er mælt fyrir um „að fatlað fólk eigi rétt á því að velja sér búsetu­stað og hvar og með hverjum það býr, til jafns við aðra“ og að „óheim­ilt sé að binda þjón­ustu við fatlað fólk því skil­yrði að það búi í til­teknu búsetu­formi“. Þá segir í bráða­birgða­á­kvæði í lög­unum að fötl­uðu fólki sem býr nú á stofn­unum eða her­bergja­sam­býlum skuli bjóð­ast aðrir búsetu­kostir.

Í skýrslu starfs­hóps um heild­ar­end­ur­skoðun laga nr. 38/2018, sem skilað var til félags- og vinnu­mark­aðs­ráð­herra síð­asta vor, kom fram að 323 fatl­aðir ein­stak­lingar væru á biðlista eftir hús­næði og 163 byggju í her­berja­sam­býlum og að sam­kvæmt því þurfi að byggja allt að 486 íbúðir til að eyða biðlistum og leggja niður her­bergja­sam­býli.

Óforsvaranlegt og ólöglegt

„Margt fólk með þroska­hömlun eða skyldar fatl­anir hefur beðið eftir íbúð, sem það á laga­legan rétt á, mjög lengi,“ bendir Þroska­hjálp á í umsögn­inni. „Dæmi eru um að fólk hafi þurft að bíða yfir ára­tug og jafn­vel lengur eftir að eign­ast eigið heim­ili. Með þess­ari ófor­svar­an­legu og ólög­legu fram­kvæmd er vegið mjög alvar­lega að marg­vís­legum mik­il­vægum mann­rétt­indum, s.s. rétt­inum til sjálf­stæðs og eðli­legs lífs, og rétt­inum til að eiga einka­líf og fjöl­skyldu­líf. Þetta er ólíð­andi ástand sem ábyrg stjórn­völd ríkis og sveit­ar­fé­laga verða að setja í algjöran for­gang að bæta úr.“

Samtökin leggja áherslu á að fram­kvæmd laga­á­kvæða um nið­ur­lagn­ingu her­bergja­sam­býla og stofn­ana, þar sem fatlað fólk býr, verði hraðað með því að ráð­ast nú þegar í stór­á­tak við bygg­ingu íbúða fyrir fatlað fólk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár