Drög að íslensku „Carlsberg-ákvæði“ komin frá innviðaráðherra

Tveir starfs­hópar um hús­næð­is­mál hafa á und­an­förnum árum mælt með að sveit­ar­fé­lög fái heim­ild til að gera kröfur um að ákveðið hlut­fall íbúða á upp­bygg­ing­ar­reitum verði hag­kvæmar íbúðir. Nú hefur inn­við­a­ráð­herra lagt fram drög um slíkar breyt­ingar.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Til stendur að inn­leiða svo­kallað „Carlsberg-ákvæði“ að danskri fyr­ir­mynd inn í íslensk skipu­lags­lög, en ákvæðið veitir sveit­ar­fé­lögum heim­ild til þess að gera kröfu um að 25 pró­sent bygg­ing­ar­magns í nýju deiliskipu­lagi verði fyrir hag­kvæmar íbúðir, félags­legar íbúðir, eða aðrar leigu­í­búðir, óháð því hvort sveit­ar­fé­lagið, ríkið eða einka­að­ili á landið sem um ræðir.

Frum­varps­drög frá Sigurði Inga Jóhanns­syni inn­við­a­ráð­herra um þetta efni hafa nú verið lögð fram í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, en til­laga um að leiða þetta dansk-ætt­aða ákvæði inn í skipu­lags­lögin kom fram í vinnu átaks­hóps um aukið fram­boð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á hús­næð­is­markaði sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra skip­aði undir lok árs 2018.

Svipaður starfs­hópur um hús­næð­is­mark­að­inn var svo settur á fót í febr­úar á þessu ári og lagði til í skýrslu sinni, sem birt var í maí, að Carlsberg-ákvæði yrði sett inn í lögin.

Í skýrslu starfs­hóps­ins sagði að með auk­inni upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis á þétt­ing­ar­reitum og landi sem er í eigu í ann­arra en sveit­ar­fé­laga þyrfti að „tryggja sveit­ar­fé­lög­unum heim­ildir varð­andi blöndun byggðar fyrir ólíka hópa þannig að þau geti upp­fyllt skyldur sínar sam­kvæmt lögum um hús­næð­is­mál“ og í því sam­bandi að „heim­ila sveit­ar­fé­lögum að skil­yrða að allt að 25% íbúða á heild­stæðum skipu­lags­reitum verði almennar íbúðir, félags­legar íbúðir eða aðrar leigu­í­búðir“.

Heimild, en ekki skylda

Laga­breyt­ingin sem lögð er til í drög­unum frá inn­við­a­ráð­herra er nokkuð ein­föld í grunn­inn og ein­ungis eitt nýtt ákvæði bæt­ist við lögin ef frum­varps­drögin ná fram að ganga. Það hljóðar svo:

„Heimild til að skil­yrða um 25 pró­sent íbúða á við­ráð­an­legu verði.

Sveit­ar­fé­lögum er heim­ilt að gera kröfu um það við gerð deiliskipu­lags að allt að 25 pró­sent nýrra íbúða bygg­inga­magns verði fyrir hag­kvæmar íbúðir, leigu­í­búðir og aðrar íbúðir sem njóta stuðn­ings ríkis og/eða sveit­ar­fé­laga.“

[adspot]

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum segir að mark­miði með mál­inu sé að „aðstoða sveit­ar­fé­lögin og hvetja þau til að skipu­leggja íbúð­ar­byggð þannig að gert sé ráð fyrir fjöl­breyttri byggð innan svæðis og stuðlað að því að lág­marki 25% af bygg­ing­ar­magni svæðis sam­kvæmt nýju deiliskipu­lagi verði fyrir hag­kvæmar íbúðir og aðrar íbúðir sem njóta ein­hvers­konar stuðn­ing stjórn­valda og er ætlað að leysa úr hús­næð­is­þörf tekju- og eigna­lægri hópa“.

Þar segir einnig að með því að heim­ila sveit­ar­fé­lögum að gera kröfu um allt að 25 pró­sent bygg­ing­ar­magns undir hag­kvæmar íbúðir á við­ráð­an­legu verði sé sveit­ar­fé­lögum gert kleift að kom­ast hjá því að semja sér­stak­lega um 25 pró­sent bygg­ing­ar­magnið, en þó er tekið fram að auð­vitað komi það ekki í veg fyrir að samið sé um enn meira eða ákveði þá lægra hlut­fall.

Góð reynsla í dönskum borgum

Í grein­ar­gerð með frum­varps­drög­unum er stutt­lega fjallað um reynslu Dana af ákvæð­inu, en það kom inn í danskan rétt árið 2015 með breyt­ingum á skipu­lags­lögum sem gerðar voru í því skyni að stuðla að bland­aðri byggð í land­inu.

„Í skýrslu danskra stjórn­valda frá 2021 um dönsku skipu­lags­lögin (Evalu­er­ing af plan­loven mv. 2021) kemur fram að reynsla af laga­breyt­ing­unni frá 2015 hafi verið jákvæð, sér­stak­lega á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­inu og í Árósum.

Þá var full­trúum Bolig og plan­styrel­sen í Danmörku ekki kunn­ugt um að komið hafi upp nokkur vanda­mál í tengslum við ákvæðið, svo sem kröfur um skaða­bætur né önnur vanda­mál,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Í umfjöllun inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins um áhrif frum­varps­ins segir að það muni fyrst og fremst hafa áhrif á sveit­ar­fé­lög og fram­kvæmd­ar­að­ila, en á allan almenn­ing til lengri tíma, „með auk­inni fjöl­breytni á fast­eigna­mark­aði, leiða til stöðu­leika á mark­að­inum og tryggja fleirum þak yfir höf­uðið á við­ráð­an­legu verði“.

Einnig segir að frum­varpið muni auð­velda sveit­ar­fé­lögum að mæta þörfum ein­stakra hópa – og að telja megi ávinn­ing af frum­varp­inu „umtals­verðan“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár