Sjálfstæðismenn með margar athugasemdir við húsnæðisfrumvörp Eyglóar

Þing­hópur Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur margt að athuga við hús­næð­is­frum­vörp Eyglóar Harð­ar­dóttur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra. Þetta segir Ragn­heiður Rík­harðs­dóttir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins við

Morg­un­blaðið í dag

. Áður hafði Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, rit­ari flokks­ins gagn­rýnt frum­vörpin í fjöl­miðlum og sagt að hún telji að ekki muni allir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins kjósa með þeim

Ragn­heiður segir að það hafi alltaf verið vitað að stefna Sjálf­stæð­is­flokks­ins í hús­næð­is­málum sé sér­eign­ar­stefna.

„

Sú stefna að það eigi að gera fólki kleift að eign­ast sínar eigin íbúðir. Við höfum rætt ýmis­legt í þá veru, eins og sér­eign­ar­sparnað og sér­stakan sparnað, og að tekið verði mið með öðrum hætti af leigu­tekjum, sem fólk hefur greitt í mörg ár, inn í greiðslu­matið. Það er ýmis­legt þar sem við höfum ekki síður viljað leggja áherslu á, en að fara í þann far­veg að beina fólki út á leigu­mark­að­inn[...]Við höfum margt við þetta að athuga. Við viljum leggj­ast yfir þetta, en það þýðir ekki að það verði ekki hægt að kom­ast að sam­komu­lagi um að hlut­irnir verði afgreiddir með einum eða öðrum hætti."

Frum­vörpin fjögur sem Eygló vill koma í gegn eru til laga voru um hús­næð­is­bætur, um hús­næð­is­sam­vinnu­fé­lögu, um breyt­ingu á húsa­leigu­lögum og um hús­næð­is­mál. Hið síð­ast­nefnda fjall­aði um stofn­styrki til félags­legs hús­næðis, sem hefur verið tryggt sam­kvæmt ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár