Læknafélagið dró umsögn um þungunarrof til baka

„Skoðanir lækna eru bæði mjög sterkar og ólíkar um þetta mál,“ segir Reynir Arn­gríms­son, for­maður Lækna­fé­lags Íslands.

Ekki var einhugur um afstöðuna sem tekin var í umsögninni um þungunarrofslöggjöfina.
Ekki var ein­hugur um afstöð­una sem tekin var í umsögn­inni um þung­un­ar­rofslög­gjöf­ina. Mynd: Af vef Læknafélags Íslands

Stjórn Lækna­fé­lags Íslands dró til baka umsögn um þung­un­ar­rofs­frum­varp Svan­dísar Svav­ars­dóttur heil­brigð­is­ráð­herra í síð­ustu viku. Í umsögn­inni hafði stjórnin lýst sig mót­fallna því að þung­un­ar­rof yrði heim­ilað til loka 22. viku með­göngu eins og gert er ráð fyrir í frum­varp­inu. Ekki var ein­hugur um umsögn­ina hjá félag­inu og var því óskað eftir því að hún yrði fjar­lægð af vef Alþingis.

Reynir Arn­gríms­sonfor­maður Lækna­fé­lags Íslands.

„Ég sendi þessa umsögn sam­kvæmt því hefð­bundna verk­lagi sem tíðkast hefur um sam­ráð við stjórn félags­ins,“ segir Reynir Arn­gríms­son, for­maður Lækna­fé­lags­ins í svari við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar um málið. „Þegar í ljós kom síðar að skoð­anir lækna eru bæði mjög sterkar og ólíkar um þetta mál bar ég þá til­lögu upp við stjórn Lækna­fé­lags Íslands, fyrr í þess­ari viku, að við myndum draga þessa umsögn til baka. Hún var sam­þykkt ein­róma og því óskuðum við eftir því við Alþingi að umsögnin yrði fjar­lægð af vef þings­ins.“

Reynir segir að stjórnin muni ræða fram­haldið undir sér­stökum dag­skrár­lið á stjórn­ar­fundi næsta mánu­dag. „Þar mun ég leggja fram til­lögu um mál­þing um þung­un­ar­rofs­frum­varpið með fram­sögum úr ýmsum áttum innan Lækna­fé­lags Íslands. Kannski mynd­ast þar grunnur fyrir sam­eig­in­lega umsögn um frum­varpið en það er samt ekk­ert ólík­legt að skoð­anir verði það skiptar innan LÍ eins og í sam­fé­lag­inu öllu að félag­inu verði erfitt eða jafn­vel ómögu­legt að senda frá sér eitt álit á þessu stóra máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár