Vilja gera jarðakaup leyfisskyld

Þingmenn Fram­sókn­ar­flokks­ins leggja til að jarða­kaup verði gerð leyf­is­skyld hér á landi í nýrri þings­á­lykt­un­ar­til­lögu. Markmið til­lög­unnar er að tryggja eign­ar­hald lands­manna á jörðum á Íslandi og skapa þannig tæki­færi til heils­árs­bú­setu í dreif­býli.

Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins og ein af flutningsmönnum tillögunnar.
Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og ein af flutn­ings­mönnum til­lög­unnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fimm þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þar sem lagt er til að rík­is­stjórnin hrindi í fram­kvæmd aðgerða­á­ætlun til styrk­ingar á lagaum­gjörð og reglum um nýt­ingu auð­linda á landi.

Þar á meðal vilja þing­menn­irnir að jarða­kaup verði gerð leyf­is­skyld hér á landi og að lög­festar verði reglur um að skil­greind tengsl við Ísland séu for­senda fyrir eign­ar­haldi á jörðum og að tak­mark­aðar verði fjöldi jarð­eigna í eigu sama aðila. Tillagan er á dag­skrá Alþingis í dag, 19. sept­em­ber.

Breiður pólitískur vilji til að takmarka jarðakaup

[links]Sig­urður Ingi Jóhanns­son, ­sam­göngu- og sveita­stjórn­ar­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, sagði í júlí síð­ast­liðnum að hann von­ast til þess að frum­varp um jarða­kaup útlend­inga hér á landi yrði til­búið snemma í haust. Hann sagði að þróun í jarða­kaupum útlend­inga hér á landi á síð­ustu árum væri alveg óvið­un­andi og það væri hans skoðun að ganga eins langt og hægt er í nýju frum­varpi.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­­sæt­is­ráð­herra, hefur jafn­framt sagt að það sé breiður póli­­tísk­ur vilji til að tak­­marka jarða­kaup auð­manna hér á landi. Að hennar mati er það skýrt að ekki eigi að líta á land eins og hverja aðra vöru eða þjón­­ustu.[adspot]

Takmörkun á jarðakaupum eitt af forgangsmálum Framsóknar

Í frétta­til­kynn­ingu frá þing­flokki Fram­sóknar segir að eitt af for­gangs­málum þing­flokks­ins á þessu þingi sé fyrr­nefnd þings­á­lykt­un­ar­til­laga um aðgerða­á­ætlun í jarða­málum. Líneik Anna Sæv­ars­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar og með­flutn­ings­menn eru Halla Signý Krist­jáns­dóttir, Silja Dögg Gunn­ars­dóttir, Willum Þór Þórsson og Þórarinn Ingi Pét­urs­son.

Í álykt­un­inni er lagt til að rík­is­stjórnin hrindi í fram­kvæmd aðgerð­ar­á­ætlun í sjö liðum, til að styrkja lagaum­gjörð og reglur um ráð­stöfun og nýt­ingu auð­linda á landi.

„Mark­miðið er að tryggja eign­ar­hald lands­manna á jörðum á Íslandi og skapa þannig tæki­færi til heils­árs­bú­setu í dreif­býli og fjöl­breyttrar sjálf­bærrar land­nýt­ingar og mat­væla­fram­leiðslu í land­inu. Tillagan fellur vel að mark­miði rík­is­stjórn­ar­innar um að setja skil­yrði um kaup á landi,“ segir í frétta­til­kynn­ing­unni.

Sami aðili geti ekki átt meira en eina jörð án reglulegrar búsetu

Í grein­ar­gerð til­lög­unnar segir að gild­andi lagaum­hverfi um jarða­kaup leiði af sér að rúm­lega 500 milljón manns geti keypt land og aðrar fast­eignir hér á landi með sömu skil­yrðum og íslenskir rík­is­borg­arar. Flutn­ings­menn til­lög­unnar telja því brýnt að settar verði reglur um að skil­greind tengsl við Ísland séu for­senda fyrir eign­ar­haldi á jörðum hér á landi enda hafi ásókn fólks sem ekki er búsett á Íslandi eftir eign­ar­haldi á jörðum auk­ist á síð­ustu árum. Þá séu dæmi um að sami aðili eigi fjölda jarða og fyr­ir­svar jarða sé óþekkt og óljóst.

Því telja þing­menn fram­sókn­ar­flokks­ins rétt að jarða­kaup verði gerð leyf­is­skyld með að fyrir augum að trygga byggð í dreif­býli og halda jörðum.

Auk þess telja þing­menn Fram­sókn­ar­flokks­ins að gerð ætti að vera krafa um að kaup­andi lands búi á Íslandi, hafi búið þar í að minnsta kosti fimm ár eða hafi starf­semi í land­inu. Þá þurfi til­gangur jarða­kaupanna einnig að vera skýr, til dæmis vegna land­bún­aðar, menn­ing­ar­verð­mæta og nátt­úru­verndar.

Jafn­framt telja þing­menn­irnir að meg­in­reglan ætti að vera að sú að sami aðili geti ekki átt meira en eina jörð án reglu­legrar búsetu. Aftur á móti geti aðili sem stundar land­búnað átt fleiri jarðir til þess að standa undir búrekstri eða annarri land­frekri starf­semi sem hann stundar á aðliggj­andi jörðum eða nágranna­jörðum.

Hér má lesa til­lög­una í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár