Edward Hujibens nýr varaformaður Vinstri grænna

Edward Hujibens er vara­bæj­ar­full­trúi á Akureyri.

Edward Hujibens er nýkjörinn varformaður Vinstri grænna.
Edward Hujibens er nýkjör­inn var­for­maður Vinstri grænna. Mynd: Volundur Jonsson

Edward Hujibens, vara­bæj­ar­full­trúi á Akureyri var í dag kjör­inn vara­for­maður Vinstri grænna á lands­fundi flokks­ins á Grand Hotel í Reykja­vík í dag.

Tveir sótt­ust eftir því að verða vara­for­menn, en auk Edwards sótt­ist Óli Hall­dórs­son, for­stöðu­maður Þekk­ing­ar­setur Þing­ey­inga, eftir kjöri.

Katrín Jak­obs­dóttir var sjálf­kjörin for­maður flokks­ins enda gaf hún ein kost á sér. Það sama má segja um Elínu Oddnýu Sig­urð­ar­dóttur sem gaf ein kost á sér sem rit­ari flokks­ins og Unu Hild­ar­dóttur sem gaf ein kost á sér sem gjald­keri.

Á morgun verða kosn­inga­á­herslur Vinstri grænna kynntar á lands­fund­inum. Alþing­is­kosn­ingar verða eftir réttar þrjár vikur, laug­ar­dag­inn 28. októ­ber. Vinstri græn mæl­ast sem stendur með lang mest fylgi allra fram­boða til Alþingis.

Einnig var kosið í stjórn Vinstri grænna. Eft­ir­far­andi gáfu kost á sér:

  • Anna Guðrún Þór­halls­dóttir
  • Bjarni Jónsson
  • Daníel E. Arnarson
  • Einar Berg­mundur Þor­gerð­ar­son Bóasar­son
  • Ingi­björg Þórð­ar­dóttir
  • Ingvar Arnarson
  • Jakob S. Jónsson
  • Margrét Pét­urs­dóttir
  • Ragnar Karl Jóhann­es­son
  • Rúnar Gíslason
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið undanfarið ár