Mynd: Mannlíf

Hvar stendur Samherjamálið?

Meintar mútu­greiðslur, skatta­snið­ganga og pen­inga­þvætti Samherja og tengdra aðila eru til rann­sóknar víða. Rann­sókn­irnar eru mis­mun­andi að umfangi og komnar mis­langt, rúmu ári eftir að Sam­herj­a­málið var fyrst opin­berað.

Í nóv­em­ber í fyrra opin­ber­uðu Kveikur, Stundin, Wikileaks og Al Jazeera hvernig við­skipta­hættir Samherja í Afríku, nánar til­tekið í Namibíu og Angóla, voru á síð­ustu árum á meðan að fyr­ir­tækið náði undir sig mjög verð­mætum hrossa­makríl­skvóta í lönd­unum. Samkvæmt umfjöll­un­inni var það gert með mútu­greiðslum til ráða­manna og ann­arra manna úr þeirra nán­asta hring. Upp­haf­lega var sagt að þær hefðu numið 1,4 millj­arði króna hið minnsta og hófust með því að reiðufé var afhent í íþrótta­töskum en tóku svo á sig fag­legri mynd og fóru fram í gegnum milli­færslur á reikn­inga í Dúbaí.

Frá því að málið var opin­berað hefur það verið til rann­sóknar víða um heim. Hér er staða þess í þeim þremur löndum sem mest er vitað um rann­sóknir á því.

Í Namibíu

Á vefnum eJUSTICE Namibia er hægt að nálg­ast grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu í málum þar sem kraf­ist er kyrr­setn­ingar á eignum Samherja sem metnar eru á nokkra millj­arða króna og kyrr­setn­ingar á eignum sex Namib­íu­manna sem sitja í gæslu­varð­haldi, og tíu félaga á þeirra vegum. Þetta er meðal ann­ars gert á grund­velli laga um varnir gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi.

Í grein­ar­gerð­inni er sex­menn­ing­unum og fimm Íslend­ing­um, undir for­ystu Þor­steins Más Bald­vins­sonar, ann­ars for­stjóra Samherja, lýst sem skipu­lögðum glæpa­hóp.

Auk þess er fjöldi manns grun­aður um að hafa framið víð­tæk hegn­ing­ar­laga­brot, meðal ann­ars með því að hafa þegið mútur í skiptum fyrir að afhenda Samherja fisk­veiði­kvóta.

Þeir sem hafa setið í gæslu­varð­haldi frá því á síð­asta ári í saka­mála­rann­sókn namibískra yfir­valda eru Bern­hard Esau fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, Sacky Shang­hala fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herra, James Hatuikulipi fyrr­ver­andi stjórn­andi rík­is­út­gerð­ar­innar Fischor og Tamson Hatuikulipi frændi hans, sem einnig er tengda­sonur Bern­hard Esau, og þeir Ricardo Gustavo, Pius Mwatelulo og Mike Nghip­unya. Flestir þeirra hafa þegar verið ákærð­ir og rétt­ar­höld yfir þeim eiga að hefj­ast í apríl 2021.

Þrír menn til við­bótar verða ákærðir í mál­inu. Þeirra á meðal er lög­fræð­ingur að nafni Maren de Klerk, sem fór til Suð­ur­-Afr­íku í upp­hafi árs og hefur verið þar síð­an. Hann fer enn huldu höfði. Hinir tveir, Namib­íu­menn­irnir Phillipus Mwapopi og Otniel Shu­undi­fonya, gáfu sig fram við spill­inga­lög­regl­una ACC í Namibíu í des­em­ber.

Engin samn­ingur um fram­sal er í gildi milli Íslands og Namibíu og engar fréttir hafa verið fluttar af því að stjórn­endur Samherja hafi verið yfir­heyrðir í Namibíu.

Um tvö aðskilin mál að ræða. Ann­ars vegar er um að ræða Fishcor-­málið og hins vegar Fis­hrot-­mál­ið.

Fishcor-mál­ið lýtur að mis­notkun stjórn­mála­manna og ann­arra ákærðra á aðstöðu sinni, til þess að hagn­ast sjálfir á úthlutun afla­heim­ilda með því að þiggja mút­ur.

Í Fis­hrot-­mál­inu er hins vegar sér­stak­lega til umfjöll­unar sá vafa­sami milli­ríkja­samn­ingur sem gerður var á milli Namibíu og Angóla um hrossa­mak­ríl­kvóta. Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu segir samn­ing­inn svika­myllu sem sett hafi verið upp með virkri þátt­töku Sam­herja. Í því máli hefur rík­is­sak­sókn­ari Namibíu sagt ætlan sína að ákæra félög tengd Sam­herja og stjórn­endur þeirra.

Í frétt namibíska fjöl­mið­ils­ins Infor­m­anté um miðjan des­em­ber kom fram að sak­sókn­ari hafi sagt fyrir dómi að rík­is­sak­sókn­ar­i Namibíu hafi í hyggju að slá mál­unum tveimur saman í eitt.

Á Íslandi

Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara á Íslandi rann­sakar atvik sem tengj­ast Samherja hf., Samherja Holding ehf. og félögum í sam­stæðu Samherja, einkum í tengslum við starf­semi hennar í Namibíu og Angóla, frá árinu 2011 til dags­ins í dag.

Til rann­sóknar eru meintar mútu­greiðslur starfs­manna og fyr­ir­svars­manna Samherja og tengdra félaga til opin­berra starfs­manna í Namibíu og Angóla eða til manna sem gátu haft áhrif á ákvörð­un­ar­töku slíkra manna. Grunur er um að mútu­greiðslur hafi runnið til félaga í eigu þess­ara manna í tengslum við úthlutun fisk­veiði­kvóta í Namibíu og Angóla. Auk meintra mútu­brota er uppi grunur um að ein­stak­ling­arnir sem eru til rann­sóknar hafi gerst sekir um pen­inga­þvætti og auðg­un­ar­brot. Þá eru mál Samherja og fyr­ir­svars­manna sam­stæð­unnar til skoð­unar hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra vegna gruns um að skatta­snið­ganga hafi átt sér stað í tengslum við atferli Samherja í Afríku.

Kjarninn greindi frá því í byrjun sept­em­ber að sex ein­stak­lingar væru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara. Þeir voru meðal ann­ars kall­aðir til yfir­heyrslu vegna máls­ins í sumar.

Embætti héraðssaksóknara kallaði þá sem eru með réttarstöðu sakbornings í málinu til yfirheyrslu í sumar.
Embætti hér­aðs­sak­sókn­ara kall­aði þá sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í mál­inu til yfir­heyrslu í sumar.

Þor­steinn Már Bald­vins­son er á meðal þeirra sex ein­stak­linga sem eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara. Hann hefur lýst sig sak­lausan af þeim brotum sem hann er grun­aður um að hafa tekið þátt í að fremja.

Hinir fimm sem kall­aðir hafa verið inn til til yfir­heyrslu og fengið rétt­ar­stöðu sak­born­ings við hana eru Ingvar Júl­í­us­son, fjár­mála­stjóri Sam­herja á Kýp­ur, Arna McClure, yfir­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Aðal­steinn Helga­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namib­íu, og Jóhannes Stef­áns­son. RÚV greindi frá.

Jóhannes var fram­kvæmda­stjóri Sam­herja í Namibíu um tíma en lék lyk­il­hlut­verk í því að upp­ljóstra um meintar mútu­greiðsl­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu Sam­herja í umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um málið sem birt­ist í nóv­em­ber í fyrra.

Í Noregi

Norska efna­hags­brota­deildin Økokrim er með milli­færslur sem greiddar voru út af reikn­ingum Samherja hjá norska bank­anum DNB, sem er að hluta í eigu norska rík­is­ins, og inn á reikn­ing í Dúbaí, í eigu þáver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerðar Namibíu, til rann­sóknar.

Økokrim var að rann­saka hvort að DNB hefði tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi vegna hlut­verks hans í því sem „virð­ist vera mútu­greiðslur sem greiddar voru af banka­reikn­ingum félaga Samherja hjá DNB,“ sam­kvæmt því sem fram kemur í bréfi Økokrim sem finna má í skjöl­unum, og er dag­sett 29. apríl 2020.

Økokrim var að rann­saka hvort að DNB hefði tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi vegna hlut­verks hans í því sem „virð­ist vera mútu­greiðslur sem greiddar voru af banka­reikn­ingum félaga Samherja hjá DNB,“ sam­kvæmt því sem fram kemur í bréfi Økokrim sem finna má í skjöl­unum, og er dag­sett 29. apríl 2020.

Rann­sóknin snýr enn sem komið er að uppi­stöðu að því að kom­ast til botns í því af hverju DNB til­kynnti ekki greiðslur til umrædds félags, Tunda­vala Invest, til norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins sem grun­sam­legrar milli­færslur.

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans fyrr í des­em­ber­mán­uði, í tengslum við umfjöllun um rann­sókn norskra stjórn­valda, sagði Björgólfur Jóhanns­son, annar for­stjóri Samherja, að fyr­ir­tækið neiti því alfarið að félög tengd Samherja hafi greitt mútur eða aðrar óeðli­legar greiðslur. „Hvort sem það er í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu eða ann­ars staðar. Við lítum svo á að greiðslur, í tengslum við rekst­ur­inn í Namibíu, séu lög­mætar frá sjón­ar­hóli félaga sem tengj­ast Samherja. Gildir það um allar greiðslur til félags­ins Tunda­vala Invest.“

DNB lauk við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja í lok síð­asta árs vegna þess að stjórn­endur dótt­ur­fé­laga sjáv­ar­út­vegs­ris­ans, sem áttu reikn­inga í bank­anum, svör­uðu ekki kröfu bank­ans um frek­ari upp­lýs­ingar um starf­semi þess, milli­færslur sem það fram­kvæmdi og tengda aðila, með full­nægj­andi hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2020

Pistill

Sandra B. Franks

Far­ald­ur­inn yfir­skyggði allt

Á við­burða­ríku ári sem nú er liðið yfir­skyggði Covid-19 far­ald­ur­inn allt annað. Hann reyndi veru­lega á starfs­þrek heil­brigð­is­starfs­manna og ekki síst okkur sjúkra­liða. Mörg okkar voru í fram­lín­unni. Aðrir sjúkra­liðar stóðu vakt­ina í störfum sem ekki voru síður mik­il­væg. Ég er mjög stolt af því hve frá­bær­lega sjúkra­liða­stéttin hefur staðið sig í Covid far­aldr­inum. Hann hefur svo sann­ar­lega beint athygl­inni...

Mest lesið undanfarið ár