OECD hefur alvarlegar áhyggjur af stöðu mútubrotamála á Íslandi

Í nýrri skýrslu OECD um mútu­brot í alþjóða­við­skiptum segir að Íslend­ingar hafi haft rang­hug­myndir um að íslenskir ein­stak­lingar hafi ekki tekið þátt í alþjóð­legum mútu­greiðslum. Sam­herj­a­málið hafi splundrað þeim hug­myndum.

Íslend­ingar hafa haft þá hug­mynd að íslenskir ein­stak­lingar taki ekki þátt í mútu­greiðslum á erlendum vett­vangi. Vegna þess að sú hug­mynd er rót­föst þá hefur skort á vit­und­ar­vakn­ingu, for­virkar rann­sóknir og eft­ir­lit með mögu­legum mútu­greiðslum. Yfir­stand­andi rann­sókn á við­skipta­háttum Samherja í Namibíu og víðar, sem fer fram í að minnsta kosti þremur löndum, hefur splundrað þess­ari hug­mynd (e. shatt­ered this perception).

Þetta kemur fram í nið­ur­stöðukafla nýrrar skýrslu starfs­hóps Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) um mútu­brot í alþjóða­við­skiptum þar sem fjallað er sér­stak­lega um getu og hæfni Íslands til að takast á við slík brot. Skýrslan var birt í morgun.

Í henni segir að helstu rann­sak­end­urnir sem unnu að gerð skýrsl­unnar hafi „alvar­legar áhyggjur“ af því að á þeim rúmu 20 árum sem liðin eru frá því að Ísland gerð­ist aðili að samn­ingi OECD um bar­áttu gegn mútu­greiðslum til erlendra opin­berra starfs­manna í alþjóð­legum við­skiptum hafi Ísland enn ekki leitt eitt ein­asta mál sem snú­ist um mútu­greiðslur á alþjóð­legum vett­vangi, og hefur verið til­kynnt til yfir­valda, til lykta. „Ásak­an­irnar eru ekki metnar né, ef við á, rann­sak­aðar. Skýrslu­höf­undar mæl­ast til þess að Ísland tryggi að allar ásak­anir um alþjóð­legar mútu­greiðslur (þeirra á meðal þær sem starfs­hóp­ur­inn hefur vísað til íslenskra stjórn­valda) séu metnar af hæfu yfir­valdi og þar sem við á sé rann­sókn hafin.“

Skortur á frumkvæði

OECD telur mik­il­vægt að Ísland tryggi nægj­an­lega fjár­muni til að tryggja alvar­lega rann­sókn á mögu­legum mútu­greiðslum íslenskra ein­stak­linga sem stunda alþjóða­við­skipti og, ef við á, sak­sókn gegn þeim aðilum. Þetta þurfi Ísland að gera til að standa við þær skuld­bind­ingar sem ríkið und­ir­gengst með því að ger­ast aðili að samn­ingi OECD um bar­áttu gegn mútu­greiðslum til erlendra opin­berra starfs­manna í alþjóð­legum við­skiptum.

Starfs­hóp­ur­inn hefur líka áhyggjur af frum­kvæð­is­vinnu íslenskra lög­gæslu­yf­ir­valda í mútu­málum og bendir í því sam­hengi á að ein­ungis eitt mál varð­andi erlendar mútu­greiðslur sé í rann­sókn þrátt fyrir að yfir­völdum hafi borist alls fjórar ábend­ingar sem snerta íslensk fyr­ir­tæki eða ein­stak­linga.

Því telur starfs­hóp­ur­inn að Ísland þurfi að grípa til ráð­staf­ana við að sýna frum­kvæði í rann­sóknum og eft­ir­liti á mögu­legum mútum. Samhliða þarf að ráð­ast í ákveðnar breyt­ingar á lagaum­hverfi í mála­flokknum, auka þjálfun þeirra sem sinna eft­ir­liti og rann­sóknum með mútu­greiðslum og stuðla að vit­und­ar­vakn­ingu í opin­bera og einka­geir­anum um mútu­brot.

Í frétta­til­kynn­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins vegna birt­ingu skýrsl­unnar segir að í henni lýsi starfs­hóp­ur­inn „áhyggjum yfir því að íslensk yfir­völd hafa enn ekki lokið rann­sókn á slíku máli. Er því nokkuð ítar­lega fjallað um meint brot Samherja í tengslum við úthlutun veiði­heim­ilda í Namibíu, enda er það fyrsta mál af þessu tagi sem rann­sakað er hér á landi.“

Þar sé einnig fjallað um þann árangur sem náðst hafi hjá íslenskum stjórn­völdum. „Ber þar helst að nefna nýlega sam­þykkt lög um vernd upp­ljóstr­ara, efl­ingu skrif­stofu fjár­mála­grein­inga og efna­hags­brota­deildar hér­aðs­sak­sókn­ara. Einnig má nefna ýmsar laga­breyt­ingar sem snúa t.d. að hækkun refs­inga fyrir mútu­brot og breyt­ingar á lögum um með­ferð saka­mála sem heim­ila nú beit­ingu allra þving­unar­úr­ræða og sér­stakra rann­sókn­ar­að­gerða við rann­sóknir þess­ara brota.“

Mikið fjallað um Samherjamálið

Líkt og segir í til­kynn­ingu dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins er Sam­herj­a­málið, sem snýst um meintar mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti Samherja í tengslum við hátt­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu, til umfangs­mik­illar umfjöll­unar skýrsl­unni.

Málefni Samherja eru nú til rann­sóknar í að minnsta kosti þremur löndum: Namibíu, Íslandi og Noregi. Sex manns sitja í gæslu­varð­haldi í Namibíu vegna máls­ins og sex Íslend­ingar eru með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í rann­sókn hér­aðs­sak­sókn­ara á mál­inu á Íslandi. Á meðal þeirra er Þor­steinn Már Bald­vins­son, annar for­stjóra Samherja. 

Nýjustu vend­ingar í mál­inu voru þær að Kjarninn greindi frá því um liðna helgi að norski bank­inn DNB sem er að hluta til í eiga norska rík­is­ins, lauk við­skipta­sam­bandi sínu við Samherja í lok síð­asta árs vegna þess að stjórn­endur dótt­ur­fé­laga sjáv­ar­út­vegs­ris­ans, sem áttu reikn­inga í bank­anum, svör­uðu ekki kröfu bank­ans um frek­ari upp­lýs­ingar um starf­semi þess, milli­færslur sem það fram­kvæmdi og tengda aðila, með full­nægj­andi hætti.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Þá er norska efna­hags­brota­deildin Økokrim er með milli­færslur sem greiddar voru út af reikn­ingum Samherja hjá DNB og inn á reikn­ing í Dúbaí, í eigu þáver­andi stjórn­ar­for­manns rík­is­út­gerðar Namibíu, til rann­sóknar. Und­ir­liggj­andi í þeirri rann­sókn er hvort að DNB hafi tekið þátt í glæp­sam­legu athæfi með því að til­kynna greiðsl­urnar ekki til norska fjár­mála­eft­ir­lits­ins.

Umræddar greiðslur eru taldar vera mútu­greiðslur sem greiddar voru til að tryggja Samherja hrossa­makríl­kvóta í Namibíu.

Í nýlega birtri grein­ar­gerð rík­is­sak­sókn­ara Namibíu í málum þar sem kraf­ist er kyrr­setn­ingar á eignum Samherja sem metnar eru á nokkra millj­arða króna og kyrr­setn­ingar á eignum þeirra sex Namib­íu­manna sem sitja í gæslu­varð­haldi og tíu félaga á þeirra vegum, kemur fram að kyrr­setn­ing­ar­innar sé meðal ananrs kraf­ist á grund­velli laga um varnir gegn skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Í grein­ar­gerð­inni er sex­menn­ing­unum og fimm Íslend­ing­um, undir for­ystu Þor­steins Más, lýst sem skipu­lögðum glæpa­hóp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mútur

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Upp­skrift að því að drepa umræð­una með börnum

Á þriðju­dag voru ætl­aðar mútu­greiðslur, skatt­svik og pen­inga­þvætt­is­til­burðir Samherja opin­beraðir. Líkt og venja er var lítið um varnir dag­inn eftir. Gögnin sem umfjöll­unin byggði á, og trú­verð­ug­leiki upp­ljóstr­ar­ans sem reyndi ekki með neinum hætti að breiða yfir sinn þátt í mál­inu, var enda yfir­þyrm­andi. Réttlát reiði kraum­aði í sam­fé­lag­inu og hvert rann­sókn­aremb­ætti á fætur öðru, í hverju land­inu á fætur...

Mest lesið undanfarið ár