Hagnaður af íþróttaviðburðum á vegum ÍBR rúmar 14 milljónir

Hagnaður af fimm íþrótta­við­burðum árið 2016 á vegum Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur var rúmar 14 millj­ónir. Kjarninn kann­aði þátt­töku­gjöld í tveimur af þessum við­burðum og óskaði eftir svörum í hvað hagn­að­ur­inn færi.

Hlaup njóta sívax­andi vin­sælda hjá lands­mönnum og hefur til að mynda þátt­taka í mara­þonum hér á landi auk­ist síð­ast­liðin ár. Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur sér um sex stóra íþrótta­við­burði á Íslandi: Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka í ágúst, Lauga­vegs­hlaupið í júlí, WOW Tour of Reykja­vik og Mið­næt­ur­hlaup Suzuki í júní, WOW Northern Lights Run í febr­úar og WOW Reykja­vik International Games í jan­úar.

Kjarninn skoð­aði þátt­töku­gjald hjá tveimur af þessum vin­sælu hlaupum og hvað fælist í því gjaldi, sem og hverjir kostn­að­ar­liðir eru hjá Íþrótta­banda­lagi Reykja­víkur varð­andi þá íþrótta­við­burði sem það sér um.

Hagnaði skipt í tvennt

Heild­ar­kostn­aður við­burð­anna fyrir utan laun var 86.974.000 krónur fyrir árið 2016, segir í svari ÍBR við fyr­ir­spurn Kjarnans og var hagn­aður af við­burð­unum rúmar 14 millj­ónir.

„Hér er miðað við árs­reikn­ing árið 2016 en það er síð­asti sam­þykkti árs­reikn­ingur ÍBR. Árs­reikn­ingur 2017 hefur verið kynntur á for­manna­fundi og verður lagður fyrir til sam­þykktar á þingi í ÍBR í byrjun næsta árs ásamt árs­reikn­ingi 2018. Þess ber jafn­framt að geta að fyrsta Norð­ur­ljósa­hlaupið fór fram í jan­úar 2017 og er því ekki inni í þessum tölum,“ segir í svar­inu.

Jafn­framt kemur fram að hagn­aði síð­ustu ára hafi verið skipt í tvennt. Helm­ingur hafi verið settur í að byggja upp hlaupin svo sem með kaupum á bún­aði og/eða með þróun og hinn helm­ing­ur­inn not­aður til að styðja starf íþrótta­fé­lag­anna í Reykja­vík í gegnum tvo sjóði sem aðild­ar­fé­lögin geta sótt um styrki í, Verk­efna­sjóð ÍBR og Afreks­sjóð ÍBR.

Áætlaður launa­kostn­aður vegna við­burða var 66,4 millj­ónir króna. Í svar­inu segir að áætl­aður fjöldi stöðu­gilda vegna við­burða ÍBR sé sjö en föst stöðu­gildi á skrif­stofu ÍBR átta. Yfir sum­arið bæt­ist við starfs­menn sem vinna við við­burði. Heild­ar­fjöldi stöðu­gilda er þrettán, sam­kvæmt ÍBR.

Hvað kostar að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu?

Til þess að fá að taka þátt í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu þarf ein­stak­lingur að borga þátt­töku­gjald. Í for­skrán­ingu kostar 2.900 krónur að hlaupa 3 kíló­metra, 6.500 krónur 10 kíló­metra, 7.900 krónur hálf­mara­þon og 12.900 krónur mara­þon.

Á vef­síðu mara­þons­ins stendur að inni­falið í þátt­töku­gjöldum Reykja­vík­ur­mara­þons Íslands­banka sé meðal ann­ars rás­númer, leiga á tíma­tökuflögu og tíma­taka í keppn­is­vega­lengdum, þátt­töku­verð­laun, sund­ferð í ein­hverja af sund­laugum Reykja­víkur, drykkir frá Powerade í marki og á drykkj­ar­stöðvum.

Enn fremur stendur að ÍTR bjóði öllum þátt­tak­endum í sund í sund­laugum Reykja­víkur á hlaupa­dag­inn eða dag­inn eftir. Sér­stakur aðgöngu­miði fylgi hlaupa­gögnum sem þurfi að afhenda í sund­laug­unum.

Þátt­tak­endum gefst einnig færi á að velja sér bol í boði hlaups­ins á skrán­ing­ar­há­tíð­inni á meðan birgðir end­ast.

Þátttökugjald tæpar 50.000 krónur

Lauga­vegs­hlaupið er 55 kíló­metra langt utan­vega­hlaup sem haldið verður í 22. sinn þann 14. júlí næst­kom­andi en Lauga­veg­ur­inn tengir saman Land­manna­laugar og Þórsmörk á sunn­an­verðu hálendi Íslands. Þátt­töku­gjaldið er heldur hærra en í Reykja­vík­ur­mara­þon­inu. Skráning í Lauga­vegs­hlaupið er frá 12. jan­úar og til 30.júní. Þann 28. mars hækkar þátt­töku­gjaldið úr 35.200 krónum í 46.800 krónur.

Samkvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu hlaups­ins er inni­falið í þátt­töku­gjald­inu bolur frá Cintamani, brautar- og örygg­is­gæsla, drykkir á drykkj­ar­stöðvum í Hrafn­tinnu­skeri, Álfta­vatni, Emstrum, Ljósá og í Húsadal, sal­ern­is­að­staða í Hraun­eyjum, Land­manna­laugum, Hrafn­tinnu­skeri, Álfta­vatni, Emstrum og Húsadal, flutn­ingur á far­angri í Blá­fjalla­kvísl og í Húsadal, þátt­töku­verð­laun, sig­ur­verð­laun, ald­urs­flokka­verð­laun, sveita­verð­laun og sturtu­að­staða í Húsadal ásamt húsa­skjóli í tjald­búðum hlaups­ins til að mat­ast og hafa fata­skipti, tíma­taka og númer. Einnig er læknir og hjúkr­un­ar­fólk til staðar ef á þarf að halda í Húsadal.

Rútu­ferðir frá Reykja­vík í Land­manna­laugar og til Reykja­víkur frá Þórsmörk, morg­un­verður í Hraun­eyjum og heit mál­tíð að hlaupi loknu eru ekki inni­falin í þátt­töku­gjald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár