Reykjavíkurmaraþoninu aflýst

Skipu­leggj­endur Reykja­vík­ur­mara­þons Íslands­banka segja ekki stefna í nægi­lega miklar til­slak­anir á fjölda­tak­mörk­unum til að hægt verði að halda eins og til stóð þann 18. sept­em­ber næst­kom­andi.

Maraþonið átti að fara fram um komandi helgi, en var síðan frestað til 18. september. Nú hefur því verið aflýst.
Mara­þonið átti að fara fram um kom­andi helgi, en var síðan frestað til 18. sept­em­ber. Nú hefur því verið aflýst. Mynd: www.rmi.is

Reykja­vík­ur­mara­þoni Íslands­banka hefur verið aflýst og mun það því ekki fara fram 18. sept­em­ber eins og áður hafði verið til­kynnt. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Íþrótta­banda­lags Reykja­víkur til þátt­tak­enda í dag.

„Á síð­ustu vikum og mán­uðum hefur Íþrótta­banda­lag Reykja­víkur leitað allra leiða til að halda Reykja­vík­ur­mara­þon Íslands­banka 2021 í miðjum heims­far­aldri. Ákveðið var að fresta hlaup­inu fyrst um sinn, með von um að ástandið myndi breyt­ast til hins betra á næstu vikum, en það virð­ist ekki stefna í nægar til­slak­anir fyrir svona stóran við­burð. Við reyndum allt sem við gátum, en sjáum því miður ekki mögu­leika á að halda hlaupið, ástæð­urnar eru margar og ólíkar, sú stærsta er þó fjölda­tak­mark­anir,“ segir í til­kynn­ingu.

[adspot]

Aðstand­endur hlaups­ins segja að álagið á sam­fé­lagið, sem og heil­brigð­is­kerfið hafi verið mikið og að mikil óvissa sé ennþá um fram­haldið. „Eftir sam­töl við heil­brigð­is­ráðu­neytið, Almanna­varnir, lög­regl­una, slökkvi­liðið, Reykja­vík­ur­borg og skóla- og íþrótta­sam­fé­lagið þá viljum við ekki taka þá áhættu að valda auknu álagi á þessa aðila með því að halda hlaupið í ár,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Endurgreitt með gjafabréfi

Þúsundir þátt­tak­enda hugð­ust hlaupa Reykja­vík­ur­mara­þonið, sem upp­haf­lega átti að fara fram 21. ágúst eða næst­kom­andi laug­ar­dag. Þar á meðal voru um tvö­þús­und erlendir hlauparar sem ætl­uðu að leggja leið sína til lands­ins til þess að taka þátt.

Þátt­tak­endum verður end­ur­greitt með gjafa­bréfi, sem hægt verður að nota í við­burði ÍBR næsta árið, sam­kvæmt því sem fram kemur í til­kynn­ing­unni til hlaupara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár