Eftir Morgunblaðsviðtal við Harald var mælirinn fullur

Lög­reglu­stjórar van­treysta Haraldi Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra og vilja hann burt úr emb­ætti.

Átta af níu lög­reglu­stjórum í land­inu van­treysta Haraldi Johann­es­sen rík­is­lög­reglu­stjóra og vilja hann burt úr emb­ætti, en kornið sem fyllti mæl­inn var við­tal sem Haraldur veitti Morg­un­blað­inu, þar sem hann sagði óánægju innan lög­regl­unnar meðal ann­ars mega rekja til þess að hann væri að taka á spill­ingu innan lög­regl­unnar.

Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, en Snorri Magn­ús­son, for­maður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, sagði í við­tali við Stöð 2 að hann sæi ekki hvernig Haraldur gæti setið áfram sem rík­is­lög­reglu­stjóri í ljósi almenns van­trausts í garð hans og emb­ætt­is­ins.

Eini lög­reglu­stjór­inn sem ekki tók þátt í yfir­lýs­ing­unni var Ólafur Helgi Kjart­ans­son, lög­reglu­stjóri á Suð­ur­nesjum.

Úlfar Lúð­víks­son, for­maður Lög­reglu­stjóra­fé­lags­ins, sagði í við­tali við Vísi í dag að innan sér­sveit­ar­innar væri einnig megn óánægja með Harald Johann­es­sen sem rík­is­lög­reglu­stjora.

Har­ald­ur sagði í við­tali við Morg­un­blaðið á dög­unum að það væri verið að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­færslum og róg­burði um hann.

Þeir sem séu að gera það séu lög­reglu­menn sem telji sig eiga harma að hefna gegn hon­um, meðal ann­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­ust eft­ir.

Ef til starfs­loka hans komi kalli það á enn ít­­ar­­legri um­­fjöll­un af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Þá nefndi hann einnig í við­tal­inu að emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra hefði beitt sér gegn spill­ingu, og það hefði valdið óánægju hjá þeim sem henni tengd­ust.

Haraldur sagði meðal ann­ars í við­tal­inu að „sví­v­irði­leg­um aðferðum [sé beitt] í valda­tafli, hags­muna­­gæslu og póli­­tík“ og að of stór­ hluta af fjár­­mun­um til lög­­regl­unn­ar á Íslandi renna í „há­timbraða yf­ir­­manna­­bygg­ing­u“. Því þurfi að ráð­ast í sam­ein­ingu lög­­­reglu­emb­ætta.

Van­trausti lög­reglu­stjóra hefur nú verið komið inn á borð Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur, dóms­mála­ráð­herra, og þá hefur Rík­is­end­ur­skoðun boða stjórn­sýslu­út­tekt á emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Eitt af því sem hefur valdið óánægju hjá lög­reglu­emb­ættum er hvernig staðið hefur verið að fata­málum lög­reglu og einnig bíla­málum. Illa hafi gengi að end­ur­nýja þessi mál og aðstaðan sé óboð­leg, að mati lög­reglu­stjóra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár