Mesti hagvöxtur í fjögur ár í Bandaríkjunum

Lands­fram­leiðsla Banda­ríkj­anna hefur vaxið um 4,1 % á síð­ustu tólf mán­uðum, sam­kvæmt nýjum árs­fjórð­ungs­tölum.

Donald Trump Bandaríkjaforseti
Donald Trump Banda­ríkja­for­seti Mynd: EPA

Hag­vöxt­ur­inn á árs­grund­velli í Banda­ríkj­unum náði 4,1 pró­senti á öðrum árs­fjórð­ungi og hefur ekki verið meiri þar í landi í fjögur ár. Vöxt­ur­inn er drif­inn áfram af einka­neyslu, en sér­fræð­ingar spá því að hann muni minnka á næstu árs­fjórð­ungum. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg.

Samkvæmt frétt­inni jókst einka­neysla um fjögur pró­sent auk þess sem fjár­fest­ingar utan fast­eigna juk­ust um 7,3 pró­sent á árs­fjórð­ungnum. Einnig jókst útflutn­ing­ur­inn frá land­inu tölu­vert, en Bloomberg segir aukn­ing­una meðal ann­ars vera vegna mik­illar aukn­ingar í útflutn­ingi soja­bauna rétt fyrir tolla­á­lagn­ingu frá Evr­ópu­sam­band­inu. Alls var fjórð­ungur hag­vaxt­ar­ins rak­inn til auk­ins útflutn­ings á tíma­bil­inu. [adspot]

Mikið gekk á á umræddu tíma­bili í efna­hags­lífi Banda­ríkj­anna, en rík­is­stjórn lands­ins, með for­set­ann Donald Trump í far­ar­broddi, stóðu meðal ann­ars að mestu skatta­lækkun margra ára­tuga til fyr­ir­tækja og auð­ugra í land­inu. Einnig hratt rík­is­stjórnin af stað við­skipta­stríði gegn Evr­ópu­sam­band­inu, Rúss­landi, Kanada og Kína, en Kjarninn greindi frá nýtil­komnum samn­inga­við­ræðum milli Banda­ríkj­anna og ESB í þeim málum. Tolla­stríðið milli við­skipta­ríkja Banda­ríkj­anna virð­ast hins vegar ekki hafa haft áber­andi slæm áhrif á efna­hag­inn, þar sem hag­vaxt­ar­tölur lands­ins hafa ekki verið jafn­háar síðan árið 2014.

Sér­fræð­ingar frá Bloomberg spá hins vegar nokk­urri kólnun í hag­kerfi Banda­ríkj­anna í náinni fram­tíð. Vænt­an­legar eru vaxta­hækk­anir frá seðla­banka lands­ins, auk þess sem áhrif skatta­lækk­an­anna gætu farið að dvína og enn sé hætta á frek­ari tolla­lagn­ingu hjá helstu við­skipta­þjóðum Banda­ríkj­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Trump

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár