Mynd: Jakob Jakobsson arkitekt

Fólk trúir að það geti haft áhrif á sitt nánasta nágrenni

Almenningur vill láta sig skipulagsmál varða, en mörgum þykja þau flókin og óaðgengileg. Fagfólk telur litla háværa hópa stundum hafa of mikil áhrif. Kjarninn ræðir samráð í skipulags­málum við Ásdísi Hlökk Theodórs­dóttur forstjóra Skipulags­stofnunar.

Samráð í skipulags­málum hefur verið nokkuð ofarlega á baugi í samfélags­umræðunni upp á síðkastið. Í Reykja­víkurborg stendur nú yfir samráðs­ferli um tillögu að hverfis­skipulagi í Bústaða­hverfi, sem hefur leitt til heitra umræðna. Í Kópavogi hefur síðan verið stofnað sérstakt félag bæjarbúa sem segja bæinn fara með offorsi fram við skipulagningu nýrrar íbúða­byggðar í Hamraborg og raunar víðar.

Af þessum dæmum má ráða að margir láti sig nærumhverfi sitt varða og reyni að hafa áhrif á það með þeim leiðum sem til þess eru færar, en einungis lítill hluti almennings telur sig þó hafa þekkingu á því hvernig samráð við almenning um skipulag og umhverfismat framkvæmda fer fram, samkvæmt nýlegri könnun, sem Félags­vísinda­stofnun Háskóla Íslands framkvæmdi fyrir Skipulags­stofnun.

Í úttekt sem Félags­vísinda­stofnun gerði um þetta efni kom einnig fram að fagfólki og hagsmuna­aðilum í skipulags­geiranum finnst það almennt skipta mjög miklu máli að gefa almenningi kost á að koma á framfæri athuga­semdum og hugmyndum áður en ákvarðanir eru teknar um skipulag og framkvæmdir.

Tæplega 70 prósent þeirra fagaðila sem svöruðu spurninga­lista sögðu hins vegar að þeir teldu erfitt fyrir almenning að skilja gögn sem eru lögð fram við skipulags­breytingar og umhverfismat framkvæmda.

Í frekari viðtölum sem tekin voru við fagaðila í úttekt Félags­vísinda­stofnunar komu þau viðhorf fram að ef til vill þyrfti að eiga sér þýðing efnis sem varðar skipulags yfir á íslenskt „mannamál“, samhliða þýðingum yfir á önnur tungumál en íslensku fyrir þær tugþúsundir innflytjenda sem búa á Íslandi.

Ásdís Hlökk Theodórs­dóttir forstjóri Skipulags­stofnunar segir við Kjarnann að það sé viðvarandi verkefni hjá þeim sem standa að skipulags­gerð og samráði við almenning að átta sig á því hvernig best verði náð til fólks, með hvaða hætti og á hvaða vettvangi. „Þetta er sífellt viðfangs­efni, sem og hvernig gögn eru sem skýrast og best sett fram, þannig að þau séu áhugaverð og skiljanleg hverjum sem er,“ segir Ásdís Hlökk í samtali við blaðamann.

Hún segir að það sé algjör lykil­þáttur í skipulags­vinnu sveitar­félaga að hagsmuna­aðilar og íbúar hafi aðkomu að undir­búningi þeirrar byggða­mótunar sem fer fram, bæði vegna stað­þekkingar sem þeir búi yfir og hugmyndum um hvernig hlutirnir eigi að vera – og svo auðvitað líka svo þeir geti varið sína hagsmuni.

Ásdís Hlökk segir það hafa komið skýrt fram í niður­stöðum Félags­vísinda­stofnunar að þrátt fyrir að stór hluti fólks telji sig hafa takmarkaða þekkingu á því hvernig samráð um skipulags­verkefni fari fram, hafi fólk trú á þeim kerfum sem eru til staðar, en fáir svarendur höfðu þó tekið þátt í samráði.

„Það telur að rödd þeirri eigi að geta heyrst og eigi að geta haft áhrif. Það er áberandi þegar það er spurt um skipulag í þeirra nærumhverfi. Fólk greini­lega hefur tiltrú á að það eigi að geta og geti haft áhrif. En hjá fæstum aðspurðum hefur reynt á það,“ segir Ásdís Hlökk.

Áskorun nútímans, segir hún, er að finna heppilegasta vettvanginn til þess að ná beint til fólks. Upplýsingar um skipulags­áætlanir og -tillögur eru birtar til dæmis á vef Skipulags­stofnunar og svo á vefsíðum allra sveitar­félaga landsins, en það er ekki víst að slíkar auglýsingar nái augum margra.

„Þetta var að mörgu leyti svo miklu auðveldara hér áður fyrr, þegar það var ein sjónvarpsstöð og fjögur flokks­málgögn sem komu út daglega. Eitthvert þeirra rataði inn á öll heimili í landinu, mátti gefa sér, og var flett. En núna er þetta flókið, hvar er vettvangurinn þar sem þú nærð eyrum fólks og augum og athygli?“ segir Ásdís Hlökk.

Hún segir að vissulega séu skipulagsmál flókin í fram­setningu. „Það er hugtaka­heimur þarna sem fólk hefur ekki á takteinunum,“ segir forstjórinn og bætir við að það þurfi að vera mikið af laga­tilvísunum í formlegum auglýsingum um skipulags­tillögur „sem virka ekki mjög hvetjandi eða aðlaðandi fyrir hinn almenna borgara.“

Þeir sem setji fram skipulags­tillögur í auglýsingu geti gætt þess að hafa slíkt ekki í forgrunni, heldur fyrst og fremst það að vekja athygli á því um hvaða stað tillagan fjallar og hvað hún felur í sér. „Og hvað er verið að bjóða fólki til leiks að gera, er verið að bjóða ykkur að kynna ykkur þetta, eða til samtals og einhverskonar áhrifa?“

Allt um skipulag og framkvæmdir á einum stað

Í sumar voru samþykktar laga­breytingar á Alþingi þar sem auk annars var kveðið á um að Skipulags­stofnun skuli halda úti vettvangi sem veiti heildar­yfirsýn yfir skipulag, umhverfismat og framkvæmda­leyfi í landinu. Þessi nýi vettvangur hefur verið kallaður skipulags­gátt. Ásdís Hlökk segir hana hugsaða til að takast á við marga af þeim innbyggðu veik­leikum sem eru til staðar við kynningu á skipulags­málum og umhverfis­mati framkvæmda.

Í gáttinni eiga borgarar og aðrir hagsmuna­aðilar að geta nálgast bæði tillögur sem eru í vinnslu og alla opinbera umfjöllun, „allar umsagnir, öll gögn og allt þvíumlíkt“ sem málunum tengjast. „Þetta er að mörgu leyti svolítið sambærilegt við það sem stjórn­völd og fólk sem tengist opinberri umræðu er farið að þekkja í samráðs­gátt stjórn­valda,“ segir Ásdís Hlökk.

En skipulags­gáttin mun einnig verða land­fræðileg, sem þýðir að það verður bæði hægt að nálgast mál í gegnum venjulegt texta­viðmót, en líka í gegnum landakort. „Svo þú getur áttað þig á hvað er að gerast til dæmis í nánd við þitt heimili eða í kringum annan stað á landinu sem þú vilt fylgjast með, sumar­bústað, átthaga eða einhverjar gersemar í nátt­úrunni sem þér er annt um.“

Hugmyndin er sú, segir Ásdís Hlökk, að í gáttinni verði hægt að vakta mál, eða ákveðin svæði, þannig að tilkynning berist með tölvu­pósti ef verið er að setja einhver mál í kynningu á stöðum sem notandinn vill fylgjast með. Hún segist vonast til þess að skipulags­gáttin, sem áætlanir gera ráð fyrir að verði komin í gagnið undir lok næsta árs, verði bylting í því hvernig Íslendingar fylgjast með framgangi skipulags­mála.

„Þegar gáttin hefur verið opnuð þarf hún að vinna sér sess á meðal lands­manna, sem þessi vettvangur þar sem þú getur alltaf leitað þessara upplýsinga. Það verður áskorun fyrst í stað að kynna hana,“ segir Ásdís Hlökk og bætir við að hún vonist til að gáttin „verði svona eins og „covid.is-staðurinn“ til að fara á, þannig séð, ef þú þarft að vita eitthvað um skipulag,“ og vísar þar til tölfræðivef yfirvalda um kórónu­veiru­faraldurinn sem bæði fjöl­miðlar og almenningur hafa legið yfir löngum stundum undan­farin misseri.

„Þarna er hugmyndin að takast á við þann veruleika að við erum ekki lengur með flokks­blöðin fjögur og einu sjónvarps­stöðina og útvarps­stöðina, við erum með þessa óteljandi mörgu miðla og vettvanga sem fólk er á. Við erum að tryggja að það sé einn vettvangur þar sem þetta er allt á einum stað og aðgengilegt öllum,“ segir Ásdís Hlökk.

En þrátt fyrir að hún telji að skipulags­gáttin verði bylting í upplýsinga­miðlun um skipulagsmál og framkvæmdir, þarf meira að koma til. „Gáttin ein og sér breytir ekki fram­setningu skipulags­tillagna og það er áfram áskorun að gera þau gögn sem aðgengilegust og læsilegust og skiljanlegust fólki,“ segir Ásdís Hlökk og bætir því við að rafræn miðlun muni heldur ekki komi í stað mannlegra samskipta – skoðana­skipti og samtal þurfi áfram að geta átt sér stað.

„Samráðs­gátt á vefnum mun aldrei koma í staðinn fyrir kynningar­fundi, opin hús, rýnihópa og ýmislegt annað sem þarf að efna til í svona ferli.“

Tími ungs fólks fari í annað en skipulagsmál

Það hefur vakið athygli að undan­förnu að í samráði um hverfis­skipulags­tillögur í Bústaða- og Háaleitshverfi í Reykjavík hefur Reykja­víkurborg boðað að til standi að setja út netkönnun til að ná til breiðari hóps en þeirra sem höfðu mætt á opna fundi og lýst andstöðu við fyrir­hugaðar framkvæmdir.

Húsfyllir var í safnaðarheimili Kópavogskirkju í liðinni viku er bæjarmálafélagið Vinir Kópavogs var stofnað.
Hús­fyllir var í safn­að­ar­heim­ili Kópa­vogs­kirkju í lið­inni viku er bæj­ar­mála­fé­lagið Vinir Kópavogs var stofnað.

„Við ætl­um að fara af stað með könn­un á næst­unni til að kanna viðhorf fólks, því það verður al­veg að segj­ast eins og er, þessi viðhorf sem kom­in eru fram end­ur­spegla ekki alla íbúa. Þetta er fyrst og fremst eldra fólk,“ sagði Ævar Harðarson deildar­stjóri hverfis­skipulags borgarinnar við mbl.is á dögunum.

Ásdís Hlökk segir allir sem sýsli við skipulagsmál viti vel að það eru ákveðnir hópar í samfélaginu sem auðveldara sé að ná til en annarra, er kemur að samráði um málin. „Það er vel þekkt að þátt­takendur á kynningar- og samráðs­fundum fyrir skipulags­gerð og umhverfismat er fólk á miðjum aldri og eldra. Það er gjarnan svolítil áskorun að ná til yngra fólks og það helgast af ýmsu, kannski miðlunum, kannski áhuga­sviði og kannski því að ungt fólk, fólk með börn er bara upptekið. Tími þess er bara tekinn í annað.“

Hún segir skipulags­gáttina ákveðið skref í að ná jafnar til allra. Það að Ísland sé að verða meira fjöl­menningar­samfélag sé líka önnur áskorun og að í tilteknum byggðum landsins sérstak­lega séu stórir hópar íbúa sem ekki séu vel talandi á íslensku.

„Þetta er nýtt viðfangs­efni fyrir okkur, en við höfum séð skipulags­yfirvöld í nágranna­löndum okkar takast á við þetta. Þar er þetta orðinn veru­leikinn mikið fyrr. Það þarf að hafa efni aðgengilegt á fleiri tungu­málum og halda fundi á fleiri tungu­málum. Þetta er eitthvað sem við erum að byrja að fóta okkur í.“

Stóra viðfangsefnið að meta rökin sem fram koma

Þegar blásið er til samráðs um skipulagsmál gerist það gjarnan að mjög háværir hópar eða hagsmuna­aðilar láta mikið að sér kveða og yfirtaka umræðuna um skipulags­tillögur eða framkvæmdir á sínum forsendum. Í könnun Félags­vísinda­stofnunar á meðal fagaðila voru flestir sem nefndu þetta sem galla við samráð við almenning.

Ásdís Hlökk segir að það sé sífelld áskorun að reyna að haga samráði með þeim hætti að rödd sem flestra nái að heyrast, líka þeirra sem eru valda­minni eða ólíklegri til að hafa sig í frammi – og að til þess séu ákveðin tól til, eins og íbúaþing, rýnihópar og kannanir.

„Það eru alls konar aðferðir sem hægt er að beita. Það fer hins vegar eftir stærð og umfangi skipulags­verkefna hversu mikið og flókið samráð er hægt að fara í. Það eru til aðferðir sem fagfólk á að þekkja til að reyna að vinna gegn því að það séu einhverjir sem yfirtaki umræðuna. En það breytir því ekki, ef það eru hópar, litlir eða stórir, sem brenna fyrir einhverju málefni þá mun það heyrast sterkt í viðkomandi skipulags­ferli. Og það verður alltaf úrlausnar­efni og mats­atriði viðkomandi skipulags­yfirvalda að greina þau sjónarmið sem þarna koma fram,“ segir Ásdís Hlökk.

Að lokum segir forstjóri Skipulags­stofnunar að það sé kannski alltaf stóra viðfangefnið, við ákvaðanatöku í skipulags­málum, að greina hvað er sagt, en ekki hver segir það. „Og í rauninni, hvað er sagt en ekki endilega hversu margir segja það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár