Lífeyrissjóðir og bankar stórtækir í kaupum á hlut ríkisins í Reitum

Hverjum seldi ríkið eign­ar­hluti sína í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum? Kjarninn rýndi í hreyf­ingar á mark­aði sem sýna hverjir eru nú eig­endur hlut­anna sem ríkið seldi. Rík­is­bank­arnir Lands­bank­inn og Íslands­banki keyptu fyrir um tvo millj­arða í Reitum.

Líf­eyr­is­sjóðir og Lands­bank­inn sjálfur keyptu stærstan hlut af eign rík­is­ins, í gegnum félagið Lind­ar­hvol, í fast­eigna­fé­lag­inu Reitum, sem skráð er á markað, en sam­tals fékk Lind­ar­hvoll 3,9 millj­arða króna fyrir 6,38 pró­sent hlut í félag­inu, eða um 47 millj­ónir hluta.

Þetta má lesa út úr gögnum sem sýna hreyf­ingar á eign­ar­hlutum hlut­hafa í Reitum í kringum við­skiptin. Þannig keypti Lands­bank­inn hlut sem nemur ríf­lega fjórtán millj­ónum hluta fyrir um 1,2 millj­arða króna í vik­unni 18. til 25. ágúst, en við­skiptin með eign­ar­hlut rík­is­ins fóru fram 22. ágúst.

Bankar stórtækir

Þá keypti Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna 3,5 millj­ónir hluta fyrir um 306 millj­ónir króna, á fyrr­nefndu tíma­bili. Kvika banki er skráður með 10,8 millj­ónir hluta fyrir 948 milj­ónir, Íslands­banki með ríf­lega 9 millj­ónir hluta fyrir 796 millj­ónir og Arion banki 1,8 millj­ónir hluta fyrir 160 millj­ónir, þegar skoð­aður er listi yfir stærstu hlut­hafa og breyt­ingar á honum milli vikna.

Vátrygg­inga­fé­lag Íslands, VÍS, er skráð inn á topp 20 list­anum með 7,85 millj­ónir hluta fyrir 687 millj­ónir króna. Aðrar breyt­ingar á lista yfir stærstu hlut­hafa eru vega­minni.

Gildi líf­eyr­is­sjóður, sem er stærsti eig­andi Reita með ríf­lega 14 pró­sent hlut, virð­ist ekki hafa keypt neitt af því sem ríkið seldi, en Reitir bætti lít­il­lega við eign sína í félag­inu með því að kaupa 988 þús­und hluti fyrir ríf­lega 86 millj­ónir króna, og nemur eign­ar­hlutur Reita í félag­inu sjálfu nú 2,3 pró­sent.

Útboði á eign­ar­hlut rík­is­sjóðs Íslands í Reitum fast­eigna­fé­lagi hf. lauk klukkan 8:30 mánu­dag­inn 22. ágúst 2016. Mark­aðsvið­skipti Lands­bank­ans höfðu umsjón með útboð­inu.

Fjár­festar ósk­uðu eftir því að kaupa 73.010.000.- hluta í Reitum, eða sem nemur 9,9% af heild­ar­hlutafé í Reitum, að því er fram kom í til­kynn­ingu Lands­bank­ans.

Ríkið seldi allt sitt

Sölu­gengi í útboð­inu var ákveðið 83,30 krónur á hlut. Heild­ar­nafn­verð sam­þykktra til­boða, eftir skerð­ingu var 47.222.796 hlutir eða sem sam­svara 6,38% af heild­ar­hlutafé Reita. Heild­ar­sölu­verð­mæti sam­þykktra til­boða eftir skerð­ingu er því rúm­lega 3,9 ma.kr. Að útboð­inu loknu á rík­is­sjóður ekki eign­ar­hlut í Reitum.

Öll sam­þykkt til­boð voru boðin fjár­festum á sama gengi, þar sem lægsta sam­þykkta gengi réð sölu­geng­inu. Samþykkt til­boð sem bár­ust á sama gengi og sölu­gengi voru skert sem nam umfram­eft­ir­spurn, að því er fram kom í til­kynn­ingu Lands­bank­ans, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafn­verði sem var lág­marks­fjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboð­inu. Tilboðum sem bár­ust á lægra gengi en sölu­gengi var hafnað.

Við­skipta­dagur vegna útboðs­ins er 22. ágúst 2016 og greiðslu- og afhend­ing­ar­dagur vegna við­skipt­anna var mið­viku­dag­ur­inn 24. ágúst 2016.

Miklar eignir seldar á næstunni

Lind­ar­hvoll á umtals­verðar eignir, en félagið var stofnað 15. apríl til að ann­ast umsýslu, fulln­ustu og sölu, eftir því sem við á, á eignum rík­is­sjóðs, sem kom til rík­is­ins frá slita­búum hinna föllnu banka að stórum hluta.

Meðal eign­ar­hluta eru hluti í eft­ir­töldum félögum:

ALMC eign­ar­halds­fé­lag ehf.
AuÐur I fag­fjár­fest­inga­sjóður
Bru II Venture Capital Fund
DOHOP
Eimskip hf.
Eyrir Invest hf.
Internet á Íslandi
Klakki ehf.
Lyfja hf.
Nýi Norð­ur­turn­inn ehf.
S Holding ehf.
SAT eign­ar­halds­fé­lag hf.
SCM ehf.
Síminn hf.

Stærstu eig­endur Reita eru líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Gildi, eins og áður segir, með 14,1 pró­sent hlut, Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna með 12,9 pró­sent, LSR A-deild 10,2 pró­sent, Arion banki með 8,3 pró­sent, LSR B-deild 3,7 pró­sent og líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Stapi með 2,5 pró­sent. Líf­eyr­is­sjóðir fara með meira en helm­ing hluta­fjár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár