Ísland í 60. sæti í stafvæðingu hins opinbera

Við­skipta­ráð Íslands segir frum­varp fjár­mála­ráð­herra um raf­ræna birt­ingu á álagn­ingu skatta og gjalda vera skref átt til starfrænnar stjórn­sýslu en ráðið telur að meg­in­reglan ætti að vera sú að bjóða alla þjón­ustu hins opin­bera staf­rænt.

Efnahags og við­skipta­nefnd hefur lagt fram breyt­ing­ar­til­lögu við frum­varp fjár­mála­ráð­herra um raf­ræna birt­ingu á álagn­ingu skatta og gjalda. Í breyt­ing­ar­til­lög­unni er lagt til að gengið sé lengri í frum­varp­inu og að stjórn­sýslu­lög sæti heild­rænni end­ur­skoðun með það að mark­miði að skýrt verði að raf­ræn birt­ing sé meg­in­reglan en ekki und­an­tekn­ing þegar kemur að álagn­ingu skatta og gjalda. Í til­lög­unni segir að íslensk stjórn­sýsla hafi sætt gagn­rýni fyrir hversu stutt á veg hún er komin hvað varðar efl­ingu raf­rænnar stjórn­sýslu í sam­an­burði við önnur Norð­ur­lönd.

Viðskiptaráð telur að ekki sé eftir neinu að bíða

Nefnd­inni barst umsögn frá Við­skipta­ráði Íslands þar sem greint var frá því að ráð­inu þætti frum­varpið vera skref í átt til starfrænnar stjórn­sýslu en að það telji að mögu­legt sé að fara aðra og betri leið í staf­væð­ingu (e. digitalisation) íslenskrar stjórn­sýslu. Við­skipta­ráðið leggur til að breytt verði stjórn­sýslu­lögum að því leyti að stjórn­völdum verði skylt að bjóða ávallt upp á staf­ræna miðlun upp­lýs­inga og þjón­ustu þegar þess er kostur í stað þess að slíkt sé val­kvætt líkt og nú er í lögum. Meg­in­reglan ætti að vera sú að öll þjón­ustu hins opin­bera ætti að vera boðin staf­rænt nema sér­stak­lega sé kveðið á um annað og það rök­studd sér­stak­lega, segir í umsögn­inni. Við­skipta­ráð hvetur til þess að frum­varpið verði sam­þykkt en kallar jafn­framt eftir því að farið verði í heild­stæða vinnu við staf­væð­ingu íslenskrar stjórn­sýslu.

Ísland í 60. sæti

Í umsögn Við­skipta­ráðs­ins er fjallað um hversu illa Ísland kemur út í alþjóð­legum sam­an­burði í inn­leið­ingu tækni í opin­berri þjón­ustu. Í skýrslu WIPO um alþjóð­lega nýsköp­un­ar­getu landa „Global Innovation Index Report 2018“ er löndum raðað á hverju ári eftir nýsköp­un­ar­getu þeirra og árangri. Í skýrsl­unni er meðal ann­ars skoðað hversu langt lönd eru komin í staf­væð­ingu þjón­ustu hins opin­bera en á þeim lista er Ísland í 60. sæti af 126 sætum, í sæti á milli Perú og Bangla­desh. Í umsögn Við­skipta­ráðs segir að lakur árangur hins opin­bera í þessum efnum stingi í stúf við stöðu Íslands þega að það kemur að almennri inn­leið­ingu og notkun á tækni í sam­fé­lag­inu en þar er Ísland í 5.sæti á meðal 125 ríkja.

Við­skipta­ráð seg­ist fagna því að stjórn­völd hafa lýst því yfir að mark­mið þeirra sé að árið 2020 verði staf­ræn sam­skipti meg­in­sam­skipta­leið borg­ar­ans við hið opin­bera en Við­skipta­ráð telur að til þess að ná mark­mið­inu þurfi stjórn­völd að nálg­ast við­fangs­efnið með heild­stæð­ari hætti en gert er í frum­varpi fjár­mála­ráð­herra.[adspot]

Kalla eftir heildrænni skoðun á stjórnsýslulögum

Efnahags- og við­skipta­nefnd barst einnig umsögn um málið frá Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga en sam­bandið seg­ist styðja frum­varpið en leggur til að for­sæt­is­ráðu­neytið hefji end­ur­skoðun á stjórn­sýslu­lögum svo skýrt sé að allar stjórn­valds­á­kvarð­anir megi birta raf­rænt og að ekki þurfi að til­greina slíkt sér­stak­lega í öðrum lögum. Í breyt­ing­ar­til­lögu nefnd­ar­innar kemur fram að nefndin taki undir þessar umsagnir Sam­bands­ins og Við­skipta­ráðs og nið­ur­staða nefnd­ar­innar er að betur megi ef duga skuli í þessum málum. Nefndin leggur því til að stjórn­sýslu­lög sæti heild­rænni end­ur­skoðun með það að mark­miði að skýrt verði að raf­ræn meg­in­regla en ekki und­an­tekn­ing þegar kemur að álagn­ingu skatta og gjalda.

Ríkisútgjöld lækka um 120 milljónir á ári.

[links]Í grein­ar­gerð frum­varp­is­ins um raf­ræna birt­ingu kemur fram að kostir raf­væð­ing­ar­innar eru minni rík­is­út­gjöld og aukin hag­ræð­ing. Í frum­varp­inu segir að raf­rænar til­kynn­ingar hafi jákvæð fjár­hags­leg áhrif í för með sér fyrir ríki og sveit­ar­fé­lög. En með því að falla frá skrif­legum til­kynn­ingum um álagn­ingu skatta og gjalda þá er talið að útgjöld rík­is­ins drag­ist saman um 120 millj­ónir króna á ári. Sú upp­hæð er sam­an­lagður kostn­aður rík­is­að­ila af póst­burð­ar­gjöld­um.

Óbein áhrif af breyt­ing­unum eru einnig jákvæð fjár­hags­lega, svo sem minna umstang við umsýslu skjala, betra aðgengi að gögnum og hag­kvæm­ari vistun af hálfu álagn­ing­ar­að­ila, ein­stak­linga og lög­að­ila, segir í frum­varp­inu. Einnig er raf­ræn birt­ing almennt mun ein­fald­ari í fram­kvæmd en bréfa­send­ing­ar. Sam­kvæmt því sem segir í frum­varp­inu þá hafa allir skatt­greið­endur hags­muni af þessum breyt­ing­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár