Umfangsmikil eignasala ríkisins í fullum gangi

Sölu­ferlið á Lyfju er langt komið og ríkið fékk sam­tals 6,7 millj­arða króna fyrir eign­ar­hluti í Sjóvá og Reitum.

Félag íslenska rík­is­ins, Lind­ar­hvoll ehf., hefur á und­an­förnum vikum selt 6,38 pró­sent hlut í Reitum fyrir 3,9 millj­arða og 13,93 pró­sent hlut í Sjóvá fyrir 2,8 millj­arða. Kaup­endur voru fjár­festar á mark­aði, líf­eyr­is­sjóðir, bankar og trygg­ing­ar­fé­lög þar á meðal. Lands­bank­inn ann­að­ist söl­una sem fór fram í opnu sölu­ferli á mark­aði.

Lyfja í söluferli

Hinn 5. októ­ber næst­kom­andi rennur út frestur til að skila inn óskuld­bind­andi til­boðum í Lyfju hf. sem ríkið á að fullu eftir að hafa eign­ast fyr­ir­tækið þegar slitabú hinna föllnu banka greiddu stöð­ug­leika­fram­lag til rík­is­ins.

Þeim sem eiga hag­stæð­ustu til­boðin verður boðin áfram­hald­andi þátt­taka í ferl­inu og munu þeir fá aðgang að raf­rænu gagna­her­bergi með ítar­legri gögnum, kynn­ingu á félag­inu frá stjórn­endum Lyfju hf. og gef­ast kostur á að fram­kvæma áreið­an­leika­könnun á félag­inu. Það er Virðing hf. sem sér um söl­una.

Glitnir, Klakki og Gamli Byr

Hinn 29. sept­em­ber síð­ast­lið­inn aug­lýsti ríkið svo eign­ar­hluti sína í Glitni Holdco ehf., Klakka ehf., og Gamla Byr Eign­ar­halds­fé­lagi ehf.

Sölu­ferlið byggir á sam­þykktum reglum um sölu eigna rík­is­sjóðs sem eru í umsýslu Lind­ar­hvols ehf., þar sem kemur fram að við sölu eigna skuli leggja áherslu á gagn­sæi, hlut­lægni, jafn­ræði og hag­kvæmni. Með hag­kvæmni er átt við að leitað sé hæsta verðs eða mark­aðs­verðs fyrir eign­irnar, eins og segir á vef Linda­hvols.

Sölu­ferlið er opið öllum aðilum gegn und­ir­ritun þeirra á trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og skil­mála­bréfi.

Fjár­festar sem þess óska verður boðið að taka þátt í sölu­ferl­inu gegn und­ir­ritun þeirra á trún­að­ar­yf­ir­lýs­ingu og skil­mála­bréf þar að lút­andi.

Áhuga­sömum bjóð­endum er boðið að skila inn skuld­bind­andi til­boðum með sér­stak­lega til­greindum fyr­ir­vörum fyrir kl. 16.00, föstu­dag­inn 14. októ­ber 2016, að því er segir í aug­lýs­ingu..

Miklar eignir

Verð­mætin, sem slitabú við­skipta­bank­anna þriggja auk minni slita­búa lögðu fram í tengslum við gerð nauða­samn­inga, má í meg­in­at­riðum flokka í laust fé, fram­sals­eignir og fram­lag vegna við­skipta­banka.

Þar á meðal var eign­ar­hlutur í Íslands­banka og skulda­bréf sem Kaupþing gaf út með veði í Arion banka hf. Skulda­bréfið verður greitt upp við sölu Arion banka hf. en rík­is­sjóður fær vaxta­tekjur af bréf­inu fram að því. Með öðrum orðum þá fær rík­is­sjóður sölu­and­virði Arion banka.

Banka­sýsla rík­is­ins fer með eign­ar­hlut rík­is­sjóðs í Íslands­banka og einnig í Lands­bank­anum. Lind­ar­hvoll ann­ast umsýslu, fulln­ustu og sölu ann­arra eigna og hafa eft­ir­lit með svo­nefndum fjár­sóps­eignum.

Meðal þeirra eigna sem fóru í umsýslu hjá Lind­ar­hvoli voru hlutir í eft­ir­töldum félögum og sjóðum: ALMC eign­ar­halds­fé­lag ehf., AuÐur I fag­fjár­fest­inga­sjóður, Bru II Venture Capital Fund, DOHOP, Eimskip hf., Eyrir Invest hf., Internet á Íslandi, Klakki ehf., Lyfja hf., Nýi Norð­ur­turn­inn ehf., Reitir hf., S Holding ehf., SAT eign­ar­halds­fé­lag hf., SCM ehf., ög Síminn hf.

Loks eru í flokki fram­sals­eigna ýmsar kröfur á ein­stak­linga og kröfur á 38 félög, sem falla undir per­sónu­vernd­ar­á­kvæði upp­lýs­inga­laga, og gefur Lind­ar­hvoll ekki upp hvaða eignir þetta eru nákvæm­lega.

Verðmæti þess­ara eigna, sam­tals, hleypur á tugum millj­arða króna.

Í stjórn Lind­ar­hvols eru Þór­hallur Arason úr fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ingu, sem jafn­framt er stjórn­ar­for­maður, Ása Ólafs­dóttir, með­stjórn­andi, og Haukur C. Bene­diks­son, með­stjórn­andi, en hann hefur farið fyrir Eigna­safni Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár