Ungir Íslendingar rísa upp: „Okkar framtíð á að vera björt“

„Aðgerðir, núna!“ hróp­aði hópur grunn­skóla- og mennta­skóla­nema á Aust­ur­velli í dag.

Mótmælendur í dag
Mót­mæl­endur í dag Allt fór frið­sam­lega fram. Mynd: Davíð Þór

„Við eigum ekki að taka við þessu sem er að ger­ast í dag. Þeir sem hafa völdin í dag, þeir eiga að laga þetta!“ kall­aði mót­mæl­andi á fjölda­mót­mælum ung­menna á Aust­ur­velli í dag.

Ungir Íslend­ingar á grunn­skóla- og mennta­skóla­aldri hafa nú mót­mælt þrjá föstu­daga í röð í til­raun til að tryggja fram­tíð sína. Margir þeirra hafa tekið sér frí frá skóla, með eða án leyfis, til þess að mæta á mót­mælin.

Mót­mæl­end­urnir vilja að gripið verða til aðgerða þegar í stað til að hindra frek­ari lofts­lags­breyt­ingar.

„Framtíð okkar á að vera björt,“ sagði mót­mæl­and­inn, Elsa María Guðlaugs- og Drífu­dóttir, for­maður Lands­sam­taka íslenskra stúd­enta, í ræðu sinni.

Meðal þeirra sem héldu ræður voru Gunn­hildur Fríða Hall­gríms­dóttir, for­maður Sambands íslenskra fram­halds­skóla­nema, Sigurður Thorlacius, úr Ungum umhverf­issinnum, og svo ungir nem­endur úr Vest­ur­bæj­ar­skóla, sem fóru fram á að segja nokkur orð.

Önnur mót­mæli eru boðuð næst­kom­andi föstu­dag.

Mótmælin í dagFjöldi ung­menna kom saman á Aust­ur­velli til að krefj­ast aðgerða gegn hlýnun jarðar.
„Framtíð okkar skiptir máli“Mót­mæl­endur voru minnst á annað hund­rað tals­ins.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár