Telur samfélagslega sátt um að styrkja barnabótakerfið

Halldór Benjamín Þor­bergs­son telur að ef lesið sé í þjóð­arsál­ina þá sé styrk­ing barna­bóta­kerf­is­ins lausn sem margir geti unað við. Það sé skyn­sam­leg leið til að koma til móst við þá hópa sem standi höllustum fæti.

„Ég hef verið tals­maður þess að það að styrkja barna­bóta­kerfið, sem sann­ar­lega er verið að gera á þessu ári sam­kvæmt ein­hverju sem var ákveðið í fyrra. Að það sé mjög skil­virk leið til þess að koma pen­ingum í gegnum milli­færslu­kerfi á þann stað sem ég trúi að ríki sam­fé­lags­leg sátt um. Til þess að koma pen­ingum tíma­bundið til þeirra sem þurfa á því að halda.“

Þetta er meðal þess sem Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, sagði í við­tali við Þórð Snæ Júl­í­us­son, rit­stjóra Kjarnans í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Þar ræddi hann meðal ann­ars stöðu mála í kjara­við­ræðum, yfir­vof­andi verk­föll, launa­hækk­arnir rík­is­for­stjóra og útspil rík­is­stjórn­ar­innar til að liðka fyrir lausn í við­ræðum vinnu­mark­að­ar­ins. Hægt er að sjá stiklu úr þætti kvölds­ins hér að neðan.

Halldór sagði að þeir hópar sem hin sam­fé­lags­lega sátt ríki um að eigi að fá auknar greiðslur í gegnum milli­færslu­kerfi sé ung fólk sem sé að koma sér upp fjöl­skyldu og er með ung börn á fram­færi. Ég held að ef maður les í þjóð­arsál­ina þá er þetta ein­hver laus sem mjög margir geta unað við og sé skyn­sam­leg til að koma til móts við þá hópa sem standa höllustum fæti.“

[adspot]Að hans mati er lausnin á yfir­stand­andi kjara­deilu ein­hvers­konar sam­sett lausn. „Einn hluti þess­arar lausnar snýr beint að Samtökum atvinnu­lífs­ins og varðar beinar launa­hækk­anir í sam­fé­lag­inu. Annar lið­ur­inn snýr að milli­færslu­kerfum okkar, þessum stóru kerfum. Útspil rík­is­stjórn­ar­innar er þegar komið fram. Eigum við ekki að segja að við­brögð við því útspili hafi verið blendin. Viðbrögð mín, án þess að ég taki mér stöðu ann­að­hvort með verka­lýðs­hreyf­ing­unni eða stjórn­völdum með því, voru að þetta voru efn­is­lega það sem að hægt var að eiga von á út frá fyrri yfir­lýs­ingum.“

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum hafi komið fram að lækka ætti tekju­skatt um eitt pró­sentu­stig. Það útspil sem nú sé komið fram sé efn­is­lega á þeim nótum. „Ég hef spurt mig: hvaðan koma þær vænt­ingar að útspilið í tekju­skatts­kerf­inu hefði átt að vera tvisvar sinnum eða þrisvar sinnum meira að umfangi en kynnt er? Ég hef ekki séð að þær yfir­lýs­ingar stjórn­ar­flokk­anna. Að það megi lesa það út úr þeim yfir­lýs­ingum sem fram hafa komið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár