„Forsendubrestur í samtali stjórnvalda við atvinnulífið“

Félags- og barna­mála­ráð­herra finnst ekki sið­ferð­is­lega ásætt­an­legt að fyr­ir­tæki fari „undir rík­is­kran­ann og fái fjár­magn til þess að setja í sinn eigin vasa“.

Ásmundur Einar Daðason
Ásmundur Einar Daðason Mynd: Skjáskot/RÚV

Um leið og stjórn­völd hafa hvatt fyr­ir­tæki til þess að nýta sér hluta­bóta­leið­ina þá telur Ásmundur Einar Daðason, félags- og barna­mála­ráð­herra, að það megi ekki vera þannig að atvinnu­lífið líti þannig á að það sé sjálf­sagt að fara undir rík­is­kran­ann og fá fjár­magn til þess að setja í sinn eigin vasa. Þetta kom fram í við­tali við Ásmund Einar í Silfrinu í morgun.

„Það finnst mér sið­ferði­lega ekki ásætt­an­legt. Bara engan veg­inn,“ sagði ráð­herr­ann.

Hann vildi enn fremur meina að á þeim tíma­punkti sem leiðin var sett fram hefði hún verið skyn­sam­leg gagn­vart launa­fólki. „Vegna þess að við vörðum launa­fólk mjög vel gagn­vart þessum upp­sögnum. Hins vegar vil ég segja að ef ekki er hægt í íslensku sam­fé­lagi að höfða til sið­ferð­is­kenndar stórra fyr­ir­tækja á tímum eins og þessum – ef stjórn­mála­menn mega ekki fjalla um það að það sé ekki eðli­legt að fyr­ir­tæki vinni ein­hvers konar sið­ferði­legt mat – þá erum við ekki í umræð­unni sem við fórum af stað með inn í þetta. Sem var það að við ætl­uðum öll að vera saman í þessu. Og ef eitt­hvað er sem ég hef sann­færst á þessum tíma er að við getum ekki treyst því að innan atvinnu­lífs­ins sé sú rödd skýr að við séum í sama bátnum í þessu.“

Hann sagði þó að mörg fyr­ir­tæki stæðu sig vel en að stærri fyr­ir­tækin sem teldu það eðli­legt að greiða arð á sama tíma og þau eru með munn­inn undir rík­is­kran­anum. „Þá er orð­inn ákveð­inn for­sendu­brestur í sam­tali stjórn­valda við atvinnu­lífið.“ Hann tal­aði um þessi fyr­ir­tæki sem svarta sauði og að atvinnu­lífið þyrfti að axla ábyrgð á því.

Reiður að sjá fyrirtæki segja upp fólki í hlutabótaleiðinni

Ásmundur Einar sagði enn fremur að þegar stjórn­völd hefðu sett þessa lög­gjöf fram á sínum tíma þá hefði íslensk sam­fé­lag verið á þeim stað að landið lok­að­ist einn, tveir og þrír. „Við þurftum að grípa mjög hratt inn í. Við töldum þá – og vorum að vinna með þá sviðs­mynd – að þetta myndi taka skamman tíma. Við værum að sjá ferða­þjón­ust­una fara núna af stað í maí­mán­uði og júní.“

Hann sagði að frum­varp hefði verið tekið unnið upp úr lögum sem voru hér á landi árin 2008 og 2009 og að unnið hefði verið með aðilum vinnu­mark­að­ar­ins til að breyta þeim. „Hugsunin var þá að menn mundu þurfa á því að halda í skamman tíma að nýta sér þetta. Síðan verð ég að segja eins og er að við fórum strax að sjá af því fregnir að fyr­ir­tæki sem væru stöndug væru að nýta sér þetta.

Hann sagði jafn­framt að honum hefði fund­ist það mjög skrítið þegar fyr­ir­tæki ætl­uðu að segja upp fólki í hluta­bóta­leið­inni. „Fyr­ir­tæki voru byrjuð að gera það. Hvatn­ingin var sú að fyr­ir­tækin nýttu þetta í stað­inn fyrir að segja upp fólki en heilt yfir er það nátt­úru­lega þannig að maður höfðar líka til, og við höfum talað um það, að við ætlum að vera saman í þessu. Það er verið að höfða til sið­ferð­is­kenndar okkar allra í þessu og þess vegna segir maður: Maður verður reiður að sjá fyr­ir­tæki sem eru gríð­ar­lega stöndug, og hefðu getað ráðið við þetta, að þau hafi verið að reyna að segja upp í hluta­bóta­leið­inni. Og það er í raun­inni ekki boð­legt,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár