Skriður á rannsókn saksóknara og skattayfirvalda á meintum brotum Samherja

Bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri hafa yfir­heyrt stjórn­endur Samherja. Embættin hafa fengið aðgang að miklu magni gagna, meðal ann­ars frá fyrr­ver­andi end­ur­skoð­anda Samherja og úr rann­sókn Seðla­banka Íslands á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins.

Samherji birti í gær hluta af nið­ur­stöðum norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein sem fram­kvæmdi rann­sókn á starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu og víðar. Rann­sóknin var pöntuð eftir að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu að grunur væri á að Samherji hefði greitt mútur, meðal ann­ars til hátt­settra stjórn­mála­manna, til að kom­ast yfir fisk­veiði­kvóta í Namibíu og Angóla. Á sama tíma voru birtar upp­lýs­ingar sem bentu til þess að Samherji væri mögu­lega að stunda stór­fellda skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti.

Í yfir­lýs­ing­unni þar sem farið var yfir valdar nið­ur­stöður úr skýrslu Wikborg Rein, og þær túlk­aðar af stjórn­endum Samherja á þann hátt að einn maður – Jóhannes Stef­áns­son fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samherja í Namibíu og upp­ljóstr­ari – bæri ábyrgð á því aflaga fór, var við­ur­kennt að margt hefði verið í ólagi. Sér­stak­lega kemur fram í yfir­lýs­ing­unni að greiðslur sem inntar hafi verið af hendi hafi verið fyrir „ráð­gjöf“ sem veitt hefði verið fyrir hjálp til að kom­ast yfir fisk­veiði­kvóta en því hafnað að um mútu­greiðslur hafi verið að ræða. Samherji tekur þó undir „þá gagn­rýni að við þær aðstæður sem uppi voru hefði átt að gæta betur að því hvernig greiðslur voru fram­kvæmdar, hverjir tóku við þeim og á hvaða grund­velli, hverjir höfðu heim­ildir til að gefa fyr­ir­mæli um þær og hvert þær skyldu ber­ast. Einnig er ljóst að samn­ingar á bak við greiðsl­urnar hefðu átt að vera nákvæmir og form­legir.“

Samhliða þessu birti Samherji afsök­un­ar­beiðni sem var und­ir­rituð af Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja. Hún var birt í tveimur prent­miðlum í gær­morgun og end­ur­tekin á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins.

Sú afsök­un­ar­beiðni hefst á því að það sé „ein­dregin afstaða“ Þor­steins að hvorki hann, Samherji eða aðrir stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins en Jóhannes hafi framið refsi­verð brot í Namibíu. Þau vinnu­brögð sem hafi verið látin við­gang­ast hafi engu að síður „valdið upp­námi hjá starfs­fólki okkar, vinum, fjöl­skyldum, sam­starfs­að­ilum, við­skipta­vinum og víðar í sam­fé­lag­inu. Mér þykir mjög leitt að svo hafi farið og bið ég alla þá sem hlut eiga að máli, ein­læg­lega afsök­unar á mis­tökum okkar, bæði per­sónu­lega og fyrir hönd félags­ins.“

Afsök­un­ar­beiðnin snýr því sér­tækt að starfs­fólki Samherja, vinum þeirra og fjöl­skyldum, sam­starfs­að­ilum og við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins, en óljóst að öðrum sem hafa orðið fyrir skaða vegna fram­ferði fyr­ir­tæk­is­ins, stjórn­enda þess og starfs­manna.

Af hverju núna?

Tíma­setn­ingin á yfir­lýs­ing­unni og afsök­un­ar­beiðn­inni vakti athygli. Eftir að hafa beitt mik­illi hörku í öllum við­brögðum í mál­inu mán­uðum saman, meðal ann­ars í gegnum drauga­skrif á umræðu­síðum fjöl­miðla, með birt­ingu fjöl­margra yfir­lýs­inga á heima­síðu Samherja og með því að láta fram­leiða alls þrettán mynd­bönd þar sem ráð­ist var að þeim sem um fyr­ir­tækið höfðu fjallað, breytt­ist tónn­inn í lok síð­asta mán­aðar.

Það gerð­ist eftir að Kjarninn og Stundin höfðu opin­berað starf­semi svo­kall­aðrar „skæru­liða­deildar“ Samherja. Í yfir­lýs­ingu sem Samherji birti í lok maí, en eng­inn sér­stakur var skrif­aður fyrir, sagði að ljóst væri að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of langt“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félagið“.

„Af þeim sökum vill Samherji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göngu,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins, en ekki var útskýrt í frek­ari smá­at­riðum að hvaða leyti gengið hafi verið of langt eða nákvæm­lega hverju verið sé að biðj­ast afsök­unar á.

En fleira kemur til en vilji til að breyta um tón. Heim­ildir Kjarnans herma að rann­sóknir yfir­valda hér­lendis, bæði emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra, séu komnar á umtals­vert skrið. Þær rann­sóknir hafa staðið yfir frá lokum árs 2019.

Umfangsmiklar rannsóknir í gangi

Í fyrra­sumar voru sex ein­stak­lingar boð­aðir í yfir­heyrslu hjá hér­aðs­sak­sókn­ara vegna máls­ins. Þar var þeim greint frá því að til rann­sóknar væru atvik sem tengj­ast Samherja hf., Samherja Holding ehf. (sem heldur utan um erlenda starf­semi sam­stæð­unnar) og öðrum félögum í sam­stæðu Samherja, einkum í tengslum við starf­semi í Namibíu og Angóla, á tíma­bil­inu 2011 og fram til dags­ins í dag. Á meðal þeirra var Þor­steinn Már, sem var yfir­heyrður í byrjun júlí 2020.

Þar var fólk­inu greint frá því að til rann­sóknar væru meintar mútu­greiðslur starfs­manna og fyr­ir­svars­manna Samherja til opin­berra starfs­manna í Namibíu og Angóla, eða til ann­arra sem gátu haft áhrif á ákvörð­un­ar­töku slíkra manna, í tengslum við úthlutun á fisk­veiði­kvóta í Namibíu og Angóla.

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­ar­laga um mútur. Í fyrr­nefndu grein­inni segir að hver sem gefur, lofar eða býður opin­berum starfs­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­kall til, í þágu hans eða ann­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­manni, erlendum kvið­dóm­anda, erlendum gerð­ar­manni, manni sem á sæti á erlendu full­trúa­þingi sem hefur stjórn­sýslu með höndum, starfs­manni alþjóða­stofn­unar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­gjaf­ar­þingi í erlendu ríki, dóm­ara sem á sæti í alþjóð­legum dóm­stóli eða starfs­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lögum, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, sendir, geymir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­lýs­ingum um upp­runa hans, eðli, stað­setn­ingu eða ráð­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

Þá eru einnig til rann­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­ar­lögum, sem fjalla um auðg­un­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Fókus á Kýpur

Embætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra, sem var lagt niður í þáver­andi mynd í maí síð­ast­liðnum og verður hér eftir deild innan Skatts­ins, er síðan að rann­saka hvort raun­veru­legt eign­ar­hald á allri Sam­herj­a­sam­stæð­unni sé hér­lendis og hvort að ákvörðun um að greiða skatta ann­ars­staðar en hér sé þar með stór­felld skatta­snið­ganga.

Kýpur hefur verið nokk­urs konar heima­höfn alþjóð­legrar starf­semi Samherja um margra ára skeið. Fyrir nokkrum árum síðan birti Stundin meðal ann­ars umfjöllun um tölvu­póst frá árinu 2009 frá Baldvini Þor­steins­syni, þáver­andi fram­kvæmda­stjóra Afr­íku­út­gerðar Samherja og núver­andi for­stjóra Samherja í Evrópu, þar fjallað var um hag­fræði af því að vera með starf­sem­ina skráða í Kýpur. Þar stóð: „Til­gang­ur­inn er eft­ir­far­andi: Að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins þar sem eng­inn skattur er á hagnað fyr­ir­tæk­is­ins. Við teljum Kýpur vera rétta landið. Með því að búa til hagnað innan sölu­fyr­ir­tæk­is­ins Kötlu Seafood getum við lækkað skipta­hlut sjó­manna og stjórnað betur á hvaða verðum við myndum gera upp. […] Með því að draga úr hagn­aði þar og láta hagn­að­inn mynd­ast hjá sölu­fyr­ir­tæk­inu þá tæk­ist okkur að auka hagnað heild­ar­innar. Þetta teljum við nokkuð snyrti­lega leið til að draga úr skatt­greiðslum.“

Ári síðar færði Samherji umfangs­mikla fisk­sölu til Kýpur og hafði mikla starf­semi þar næstu árin, en skattar á fyr­ir­tæki þar í landi eru mun lægri en t.d. á Íslandi.

Í Kveiks­þætti sem sýndur var fyrr á þessu ári voru umsvif tveggja Kýp­ur­fé­laga Samherja, Esju Seafood og Esju Shipping, og fjöl­margra dótt­ur­fé­laga þeirra rakin. Félögin tvö eru með umsvif og tuga millj­arða króna eignir út um allan heim. Þegar Kveikur bank­aði upp á skrif­stofu þeirra í Limassol á Kýpur var hins vegar eng­inn þar. Og skrif­stofan, sem líkt­ist frekar her­bergi, virð­ist að mestu vera til mála­mynda sam­kvæmt því sem fram kom í Kveik.

Átti að borga miklu hærri skatta á Íslandi?

Í minn­is­blaði sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra sendi til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins 18. nóv­em­ber 2019, sex dögum eftir að umfjöllun um starfs­hætti Samherja í Namibíu hófst, kom fram að í ljósi „mik­il­vægi máls­ins og umfangs þess“ teldi emb­ættið rétt að fara þess á leit við ráðu­neytið að emb­ætt­inu yrði „gert kleift að auka mann­afla emb­ætt­is­ins tíma­bundið til að geta sinnt þessu afmark­aða verk­efni á sem skjótastan og far­sælastan hátt.“ Í kjöl­farið var við­bót­ar­fjár­magni veitt til skatt­rann­sókn­ar­stjóra úr rík­is­sjóði.

Það sem emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra er meðal ann­ars að rann­saka er hvernig töku ákvarð­ana var háttað innan sam­stæðu Samherja. Upp­haf­s­punktur þeirrar rann­sóknar er skýrsla sem KPMG, þáver­andi end­ur­skoð­andi Samherja, vann um starf­semi Samherja á árunum 2013 og 2014.

Umrædd skýrsla KPMG fyrir Samherja, eða öllu heldur drög að henni, var meðal ann­ars til umfjöll­unar í bók­inni Ekkert að fela eftir Helga Seljan, Aðal­stein Kjart­ans­son og Stefán A. Drengs­son sem kom út í nóv­em­ber 2019. Skýrslan er eins konar grein­ing á því hvernig skipu­lag Sam­herj­a­sam­stæð­unnar var á þessum tíma.

Samkvæmt mati sér­fræð­inga KPMG, sem byggði m.a. á við­tölum við starfs­fólk Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, var for­stjór­inn og stjórn­ar­for­mað­ur­inn Þor­steinn Már Bald­vins­son nær ein­ráður í fyr­ir­tæk­inu og með alla þræði í hendi sér. Engin form­leg fram­kvæmda­stjórn var sögð innan Samherja hf., sam­kvæmt þessum drögum sér­fræð­inga KPMG.

Athuga­semdir voru gerðar við ýmis­legt af því sem fram kom í mati KPMG af hálfu Samherja og í síð­ari drögum að skýrsl­unni var búið að draga úr umfjöllun um hlut­verk og áhrif stjórn­ar­for­manns­ins. Bæði emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóri hefur talið að vert sé skoða þessa skýrslu­gerð sér­stak­lega.

Með mikið magn gagna sem ná mörg ár aftur í tímann

Umtals­verð gagna­öflun hefur átt sér stað af hendi þeirra sem rann­saka mál­efni Samherja. Þar er um að ræða þau gögn sem umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Al Jazeera og WikiLeaks í nóv­em­ber 2019 byggði á auk ýmissa gagna sem rann­sókn­ar­að­ilar hafa fengið frá yfir­völdum í Namibíu og fleiri löndum.

Auk þess var KPMG, sem sá um bók­hald Samherja árum saman og þar til í fyrra, skyldað af dóm­stólum í des­em­ber til þess að aflétta þeim trún­aði sem ríkir milli end­ur­skoð­enda og við­skipta­vina þeirra, en kveðið er á um þagn­ar­skyldu end­ur­skoð­enda í lögum og láta emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara í té upp­lýs­ingar og gögn varð­andi bók­hald og reikn­ings­skil allra félaga Sam­herj­a­sam­stæð­unnar á árunum 2011 til 2020. Einnig þurfti fyr­ir­tækið að láta hér­aðs­sak­sókn­ara hafa upp­lýs­ingar og gögn sem varða áður­nefnda skýrslu sem KPMG vann um starf­semi Samherja á árunum 2013 og 2014.

Samherji krafðist skaðabóta úr hendi Seðlabankans í nýlegu dómsmáli. Þar var efnislegt innihald Seðlabankamálsins svokallaða opinberað með skýrari hætti en nokkru sinni áður. Mynd: Kjarninn
Samherji krafð­ist skaða­bóta úr hendi Seðla­bank­ans í nýlegu dóms­máli. Þar var efn­is­legt inni­hald Seðla­banka­máls­ins svo­kall­aða opin­berað með skýr­ari hætti en nokkru sinni áður. Mynd: Kjarninn

Þrátt fyrir miklar mót­bárur Samherja, jafn tækni­legar og efn­is­legar, þá var þeirri ákvörðun ekki hnekkt.

Í vik­unni var svo birtur úrskurður Per­sónu­verndar um kvörtun Þor­steins Más, sem hann lagði fram í októ­ber 2020, vegna vinnslu per­sónu­upp­lýs­inga um hann. Þar kemur fram að gögnin sem Þor­steinn er ósáttur með með­ferð­ina á eru þrír diskar, með sam­tals um sex þús­und gíga­bæti af gögnum, sem lagt var hald á við hús­leit gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands í höf­uð­stöðvum Samherja árið 2012.

Þor­steinn Már taldi að eyða hefði átt gögn­unum eftir að mála­rekstri Seðla­bank­ans gegn Samherja lauk, en lesa má um þau mála­lok hér. Gögnunum var hins vegar ekki eytt. Þvert á móti voru þau borin undir hann í skýrslu­töku hjá emb­ætti skatt­rann­sókn­ar­stjóra og þar upp­lýst um að þeirra hefði verið aflað frá hér­aðs­sak­sókn­ara sem hafði fengið þau frá Seðla­banka Íslands.

Hér­aðs­sak­sókn­ari fékk gögnin eftir að hafa lagt fram beiðni um afhend­ingu á grund­velli laga um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka vegna þess að emb­ættið mat það sem svo „að gögnin gætu haft sönn­un­ar­gildi við yfir­stand­andi rann­sókn.“

Í úrskurði Per­sónu­verndar kemur fram að stofn­unin telur að miðlun per­sónu­upp­lýs­inga um Þorstein Má til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara hafi sam­rýmst lögum. Á meðal gagna sem þarna um ræðir eru tölvu­póstar, upp­lýs­ingar um fjár­mál Þor­steins og ýmis­legt fleira.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár