Kostnaður vegna vinnu eins manns veigamikill hluti af skaðabótakröfu Samherja

Samherji stefndi Seðla­bank­anum í fyrra til greiðslu á 316 millj­ónum króna í skaða- og miska­bætur vegna rann­sóknar bank­ans á fyr­ir­tæk­inu. Hluti af skaða­bóta­kröf­unni er vegna vinnu eins manns á tveggja ára tíma­bili sem ekki fást upp­lýs­ingar um hver sé.

Samherji stefndi í fyrra Seðla­banka Íslands til greiðslu skaða- og miska­bóta vegna rann­sóknar þess síð­ar­nefnda á ýmsum ætl­uðum brotum fyr­ir­tæk­is­ins á meðan að fjár­magns­höft voru við lýði á Íslandi. Samherji fór fram á 316 millj­ónir króna í skaða- og miska­bætur vegna rann­sóknar Seðla­bank­ans á fyr­ir­tæk­inu fyrir nokkrum árum auk þess sem Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, stefndi per­sónu­lega og fer einnig fram á 6,5 millj­ónir króna í bætur.

Skaða­bótakrafa Samherja, sem er upp á 306 millj­ónir króna, byggir meðal ann­ars á kostn­aði við einn starfs­mann sem starf­aði fyrir fyr­ir­tækið um tveggja ára skeið, frá maí 2013 til maí 2015, þegar Sam­herj­a­málið var til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara. Seðla­bank­inn telur sig ekki geta veitt upp­lýs­ingar um hver við­kom­andi starfs­maður sé, við hvað hann hafi starfað né hver heildar skaða­bótakrafa Samherja vegna starfa hans sé há. Afstaða bank­ans er að það sé Samherja að upp­lýsa um það.

Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurnir á Samherja um málið en fyr­ir­tækið hefur ekki svarað þeim.

Vantaði undirskrift ráðherra

Rannsókn á Sam­herj­a­mál­inu hófst 2010 á athugun gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands á því hvort að íslensk útflutn­ings­fyr­ir­tæki væru að standa skil á svo­kall­aðri skila­skyldu á gjald­eyri, sem öll slík þurftu að gera á grund­velli laga um gjald­eyr­is­mál sem fjár­magns­höftin, sem voru við lýði á Íslandi frá 2008 til 2017, byggðu á. Ákveðin vend­ing varð í mál­inu þegar ráð­ist var í hús­leitir 27. mars 2012. Sama dag var sýndur frétta­skýr­inga­þáttur í Kast­ljósi RÚV þar sem fjallað var um hluta þess sem var til rann­sóknar hjá Seðla­bank­anum.

Þann 10. apríl 2013 kærði Seðla­bank­inn Samherja og tengd félög til sér­staks sak­sókn­ara fyrir brot á gjald­eyr­is­málum og reglum þeim tengdum. Kæran laut að meintum brotum gegn skila­skyldu á erlendum gjald­eyri, fjár­fest­ingum í erlendum gjald­eyri og meintum brotum í tengslum við svo­kall­aða milli­verð­lagn­ingu.

Mál Samherja kom aldrei til efn­is­legar umfjöll­unar fyrir dóm­stólum en því var vísað frá sökum þess að þáver­andi ráð­herra banka­mála rit­aði ekki undir reglu­gerð sem veitti gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands þá heim­ild sem stjórn­völd ætl­uðu því til að refsa lög­að­ila eins og Samherja.

Seðla­bank­inn vís­aði þá mála­til­bún­aði gegn fjórum fyr­ir­svars­mönnum Samherja til sér­staks sak­sókn­ara sem komst á end­anum, eftir tveggja ára rann­sókn, að þeirri nið­ur­stöðu að líkur á sak­fell­ingu yfir ein­stak­ling­unum fyrir hin ætl­uðu brot væru minni en lík­urnar á að þeir yrði sýkn­aður og felldi málið niður. Þá var lögð stjórn­sýslu­sekt á Samherja upp á 15 millj­ónir króna til að reyna að ljúka mál­inu en Seðla­bank­inn var gerður aft­ur­reka af Hæsta­rétti með þá sekt í nóv­em­ber 2018 og hún felld niður í kjöl­farið.

Telja fjártjón ekki sannað

Í fyrra­haust stefndi Samherji og Þor­steinn Már Bald­vins­son Seðla­banka Íslands til greiðslu skaða- og miska­bóta vegna Sam­herj­a­máls­ins.

Í skaða­bóta­mál­inu á hendur Seðla­banka Íslands fer Samherji fram á bætur upp á sam­tals tæp­lega 316 millj­ónir króna. Þær skipt­ast þannig að fyr­ir­tækið krefst skaða­bóta upp á 305,8 millj­ónir króna og miska­bóta upp á tíu millj­ónir króna. Auk þess stefndi Þor­steinn Már Seðla­bank­anum per­sónu­lega og fór fram á skaða­bætur upp á fimm millj­ónir króna og miska­bætur upp á 1,5 milljón króna.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja.

Kröfuna byggja Samherji og Þor­steinn Már á því að Seðla­banki Íslands hafi með rann­sókn sinni og stjórn­valds­á­kvörð­unum í Sam­herj­a­mál­inu svo­kall­aða, valdið sér fjár­hags­legu tjóni og miska.

Í grein­ar­gerð Jóhann­esar Karls Sveins­sonar, lög­manns Seðla­bank­ans í mál­inu, sem var skilað inn til dóm­stóla í októ­ber 2019 og Kjarninn fékk nýlega afhenta hjá bank­anum, eru mála­vextir raktir og fjár­krafa Samherja útskýrð.

Bótakrafa fyr­ir­tæk­is­ins er sögð vera vegna lög­fræði- og sér­fræði­kostn­aðar, vegna innri kostn­aðar og svo miska­bóta. Fyrri tveir lið­irnir eru því útlagður kostn­aður og fer Samherji fram á 305,8 millj­ónir króna frá Seðla­banka Íslands vegna hans.

Í grein­ar­gerð­inni segir lög­maður Seðla­bank­ans að þetta tjón sé ósannað. Í stefnu Samherja sé ekki að finna sund­ur­liðun eða nán­ari til­grein­ingu á því tjóni sem kraf­ist sé undir liðnum skaða­bætur og eig­in­leg sönn­un­ar­gögn ekki lögð fram. „Þannig er ekk­ert reifað hvenær ein­stakir kostn­að­ar­liðir féllu til eða af hvaða til­efni var til þeirra stofnað.“

Hvorki kvitt­anir né greiðslu­stað­fest­ingar hafi verið lagðar fram til sönn­unar á þessum útlagða kostn­aði. Í grein­ar­gerð­inni segir: „Ekki er skýr­ing á því í stefn­unni hvers vegna þetta mál er höfðað til inn­heimtu rúm­lega 300 millj­óna króna í skaða­bætur án þess að sönn­un­ar­gögn fyrir því tjóni séu lögð fram eða að reifun eða sund­ur­liðun á því tjóni sé að finna í stefn­unni.“

Bætur vegna launa eins starfsmanns

Í grein­ar­gerð lög­manns­ins segir að eðli skaða­bóta­kröfu Samherja sé þannig að um sé að ræða kostnað úr ýmsum áttum, sem bæði geti tengst málsvörnum Samherja, en einnig ýmsu öðru.

Til við­bótar við þann kostnað sem fallið hefur til vegna svara við fyr­ir­spurnum stjórn­valda, og vegna þess að Samherji hefur haldið uppi vörnum, er líka tal­inn til „eigin kostn­aður“.

Í honum felst krafa um launa­kostnað starfs­manna Samherja þann dag sem hús­leit stóð yfir hjá fyr­ir­tæk­inu árið 2012. Til við­bótar er farið fram á „bætur vegna heild­ar­launa eins starfs­manns um tveggja ára skeið (frá maí 2013 til maí 2015)“.

Í grein­ar­gerð­inni segir að engin reifun sé á því hvað umræddur starfs­maður gerði né hvernig Seðla­banki Íslands eigi að bera ábyrgð á því. „Þá verður að taka sér­stak­lega fram að á þessu tíma­bili var málið til rann­sóknar hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara en ekki til með­ferðar hjá stefnda“.

Upplýsa ekki um hver starfsmaðurinn sé

Kjarninn beindi fyr­ir­spurn til Seðla­banka Íslands um málið og óskaði eftir því að fá upp­lýs­ingar um hversu háar bætur Samherji færi fram á að fá vegna heild­ar­launa þessa eina starfs­manns.

Seðla­bank­inn svar­aði fyr­ir­spurn­inni í síð­ustu viku og sagð­ist ekki geta upp­lýst um það. Í svari hans sagði að telja yrði eðli­legt að um það ríkti trún­aður að hálfu Seðla­bank­ans „hvaða rök­stuðn­ingi gagn­að­ili í dóms­máli hygg­ist beita, og að það sé hans ákvörðun en ekki bank­ans að upp­lýsa um það fyrr en málið hefur verið flutt.“

Kjarninn hefur tví­vegis beint fyr­ir­spurn til Samherja um sama mál. Þar var meðal ann­ars óskað eftir upp­lýs­ingum um sund­ur­liðað meint fjár­tjón Samherja vegna máls­ins og sér­stak­lega á þeim bótum sem fyr­ir­tækið fer fram á vegna heild­ar­launa eins starfs­manns. Þá óskaði Kjarninn eftir upp­lýs­ingum um hvaða störfum við­kom­andi starfs­maður gegndi fyrir Samherja og eftir útskýr­ingum á því af hverju Seðla­banki Íslands ætti að bera ábyrgð á kostn­aði vegna starfa þessa eina starfs­manns.

Már Guðmundsson var seðlabankastjóri um tíu ára skeið, meðal annars á meðan að rannsókn á Samherja stóð yfir.
Már Guð­munds­son var seðla­banka­stjóri um tíu ára skeið, meðal ann­ars á meðan að rann­sókn á Samherja stóð yfir.

Samherji hefur ekki svarað fyr­ir­spurnum Kjarnans um málið en sú síð­ari var send til fyr­ir­tæk­is­ins á mið­viku­dag í síð­ustu viku.

Strikað yfir efnisatriði málsins

Í grein­ar­gerð lög­manns Seðla­bank­ans er strikað yfir með svörtu alls­staðar þar sem efn­is­at­riði rann­sóknar Seðla­bank­ans á Samherja eru til umfjöll­unar. Það er til að mynda gert þar sem farið er yfir efni kæru Seðla­bank­ans til sér­staks sak­sókn­ara. Er það gert, sam­kvæmt svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið, vegna þess að þagn­ar­skylda gildi um umrædd gögn.

Kjarninn mun á næstu dögum kæra þá afstöðu Seðla­banka Íslands til úrskurð­ar­nefndar um upp­lýs­inga­mál á þeim grund­velli að verið sé að stefna opin­berum aðila til greiðslu hárra bóta, og því varði málið almanna­heill.

Í bréfi sem Már Guð­­munds­­son, þáver­andi seðla­­banka­­stjóri, sendi Katrínu Jak­obs­dóttur for­­sæt­is­ráð­herra 29. jan­úar 2019, vegna máls­ins fjall­aði hann meðal ann­ars um þau gögn Sam­herj­a­máls­ins sem hafa ekki verið gerð opin­ber.

Þar sagði meðal ann­ars að „ýmis helstu gögn máls­ins sem skipta máli varð­andi þá spurn­ingu eru ekki opin­ber, eins og t.d. end­­ur­­send­ing­­ar­bréf sér­­staks sak­­sókn­­ara. Þá gæti það a.m.k. af sumum verið túlkað sem verið væri að halda því fram að Sam­herji væri sekur hvað sem nið­­ur­­stöðum dóm­stóla líð­­ur. Það hefur reyndar þegar verið gert af hálfu tals­­manna Sam­herja þegar ég eftir að dóm­­ur­inn féll tjáði mig í fjöl­miðlum til að útskýra mun­inn á þeirri spurn­ingu hvort Sam­herji sé sekur og þeirri hvort aðgerðir Seðla­­bank­ans hafi verið til­­hæfu­­laus­­ar. Fari Sam­herji hins vegar í skaða­­bóta­­mál verður ekki undan þess­­ari umræðu vik­ist og að a.m.k. ein­hver máls­skjöl yrðu lögð fyrir dóm­inn og yrðu í þeim skiln­ingi opin­ber. Ég hefði reyndar ekk­ert á móti því að öll gögn máls­ins yrðu gerð opin­ber.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið undanfarið ár