Allt brjálað á þingi vegna ummæla Sigmundar Davíðs um trúnaðarbrest stjórnarandstöðu

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra segir að full­trúum flokk­anna hafi verið haldið upp­lýstum um gang mála varð­andi vinnu við afnám hafta í gegnum póli­tísku sam­ráðs­nefnd, en að trún­að­ar­brestur hafi orðið eftir fund sam­ráðs­nefnd­ar­innar í des­em­ber og í kjöl­farið hafi upp­lýs­inga­gjöf verið breytt. Ummæli for­sæt­is­ráð­herra vöktu mikla reiði stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna á Alþingi í dag.

Bæði Guð­mundur Stein­gríms­son, for­maður Bjartrar fram­tíðar, og Birgitta Jóns­dóttir, leið­togi Pírata, spurðu Sigmund Davíð um sam­ráðs­nefnd um losun fjár­magns­hafta í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma í þing­inu í dag.

Guð­mundur sagði að hug­myndir um stöð­ug­leika­skatt, sem Sig­mundur Davíð sagði frá á lands­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefðu komið honum á óvart þar sem hann hefði staðið í þeirri mein­ingu að enn væru mörg álita­mál uppi. Hann spurði því hvort búið væri að ákveða stöð­ug­leika­skatt og úti­loka aðra kosti. Sig­mundur sagði svo vera, en þetta taldi Guð­mundur „fyndið“ þar sem sam­ráðs­nefnd stjórn­mála­flokk­anna um afnám hafta eigi að funda á föstu­dag­inn og þar hafi átt að funda með sér­fræð­ingum til að fara yfir stór álita­mál tengd þess­ari leið. Það væri fyndið að fara í sam­ráð ef búið væri að ákveða leið­ina. Birgitta spurði Sigmund Davíð einnig um afnám hafta og sagði það skringi­legt að ekki væri búið að boða for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokk­anna á fund til þess að fara yfir málin.

Sig­mundur Davíð sagði að full­trúum flokka hafi verið haldið upp­lýstum í gegnum sam­ráðs­nefnd­ina. „Hins vegar dreg ég enga dul á það að það setti tölu­vert strik í reikn­ing­inn þegar að eftir einn slíkan fund var farið að dreifa upp­lýs­ingum til fjöl­miðla og farið í við­töl jafn­vel til þess að lýsa því sem gerð­ist á þessum fundi og í raun og veru dregin upp á margan hátt röng mynd af því. Það varð til þess að menn hlutu að end­ur­skoða hvernig upp­lýs­inga­gjöf á þessum fundum væri háttað,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Birgitta benti þá á að sam­ráðs­nefnd væri bundin trún­aði og hefði ekki fundað neitt frá því að stórar yfir­lýs­ingar um stöð­ug­leika­skatt voru settar fram á lands­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sig­mundur kom þá aftur í ræðu­stól og end­ur­tók orð sín um að upp­lýs­ingar hefðu lekið út af fund­inum. Í lok ræðu sinnar sagði Sig­mundur svo: „Hér sé ég að hátt­virtur þing­maður Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, biður um að ræða fund­ar­stjórn for­seta og það kemur mér ekki á óvart í þessu til­viki.“

Fullkomnlega ósæmileg framganga forsætisráðherra


Ummælin vöktu mikla reiði stjórn­ar­and­stöðu­þing­manna sem komu svo upp hver af öðrum til að ræða þetta. Stein­grímur J. Sig­fús­son gagn­rýndi Sigmund harð­lega og sagði hann nán­ast segja berum orðum að Árni Páll hefði gerst sekur um trún­að­ar­brot. „Þetta er full­komn­lega ósæmi­leg fram­ganga af hálfu hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra, og röng.“

Hann sagði stjórn­ar­and­stöð­una, og Árna Pál sér­stak­lega, bor­inn röngum sökum „á lág­kúru­legan hátt. Hið rétta er að dag­ana fyrir nefndan sam­ráðs­fund í byrjun des­em­ber voru að birt­ast upp­lýs­ingar aðal­lega í Morg­un­blað­inu um meðal ann­ars að til stæði að leggja á 35 til 40 pró­senta útgöngu­skatt og þar fram eftir göt­unum. Það komu engar nýjar upp­lýs­ingar fram eftir þennan fund, engar. Það er hægt að sanna með því að fara yfir umfjöllun fjöl­miðla dag­anna á undan.“ Stein­grímur segir að tölvu­póstur um mein­tan trún­að­ar­brest hafi verið sendur út „í ein­hverju geð­vonskukasti starfs­manns í fjár­mála­ráðu­neyt­inu.“

Árni Páll kom svo í ræðu­stól og sagði ekki mik­inn manns­brag að því „að bera sakir á nafn­greinda menn og flýja svo úr salnum þegar þeir bera hönd fyrir höfuð sér.“ Rík­is­stjórnin sjálf hefði „lekið skipu­lega hug­myndum um útgöngu­skatt“. Þess vegna hefðu allir fjöl­miðlar vitað um fund­inn og hug­mynd­irnar og hann hefði svarað spurn­ingum um hug­myndir um útgöngu­skatt almennt eftir fund­inn.


Afturendi forsætisráðherra kunnuglegri en framhliðin


Birgitta Jóns­dóttir sagði fram­göngu Sig­mundar til hábor­innar skammar og að hann hefði ekki svarað neinum spurn­ingum þing­manna. Guð­mundur Stein­gríms­son sagði ekki hægt að leka hlutum jafn­vel þótt ein­hver vildi, enda væri alltaf búið að koma málum í fjöl­miðla áður. Eini mað­ur­inn sem hefði í raun brotið trúnað væri Sig­mundur Davíð, með því að segja frá því að búið væri að ákveða stöð­ug­leika­skatt í ræðu á flokks­þingi síns flokks.

Sig­mundur Davíð fór úr þing­sal eftir að óund­ir­búnum fyr­ir­spurnum lauk, og við það voru stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn ósáttir. Fram kom þó að hann væri enn í hús­inu og hlust­aði á umræð­una í máli Vigdísar Hauks­dóttur, þing­manns Fram­sóknar. „Fyrir okkur hátt­virta þing­menn þá er okkur aft­ur­endi hæst­virts for­sæt­is­ráð­herra kunn­ug­legri en fram­hliðin því hann er alltaf á hlaupum hér út úr þessum sal í hvert sinn sem mik­il­væg mál eru tekin til umræðu,“ sagði Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna. Þetta væri ekki í lagi gagn­vart Alþingi, for­sæt­is­ráð­herra leyfði sér að koma með dylgjur og ásak­anir á hendur stjórn­ar­and­stöðu­þing­mönnum. Það væri til einskis að halda áfram að taka þátt í „sýnd­ar­sam­ráði“ þegar hann til­kynni ákvarð­anir sínar á lands­þingum en ekki í sam­ráðs­hópnum eða á Alþingi. Þetta væri vegna þess að hann sýndi þing­inu enga virð­ingu.

Viðbót 17:39: Umræð­unni um málið lauk með annarri ræðu for­sæt­is­ráð­herra, þar sem hann gerði athuga­semd við ummæli Stein­gríms um starfs­mann fjár­mála­ráðu­neyt­is­ins, sem væri for­maður nefnd­ar­innar sem um ræðir. Það er Tómas Brynj­ólfs­son, skrif­stofu­stjóri í ráðu­neyt­inu. Sig­mundur sagði að hann hafi gert full­trúum nefnd­ar­innar grein fyrir því að í ljósi leka upp­lýs­inga úr nefnd­inni væri ekki til­efni til að halda aðra fundi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár