Hafa sparað um 5 milljarða með Hvalfjarðargöngum

Áætlaður sparn­aður rík­is­ins af minni snjó­mokstri, við­haldi vega og vega fram­kvæmdum í Hval­firði eftir opnun Hval­fjarð­ar­ganga, sem og sparn­aður af því að hætta sigl­ingum Akra­borgar, gæti verið tæp­lega 5 millj­arðar.

Áætlaður sparn­aður rík­is­ins af minni snjó­mokstri, við­haldi vega og vega fram­kvæmdum í Hval­firði eftir opnun Hval­fjarð­ar­ganga, sem og sparn­aður af því að hætta sigl­ingum Akra­borgar, eru rúm­lega 4,5 millj­arðar sam­kvæmt svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar sam­göngu og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra við fyr­ir­spurn þessa efnis. Halla Signý Krist­jáns­dóttir þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­vest­ur­kjör­dæmi spurði ráð­herra um sparn­að­inn.

Í svari ráð­herra kemur fram að snjó­mokst­urs­relgum fyrir Hval­fjarð­ar­veg hafi lítið breyst með til­komu gang­anna. Enn séu ákveðnir kaflar mok­aðir og hálku­varðir alla daga vik­unnar. Þjón­ustu­stigið sé hins vegar heldur lægra en það væri ef öll umferð færi um Hval­fjörð­inn.

Farið er yfir hvernig umferð um veg­inn hefði þró­ast ef göngin hefðu ekki komið til. Lík­leg­ast er að ef svo hefði verið hefði veg­ur­inn verið þjón­u­staður sam­kvæmt þjón­ustu­flokki 2 síð­ustu 20 árin, sem hefði þýtt útgjöld sem næmi um 80 millj­ónum króna á núvirði. Hefði veg­ur­inn verið í þjón­ustu­flokki 1 hefði verið um að ræða 480 millj­óna sparnað að ræða á þessum 20 árum.

Fram kemur að erfitt sé að meta með öruggum hætti hversu miklu fé hefði þurft að verja til við­halds veg­ar­ins ef Hval­fjarð­ar­ganga hefði ekki notið við. Áætla megi að umferð um Hval­fjörð hefði vart vaxið í sam­ræmi við þau gögn sem miðað er við, þar sem umferð um Hval­fjarð­ar­botn sem og göngin eru tekin saman, en var­færið mat gæti verið 3.000 til 4.500 bílar á dag. Hefði það orðið raunin sé nokkuð víst að nauð­syn­legt hefði verið að styrkja og breikka að minnsta kosti helm­ing veg­ar­ins og eins hefði þurft að end­ur­nýja slit­lag minnst þrisvar sinnum oftar en raunin varð síð­ast­liðin tíu ár. Þetta gæti hafa kostað á verð­lagi dags­ins í dag á milli 1.200 og 2.000 millj­ónir króna.

Þá var árlegur kostn­aður Vega­gerð­ar­innar vegna Akra­borgar síð­ustu árin sem hún var í rekstri um 41 milljón á verð­lagi árs­ins 1997, þar af 23 millj­ónir vegna stofn­kostn­aðar, það er afborg­anir af lánum og 18 millj­ónir í rekstr­ar­styrk. Fram­reiknað með bygg­ing­ar­vísi­tölu jafn­gildir það 70 millj­óna króna stofn­styrk og 55 millj­óna króna rekstr­ar­styrk eða alls 125 millj­ónir á verð­lagi 2018. Á 20 árum gera það 2,5 millj­arða.

Alls hefði sparn­að­ur­inn því minnst verið 3.780 millj­ónir á þessum 20 árum en mest 4.980 millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár