Íslensk kvikmyndatökukona fær heiðursverðlaun Þýsku kvikmyndaverðlaunanna

Birgit Guð­jóns­dóttir hefur verið verð­launuð fyrir fram­úr­skar­andi störf á ferli sínum.

Birgit Guðjónsdóttir að störfum.
Birgit Guð­jóns­dóttir að störfum. Mynd: Aðsend mynd

Tilkynnt hefur verið að íslenska kvik­mynda­töku­konan Birgit Guð­jóns­dóttir hljóti heið­ursverð­laun Þýsku kvik­mynda­verð­laun­anna (Deutsche Kamer­a­preis) í ár, en þau eru veitt fyrir fram­úr­skar­andi feril við­kom­andi lista­manns.

Í umsögn dóm­nefndar um störf Birgit segir að öll verk sem hún hefur feng­ist við beri merki næmni hennar og inn­sæi og sé sama hvort hún fáist við leiknar myndir eða heim­ilda­myndir fyrir sjón­varp eða bíó­hús. „Henni fellur vel að takast á við alvöru­mál sem hún gæðir til­finn­ingum og stemmn­ingu,“ segir þar einnig og að það sé ekki síst glöggt auga hennar fyrir mynd­bygg­ingu sem geri þetta að verkum. „Töfrar hennar liggja ekki bara í því að taka fal­legar myndir heldur að skapa hár­fína blöndu augna­blika, afstöðu, sjón­ar­horna og hreyf­ingar mynda­vél­ar­innar,“ bætir dóm­nefndin við og klykkir út með því að full­yrða að myndir hennar búi yfir „innri krafti“ sem hvetji áhorf­endur til umhugs­unar.

Birgit fædd­ist á Íslandi árið 1962 og er íslenskur rík­is­borg­ari. Móðir hennar var aust­ur­rísk og Birgit sótti sér menntun í Vín­ar­borg, gekk þar í lista­skóla og lærði ljós­myndun. Fjár­hagur hennar réð ekki við að fjár­magna kvik­mynda­nám eins og hana dreymdi um en að námi loknu gerð­ist hún sjálf­boða­liði í kvik­mynda­gerð og komst þannig inn í fagið.

Hún hefur búið og starfað í Berlín mörg und­an­farin ár þótt starfið leiði hana víða. Á Íslandi hefur hún einnig starfað og hefur henni tek­ist að sam­eina starf sitt og áhuga á íslenska hest­inum, en hún hefur farið í fjölda hesta­ferða um land allt og alltaf með mynda­vél­ina nær­hendis.

Heið­ursverð­launin eru ekki eina við­ur­kenn­ingin sem Birgit hefur hlotn­ast á ferl­inum. Kvik­myndin Our Grand Despair sem hún gerði með tyrk­neska leik­stjór­anum Seyfi Teoman var til­nefnd á Berl­inale hát­ið­inni og Birgit fékk verð­laun fyrir kvik­mynda­tök­una á kvik­mynda­há­tíð­inni í Istanbul árið 2011. Hún hefur unnið mikið með leik­stjór­anum Connie Walther og eitt af verk­efnum þeirra, sjón­varps­myndin Zappelphilipp, var til­nefnt til Þýsku kvik­mynda­verð­laun­anna fyrir bestu mynd og kvik­mynda­töku í þýsku sjón­varpi árið 2013, auk þess sem myndin fekk gull­verð­laun á hát­ið­inni Fipa D´Or í Biarritz. Sama ár fékk hún verð­laun alþjóða­sam­taka kvenna í kvik­myndum og sjón­varpi (WIFTS) sem kvik­mynda­töku­kona árs­ins.

Birgit hefur á ferli sínum tekið þátt í gerð fjöl­margra mynda fyrir bíó og sjón­varp og hún er önnum kafin mann­eskja. Auk þessa að sinna kvik­mynda­gerð hefur hún um ára­bil kennt við kvik­mynda­há­skóla í Baden-Württemberg og Babels­berg. Hún er félagi í Þýsku og Evrópsku kvik­mynda­aka­dem­í­unni og tók frum­kvæði að stofnun sam­taka þýsku­mæl­andi kvik­mynda­töku­kvenna, CInematographinnen – Women Cinematographers Network, en í þeim eru konur frá Aust­ur­ríki og Sviss, auk Þýska­lands.

Þýsku kvik­mynda­verð­launin verða afhent við hátíð­lega athöfn í húsa­kynnum sjón­varps­stöðv­ar­innar WDR í Köln 7. júlí næst­kom­andi. Þetta er í 28. skipti sem þau eru afhent og Birgit er þriðja konan sem hlýtur heið­ursverð­launin. Alls eru veitt verð­laun í 26 flokkum, auk heið­ursverð­laun­anna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár