Salamöndrurnar á Amager Fælled

Ekki sér fyrir end­ann á ára­löngum deilum um land­skika á Amager þar sem ætl­unin er að byggja tæp­lega þrjú þús­und íbúðir. Árs­gam­alt bygg­inga­leyfi er í upp­námi eftir nýjan dóms­úr­skurð. Helsta ástæða deiln­anna er smá­vax­inn mál­leys­ingi.

Dulúðug dalalæða liggur yfir Amager Fælled. Undir henni býr fjöldi dýra, m.a. sérstök salamandra.
Dulúðug dala­læða liggur yfir Amager Fælled. Undir henni býr fjöldi dýra, m.a. sér­stök salamandra. Mynd: Af vef Náttúruverndarsamtaka Danmerkur

Árið 1994 sam­þykkti borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar að selja hluta svæðis á norð­vest­ur­hluta Amager. Umrætt svæði, tæp­lega 19 hekt­arar að stærð og kallað Strand­engen, er skammt norðan við sýn­inga­höll­ina Bella Center. Á Strand­engen voru engar bygg­ingar, en við vest­ur­enda hins fyr­ir­hug­aða bygg­inga­svæðis hafði um ára­bil staðið far­fugla­heim­ili. Bygg­inga­lóðir í nágrenni mið­borgar Kaup­manna­hafnar hafa í ára­tugi verið tak­mark­aðar og í þeim fólgin mikil verð­mæti. Þegar ákveðið var að selja hluta Strand­engen var jafn­framt ákveðið að pen­ing­arnir sem fengjust fyrir svæðið yrðu not­aðir í upp­bygg­ingu Metro lesta­kerf­is­ins sem þá var í und­ir­bún­ingi. Þótt ákvörðun um söl­una hefði verið sam­þykkt árið 1994, eins og áður sagði, var þess langt að bíða að svæðið yrði selt og fram­kvæmdir gætu haf­ist.

[adspot]

Tugþúsundir mótmæltu

Árið 2015 greindu danskir fjöl­miðlar frá því að nú liði brátt að því að fram­kvæmdir á Strand­engen svæð­inu gætu haf­ist. Fyrsta skrefið yrði sala lands­ins. Þessar fyr­ir­ætl­anir fóru ekki fram­hjá and­stæð­ingum þess­ara fyr­ir­hug­uðu fram­kvæmda. Efnt var til mót­mæla­funda og tæp­lega 30 þús­und manns mót­mæltu með und­ir­skriftum. Dönsk nátt­úru­vernd­ar­sam­tök og stjórn sædýra­safns­ins Den Blå Planet lýstu and­stöðu við áætl­anir stjórn­valda. Óspillt mörg þús­und ára gam­alt land­svæði, þar sem fjöl­breytt og við­kvæmt dýra­líf þrif­ist, yrði eyði­lagt. Sér­stak­lega lýstu and­stæð­ingar bygg­inga­fram­kvæmd­anna áhyggjum af til­tek­inni teg­und froska, svo­nefndri Stóru Sala­möndru, sem er alfriðuð. Þær áttu eftir að koma aftur við sögu síðar. Full­trúar Sós­íal­íska Þjóð­ar­flokks­ins í borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar lögðu til að hætt yrði við fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir á Strand­engen og leitað að öðru svæði. Sú til­laga var felld.

Klofningur og yfirborgarstjóri vill finna nýtt svæði


Skömmu fyrir bæjar- og sveita­stjórn­ar­kosn­ing­arnar árið 2017 lýstu nokkrir borg­ar­full­trúar því yfir að þeir styddu ekki lengur áætl­anir um bygg­inga­svæðið á Strand­engen. Frank Jensen yfir­borg­ar­stjóri til­kynnti að hann hefði skipt um skoðun og hefði í huga annað svæði.
Umrætt svæði er um það bil hálfum kíló­metra vestan við Strand­engen, kallað Lær­kesletten. Á þessu svæði stóð þá áður­nefnt far­fugla­heim­ili Dan­hostel Amager. Þessi hug­mynd varð að til­lögu sem sam­þykkt var í borg­ar­stjórn Kaup­manna­hafnar í sept­em­ber 2018. Friðun á svæð­inu var í fram­hald­inu aflétt og óljóst um fram­tíð far­fugla­heim­il­is­ins en þar var gisti­pláss fyrir 560 manns.

Andstæðingar mótmæla og grípa til aðgerða


Í jan­úar og febr­úar árið 2021 voru bygg­ing­ar­á­formin að kom­ast á skrið en and­stæð­ingar höfðu ekki lagt árar í bát. 4. febr­úar lagði Borg­ar­ráð Kaup­manna­hafnar (þar sitja 55) blessun sína yfir sam­þykktir borg­ar­stjórn­ar­innar. And­stæð­ingar kröfð­ust þess að almennir borg­arar fengju að kjósa um fyr­ir­hug­aðar fram­kvæmdir, því var hafnað.


25. febr­úar til­kynnti fyr­ir­tækið By & Havn (sem er þró­unar- og rekstr­ar­fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar) að fram­kvæmdir væru að hefj­ast. Fyrsta skref væri að und­ir­búa svæðið, gera það bygg­ing­ar­hæft, eins og kom­ist var að orði. Meðal ann­ars að rífa far­fugla­heim­ilið. Fyrsta skrefið væri að girða svæðið af. And­stæð­ingar reyndu að koma í veg fyrir að vinnu­vélar kæmust á stað­inn en verkið hófst eigi að síður.
Hálfum mán­uði síðar sendu dönsku nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin inn form­lega kvörtun og lögðu áherslu á að fram­kvæmd­irnar stríddu gegn nátt­úru­vernd­ar­til­skipun Evr­ópu­sam­bands­ins, einkum með til­liti til Stóru Sala­möndrunnar (sem þrátt fyrir nafnið verður lengst 16 cm) og er ásamt fleiri froska­teg­undum nefnd sér­stak­lega í til­skip­un­inni.
Allt kom þó fyrir ekki, vinnu­vél­arnar snér­ust áfram. Fyrst um sinn.

Urðu að leggja fram tryggingu


And­stæð­ingar bygg­inga­fram­kvæmd­anna og sam­tökin Vinir Amager Fælled höfðu ekki gef­ist upp og kærðu nú fram­kvæmd­irnar til dóm­stóla. Kærend­urnir urðu að leggja fram trygg­ingu, tvær millj­ónir danskra króna (40 millj­ónir íslenskar) til að mæta hugs­an­legu tjóni By & Havn áður en til þess kæmi að dóm­stóll­inn (Bæj­ar­rétt­ur­inn í Kaup­manna­höfn) tæki afstöðu til kærunnar, sem var þess vegna vísað frá. Nokkurn tíma tók að skrapa saman pen­ingum fyrir trygg­ing­unni en í milli­tíð­inni héldu und­ir­bún­ings­fram­kvæmdir á svæð­inu áfram.
Í byrjun febr­úar á þessu ári kærðu and­stæð­ingar fram­kvæmd­irnar til dóm­stóla, öðru sinni. Og lögðu fram trygg­ing­una áður­nefndu. Svo leið og beið.

[adspot]

12. desember 2022


Bæj­ar­réttur Kaup­manna­hafnar til­kynnti sl. mánu­dag, 12. des­em­ber, að allar bygg­inga­fram­kvæmdir á Lær­kesletten (fyr­ir­hug­uðu bygg­inga­svæði) skyldu sam­stundis stöðv­aðar. Bannið er algjört og vinnu­vélar og önnur tæki sem voru á svæð­inu skyldu fjar­lægð og fram­kvæmda­bannið gildir þangað til dómur fellur í Bæj­ar­rétt­inum. Gert er ráð fyrir dóms­upp­kvaðn­ingu í maí 2023. Knud Erik Hansen, tals­maður sam­tak­anna Amager Fælleds Venner, sagð­ist þess full­viss að ár og dagar myndu líða þangað til þetta mál yrði til lykta leitt.


Stóru sala­möndr­urnar og aðrar froska­teg­undir á Amager Fælled fá því að vera í friði fyrir vinnu­vél­unum, enn um sinn að minnsta kosti.
Stórar sala­möndrur geta orðið 16 ára gamlar, þær liggja í dvala yfir vetr­ar­tím­ann. Kven­dýrið verpir einu sinni á ári, tvö til fjögur hund­ruð eggjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

byggingarframkvæmdir

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár