„Ríkari kröfur“ gerðar til stjórnarmanna í stórum lífeyrissjóðum en minni

Fjár­mála­eft­ir­litið gerir „rík­ari kröfur“ til þekk­ingar stjórn­ar­manna í stórum líf­eyr­is­sjóðum en minni og því er lík­legra er að þeir sem taka sæti í stjórnum stórra sjóða séu kall­aðir inn í munn­legt hæf­is­mat af hálfu FME. Það er þó metið hverju sinni.

Þegar nýir stjórnarmenn taka sæti í lífeyrissjóðum þurfa þeir að standast hæfismat FME. Sumir eru teknir í munnlegt hæfismat, en ekki allir.
Þegar nýir stjórn­ar­menn taka sæti í líf­eyr­is­sjóðum þurfa þeir að stand­ast hæf­is­mat FME. Sumir eru teknir í munn­legt hæf­is­mat, en ekki allir. Mynd: 123rf.com

Þegar nýir ein­stak­lingar taka sæti í stjórnum íslenskra líf­eyr­is­sjóða er hæfi þeirra til þess að gegna stjórn­ar­stör­f­unum alltaf metið sér­stak­lega af Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands (FME). Misjafnt er hvernig það hæf­is­mat fer fram og helg­ast það meðal ann­ars af stærð og umfangi sjóða hvort stjórn­ar­menn eru látnir und­ir­gang­ast munn­legt hæf­is­mat.

„Ríkari kröfur“ eru gerðar til þekk­ingar stjórn­ar­manna í stærri sjóðum en þeirra sem smærri eru, sam­kvæmt svörum FME við fyr­ir­spurn Kjarnans um fram­kvæmd hæf­is­mats­ins.

Það sem af er ári hefur 21 nýr stjórn­ar­maður tekið sæti hjá íslenskum líf­eyr­is­sjóðum, en ein­ungis sjö þeirra hafa verið teknir í munn­legt hæf­is­mat. Aðrar leiðir hafa verið not­aðar til þess að meta hæfi tíu og hæf­is­mat fjög­urra til við­bótar er í vinnslu þessa dag­ana, sam­kvæmt svari FME.

„Stjórn­ar­menn senda inn viða­miklar upp­lýs­ingar, þ.á m. um menntun, þekk­ingu og reynslu þeirra, auk ítar­legs rök­stuðn­ings um hæfi þeirra til til­tek­innar stjórn­ar­setu. Munnlegt hæf­is­mat er ein­ungis einn þáttur til að meta þekk­ingu við­kom­andi. Ef upp koma efa­semdir um hæfi við­kom­andi stjórn­ar­manna eftir yfir­ferð á inn­sendum gögnum er við­kom­andi ávallt boð­aður í við­tal þar sem þekk­ing hans er könnuð,“ segir í svari FME.

Kjarninn spurði hvað réði því hverjir væru teknir í munn­legt við­tal og hverjir ekki og fékk þau svör frá FME að litið væri til reglna um fram­kvæmd hæf­is­mats fram­kvæmda­stjóra og stjórn­ar­manna fjár­mála­fyr­ir­tækja.

Samkvæmt þeim reglum á FME sjálft að meta hvort stjórn­ar­menn eigi að gang­ast undir munn­legt mat. Við það mat skal, sam­kvæmt regl­unum, meðal ann­ars horft til teg­undar, stærðar og umfangs rekst­urs­ins og þess hvort vafi sé á að við­kom­andi upp­fylli skil­yrði laga um fjár­mála­fyr­ir­tæki, um nægi­lega þekk­ingu og reynslu til að geta gegnt stöðu sinni á til­hlýði­legan hátt.

FME seg­ist í svari sínu ávallt hafa boðað stjórn­ar­menn ákveð­inna eft­ir­lits­skyldra aðila til við­tals, en með hlið­sjón af for­gangs­röðun bank­ans við úthlutun fjár­muna hefur við mat á hvaða aðilar eru ávallt boð­aðir til við­tals meðal ann­ars verið litið til stærðar og umfangs þeirra og að „gerðar [séu] rík­ari kröfur til þekk­ingar eftir því sem stærð og umfang rekst­urs eft­ir­lits­skyldra aðila er meiri.“

„Helgast það við­mið af ýmsum sjón­ar­miðum m.a. ríkri ábyrgð stjórn­ar­manna, mögu­lega fleiri og/eða flókn­ari verk­efnum eftir stærð og umfangi og hugs­an­leg áhrif eft­ir­lit­skylds aðila á fjár­mála­stöð­ug­leika,“ segir í svari FME.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár