Segir grafið undan trúverðugleika fjölmiðla

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, segir þing­menn þurfa að gæta sér­stak­lega að orðum sínum þegar komi að fjöl­miðlum. Brynjar Níelsson kollegi hans sagði íslenska fjöl­miðla veikasta hlekk­inn í íslensku sam­fé­lagi í gær.

Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi blaða­maður, svarar á Facebook síðu sinni gagn­rýni Brynjars Níels­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins og kollega hans í rík­is­stjórn­ar­flokk­unum, á fjöl­miðla. Brynjar sagði í gær að íslenskir fjöl­miðlar séu veikasti hlekk­ur­inn í íslensku sam­fé­lagi, stundi meiri póli­tík en stjórn­mála­menn og eigi heima í rusl­flokki. Kolbeinn nefnir Brynjar ekki beint eða skrif hans, en hug­leið­ingum Kolbeins er aug­ljós­lega beint að gagn­rýni Brynjars frá því gær.

[links]Kolbeinn rifjar upp störf sín í blaða­mennsku, þar sem hann seg­ist hafa mátt sitja undri alls kyns upp­nefnum, frá eig­endum, þing­mönnum og ráð­herrum meðal ann­arra.

„Þegar ég ræddi þetta við fólk, til­greindi mig og ýmsa félaga á rit­stjórn­inni – ertu að tala um mig, þennan, þessa? – þá fjar­aði þetta gjarnan út. Fyrir mörgum varð rit­stjórnin nefni­lega ein­hvers konar líf­ræn heild sem hægt var að finna allt til for­áttu, en þegar bent var á að hún væri sam­safn ein­stak­linga fannst mér oft lítið verða úr þessu. Því eitt er að gagn­rýna mig sem blaða­mann, annað að heim­færa það á heila rit­stjórn, hvað þá fjöl­miðla í heild,“ segir Kolbeinn.

Hann seg­ist ekki hafa verið óskeik­ull blaða­maður, gert mis­tök eða villur sem hann hafi þá leið­rétt. En sú gagn­rýni sem hann vísi til hafi ekki snú­ist um stað­reynd­ar­villur eða mis­tök. Fólki hafi mis­líkað að hann hefði skrifað um eitt­hvað eða hvernig hann gerði það, án þess að hægt væri að benda á villur.

„Nú er ég þing­maður. Oft sé ég eitt­hvað í fjöl­miðlum sem ég er ósam­mála og stundum mis­ferst eitt­hvað í fréttum. Það er eðli­legt. Að taka það sem eitt­hvað dæmi um ástand fjöl­miðla almennt er ekki bara galið, það er bein­línis hættu­legt. Þetta höfum við séð æ oftar und­an­farin ár, því miður. Heilu fjöl­miðl­arnir eru sagðir svona eða hinsegin, grafið er undan trú­verð­ug­leika þeirra, og svo fjöl­miðlar í heild sinni tal­aðir niður,“ skrifar Kolbeinn og bætir við: „Þingmenn bera mikla ábyrgð og ættu að mínu mati að huga oftar að þeirri ábyrgð. Við erum hluti af því kerfi lýð­ræðis sem ríkir á Íslandi og það eru fjöl­miðlar líka. Þess vegna verða þing­menn að gæta sér­stak­lega að orðum sínum þegar að fjöl­miðlum kemur. (Raunar finnst mér að við mættum öll gæta oftar að orðum okkar.) Fjöl­miðlar eru ekki hafnir yfir gagn­rýni, en sú gagn­rýni skal þá vera rök­studd með dæmum – ekki sleggju­dómar. Því með þeim er sleggjan reidd til höggs að lýð­ræð­is­legu hlut­verki fjöl­miðla, sem er einmitt að veita okkur þing­mönnum og stjórn­völdum aðhald.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár