Engar áreiðanlegar tölur til um fjölda einstaklinga með heilabilun

Heila­bil­un­ar­sjúk­dómar eru mjög algengir á Íslandi en engar áreið­an­legar tölur eru til um fjölda þeirra ein­stak­linga sem greinst hafa með heila­bilun. Tólf þing­menn kalla eftir því að land­lækni sé skylt að halda sér­staka skrá um sjúk­dóm­inn.

Tólf þing­menn úr öllum þing­flokknum nema Mið­flokknum hafa lagt fram frum­varp þess efnis að heila­bil­un­ar­sjúk­dómum verði bætt við þann lista sem emb­ætti land­læknis er skylt að halda sér­stakar skrár um. Í grein­ar­gerð frum­varps­ins segir að engar áreið­an­legar tölur séu til um fjölda ein­stak­linga með slíka sjúk­dóma á Íslandi en að talið sé lík­legt að 3 til 4 þús­und manns séu með alzheimer- sjúk­dóm­inn. 

Vilja að landlæknir fylgist með heilabilunum sérstaklega

Í lögum um land­lækni og lýð­heilsu er sér­stak­lega fjallað um skrán­ing­ar­skyldu nokk­urra sjúk­dóma og sjúk­dóma­flokka, þar með talið syk­ur­sýki, hjarta- og æða­sjúk­dóma og tauga­sjúk­dóma. Slík skrán­ing er meðal ann­ars gerð til að auð­velda áætl­ana­gerð og meta þróun heilsu­fars og árangur þeirra inn­gripa sem við­höfð eru hverju sinni.

Nú hafa tólf þing­menn þvert á flokka lagt fram frum­varp í annað sinn um að heila­bil­un­ar­sjúk­dómum verði bætt á þann lista sem land­læknir er skylt að halda sér­stakrar skrár um. Með því telja þing­menn­irnir að ýta mætti undir að þeir sem greina heila­bil­anir í heil­brigð­is­geir­anum geri gang­skör að því að skrá og fylgj­ast með þessum sjúk­dómi sér­stak­lega. 

Talið að 1,5 prósent þjóðarinnar þjáist af heilabilunarsjúkdómum

Heila­bil­un­ar­sjúk­dómar eru marg­vís­legir þó að sá sjúk­dómur sem oft­ast er nefndur alzheimersjúkdómur sé algengastur þá er um að ræða marga aðra sjúk­dóma og vitað er um tugi sjúk­dóma sem geta leitt til heila­bil­unar.

Engar áreið­an­legar tölur eru hins vegar til um fjölda ein­stak­linga með slíka sjúk­dóma á Íslandi en talið er að um 300 Íslend­ingar grein­ist með heila­bilun og að á hverjum tíma sé um 1,5 til 2 pró­sent þjóð­ar­innar með sem þjá­ist af þessum sjúk­dómum og um fimm pró­sent þeirra sem eldri eru í dag.

Í grein­ar­gerð­inni segir að heila­bil­anir séu oft­ast taldar ólækn­an­legir sjúk­dómar en eigi að síður er mik­ils­vert að greina sjúk­ling­ana og bjóða þeim með­ferð. Slík með­ferð getur verið í formi stuðn­ings við sjúk­linga og fjöl­skyldur, hvíld­ar­inn­lagnir þegar við á og einnig lyfja­með­ferð til að stemma stigu við ein­kennum sjúk­dómanna.

Skráningu þarf til að gera áreiðanlegar áætlanir

Mjög stór hluti þeirra sem búa á hjúkr­un­ar­heim­ilum býr við heila­bilun eða á bil­inni 50 til 70 pró­sent þeirra. Í grein­ar­gerð­inni segir því að bein fjár­út­lát hins opin­bera vegna heila­bil­ana sé því umtals­verð í formi hjúkr­un­ar­rýma, dagdvala og hvíld­ar­inn­lagna. Þá sé tal­inn beinn kostn­aður sjúk­ling­anna og fjöl­skyldna þeirra sem til­kom­inn er vegna veik­ind­anna og þeirra félags­legu erf­ið­leika sem af hljót­ast innan fjöl­skyldna vegna lang­vinnra veik­inda.

Þing­menn­irnir telja að til þess að gera áreið­an­legar áætl­anir um heila­bil­un­ar­sjúk­dóma þurfi skrán­ingin að vera nákvæm og því sé best að slíkt verk­efni falli undir emb­ætti land­læknis.

Engin stefnumótun í málefnum einstaklinga með heilabilun

Steinunn Þórð­ar­dóttir, sér­fræð­ingur í öldr­un­ar­lækn­ingum á Land­spít­al­anum, skrif­aði grein um Alzheimer-sjúk­dóm­inn í Lækna­blaðið í fyrra og er sú grein látin fylgja með frum­varp­inu. Í grein Stein­unnar kemur fram að enn hafi engin stefna verið mótuð í mál­efnum ein­stak­linga með heila­bilun hér­lendis og hvað þá um beinan og óbeinan kostnað.

Hún segir að þrátt að við­búið sé að ein­stak­lingum með heila­bilun muni fjölga til muna á næstu árum, en fjöldi þeirra sem þjást af Alzheimer-sjúk­dómi tvö­fald­ist á um 20 ára fresti, þá bóli enn ekk­ert á auknum úrræðum á fyrir þennan hóp.

Hún segir að nú þegar gætir mik­ils úrræð­is­leysis í mála­flokknum sem valdi sjúk­lingum með heila­bil­un­ar­sjúk­dóma og aðstand­endum þeirra „ómældum þján­ingum“. Þegar greinin er skrifuð voru 200 ein­stak­lingar á bið eftir sér­hæfðri dag­þjálfun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og að þeir geti átt von á að þurfa að bíða í allt að tvö ár. Auk þess segir hún að biðin eftir hjúkr­un­ar­rými sé einnig óhóf­lega löng og valdi því að margir sjúk­lingar með heila­bilun hrek­ist á milli mis­mun­andi deilda innan Land­spít­ala mán­uðum saman.

„Stefnu­mótun og kort­lagn­ing á mála­flokknum, þarfa­grein­ing, fjár­magn til rann­sókna og almenn og víð­tæk lýð­heilsu­í­hlutun til for­varna eru verk­efni sem þarf að ráð­ast í ekki síðar en í dag. Við þurfum að taka slag­inn núna. Málefnið snertir okkur öll,“ skrifar Steinunn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár