Píratar með bestu loftslagsstefnuna

Píratar skora hæst í úttekt lofts­lags­bloggs­ins Loftslag.is. Sjálf­stæð­is­flokki vantar lítið til þess að ná próf­inu. Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins skil­uðu ekki svörum.

Stefnumál Pírata eru loftslagsvænust að mati Loftslag.is.
Stefnu­mál Pírata eru lofts­lagsvæn­ust að mati Loftslag.is. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Áherslur Pírata fá hæstu ein­kunn í úttekt lofts­lags­bloggs­ins Loftslag.is á stefnu allra stjórn­mála­flokka sem bjóða fram í Alþing­is­kosn­ing­unum á laug­ar­dag­inn.

Allir flokkar fengu sex spurn­ingar sendar þar sem óskað var eftir útlistun á stefnu og afstöðu flokk­anna á afmörk­uðum sviðum tengdum lofts­lags­málum. Svörin sem metin voru má lesa á lofts­lags­blogg­inu. Allir flokkar svör­uðu spurn­ing­unum nema Mið­flokk­ur­inn og Flokkur fólks­ins. Þeir flokkar fá þess vegna 0 í úttekt­inni.

Niðurstöður úttektar á stefnu framboða í loftslagsmálum

Spurn­ing­arnar sem lagðar voru fyrir fram­boðin voru sex tals­ins. Við úrvinnslu vógu svörin við spurn­ing­unum mis mikið. Spurn­ing­arnar og vægi þeirra voru eft­ir­far­andi:

  • Er flokk­ur­inn með eða á móti olíu­vinnslu á Dreka­svæð­inu? (tvö­falt vægi)
  • Eru tölu- og/eða tíma­sett mark­mið varð­andi sam­drátt í losun CO2? (tvö­falt vægi)
  • Er gert ráð fyrir kolefn­is­gjaldi eða hag­rænum hvötum á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda? (tvö­falt vægi)
  • Tillögur um breyt­ingu inn­viða til að taka á vand­anum. (ein­falt vægi)
  • Tillögur varð­andi end­ur­heimt vot­lendis og skóg­rækt. (tvö­falt vægi)
  • Annað almennt um lofts­lags­mál. (ein­falt vægi)

„Átta flokkar stand­ast prófið eins og staðan er í dag og eru Píratar með metn­að­ar­fyllstu stefn­una miðað við þetta rýni,“ segir á lofts­lags­blogg­inu. Til þess að stand­ast matið þurfti fram­boð að fá að minnsta kosti 5 í ein­kunn. „Lítið vantar upp á að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn stand­ist matið og virð­ist bara lít­il­lega vanta upp á metn­að­inn við að setja skýr­ari mark­mið og aðeins ítar­legri stefnu.“

[adspot]

100 stig í pottinum

„Til að gefa flokk­unum ein­kunn þá not­uðum við kerfi þar sem við mátum þessa 6 mis­mun­andi þætti og gáfum þeim ein­kunn á bil­inu 0-10, en mis­jafnt vægi er á milli þátta. Tveir þættir fá ein­falt vægi (mest 10 stig hver þáttur) og fjórir þættir fá tvö­falt vægi (mest 20 stig hver þáttur) – 100 stig í allt,“ er skrifað á lofts­lags­bloggið.

Aðstand­endur lofts­lags­bloggs­ins lögðu svo mat á hvern þátt og það sem kom fram hjá hverjum flokki. Ein­kunnir voru svo gefnar út frá því.

„Það var mjög ánægju­legt að flestir flokkar svör­uðu og lögðu greini­lega hugsun og vinnu í svörin. Auðvitað verður matið að ein­hverju leyti hug­lægt, en við teljum að þessi nálgun gefi nokkuð gott við­mið varð­andi lofts­lags­stefnur flokk­anna og hvernig þeir standa inn­byrðis.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2017

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár