Markaðsvirðið ríflega tvöfalt meira en eigin féð

Heild­ar­virði skráðra félaga í kaup­höll­inni nemur nú um 45 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu Íslands. Töluvert mikil geng­is­á­hætta er á mark­aðnum, þar sem stærstu félögin gera upp í evrum og Banda­ríkja­dal.

Mark­aðsvirði félaga sem skráð eru á aðal­markað í kaup­höll Íslands nemur nú 949,5 millj­örðum króna. Verð­mætasta félagið er Össur en það er 190 millj­arða virði. Lægsti verð­mið­inn er á Nýherja, minnsta félag­inu í kaup­höll­inni þegar horft er til heild­ar­efna­hags, en mark­aðsvirði þess er 7,5 millj­arðar króna.

Mesta lækk­unin á mark­aðsvirði félags á þessu ári hefur verið hjá Icelandair, en virði þess hefur lækkað um 60 millj­arða frá því í apríl. Virði þess er nú 130 millj­arðar króna.

Marel með mesta eigin féð

Sé horft sér­stak­lega á eigin fjár­stöðu fyr­ir­tækja er Marel með mesta eigið féð, eða 57 millj­arða króna. Næst þar á eftir kemur Össur, með 52,7 millj­arða króna, en Icelandair þar á eftir með 52 millj­arða. Öll þessi fyr­ir­tæki gera upp í erlendri mynt. Össur og Icelandair í Banda­ríkja­dal en Marel í evrum. Gengi krón­unnar gagn­vart þessum helstu við­skipta­myntum heims­ins hefur því umtals­verð áhrif á þau og hvernig mark­aðsvirði þeirra þró­ast í krónum talið.

Á und­an­förnu ári hefur gengi krón­unnar styrkst umtals­vert gagn­vart helstu við­skipta­myntum. Um ára­mótin kost­aði Banda­ríkja­dalur 133 krónur en nú er verð hans 114 krónur. Á sama tíma­bili hefur gengi krón­unnar styrkst nokkuð gagn­vart evr­unni. Um ára­mótin kost­aði evran um 150 krónur en nú er verð hennar 128 krónur.

Sam­an­lagt er eigið fé allra félaga á aðal­mark­aði kaup­hall­ar­innar 426,9 millj­arðar króna. Mark­aðsvirði er því 2,2 sinnum meira en eigin fé fyr­ir­tækj­anna.

Eitt félag í kaup­höll­inni er með meira eigin fé en sem nemur mark­aðsvirði félags­ins, en það er Síminn. Virði þess er 29,8 millj­arðar, miðað við stöð­una í lok dags á föstu­dag, eigið féð er 32,8 millj­arðar.

Nýherji, Hagar og N1

Það fyr­ir­tæki sem er með hæstan verð­miða sé litið til marg­föld­unar eigin fjár, er Nýherji, en mark­aðsvirði þess er 3,9 sinnum eigin fé þess. Virðið er 7,5 millj­arðar en eigin féð 1,9 millj­arðar. Þar á eftir koma Hagar og N1. Virði Haga er 60,9 millj­arðar sem er 3,7 sinnum meira en eigin fé þess, sem er 16,3 millj­arðar. Virði N1 er 29 millj­arðar sem er 3,7 sinnum meira en eigin féð, sem er 7,7 millj­arðar.

Þar á eftir koma Össur og Marel. Mark­aðsvirði Össurar er 3,6 sinnum meira en eigin féð en hjá Marel er það 3,1 sinnum meira.

Líf­eyr­is­sjóð­irnir eru stærstu eig­endur skráðra hluta­bréfa með á bil­inu 40 til 50 pró­sent af mark­aðnum. Sé miðað við heild­ar­virðið, eins og það var við lokun mark­aða á föstu­dag, þá er virði þeirra bréfa 379,8 til 474,7 millj­arðar króna.

Eignir alls líf­eyr­is­kerf­is­ins námu 3.454 millj­örðum króna við árs­lok 2015 eða 157 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu Íslands.

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn Mark­aðsvirði Eigið fé
Síminn 29,8 32,8
EIK 36 23
Reitir 67 46
Grandi 50,7 31,3
Sjóvá 20,1 16,3
N1 29 7,7
TM 17,1 12,1
VÍS 19,2 17,5
Vodafone 13,03 9
Eimskip 58,8 29,1
Reginn 39,4 22,2
Hagar 60,9 16,3
Nýherji 7,5 1,9
Icelandair 130 52
Marel 181 57
Össur 190 52,7
949,53 426,9

(Tölur í millj­örðum króna).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár