Þríeykið fékk fálkaorðuna

Forseti Íslands sæmdi fjórtán manns fálka­orð­unni á Bessa­stöðum í dag.

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands sæmdi í dag, þjóð­há­tíð­ar­dag­inn 17. júní, fjórtán Íslend­inga heið­urs­merki hinnar íslensku fálka­orðu. Á meðal þeirra sem fengu orð­una að þessu sinni voru Alma Möller land­læknir, Þórólfur Guðnason sótt­varn­ar­læknir og Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn.

Þau eru betur þekkt sem þrí­eykið sem stóð í stafni bar­áttu Íslands gegn útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum og urðu fasta­gestir á heim­ilum margra lands­manna á meðan að dag­legir upp­ýs­inga­fundir stóð yfir sam­hliða sam­göngu­banni og öðrum tak­mörk­unum sem gripið var til að þeirra und­ir­lagi, til að hefta útbreiðslu veirunnar.

Á meðal ann­arra sem voru sæmdir fálka­orð­unni í dag voru Hildur Guðna­dóttir, sem hefur sópað að sér stærstu verð­launum í kvik­mynda- og tón­list­ar­heim­inum fyrir tón­list sína í kvik­mynd­inni Joker og sjón­varps­þátt­unum Chernobyl. Þá hlaut Helgi Björns­son, tón­list­ar­maður og leik­ari, einnig orð­una en hann vann sig enn og aftur inn í hjörtu lands­manna á meðan að á sam­komu­bann­inu stóð með kvöld­vökum í sjón­varpi Símans á laug­ar­dags­kvöldum sem köll­uð­ust „Heima með Helga“. 

[adspot]Þá hlaut rit­höf­und­ur­inn Jón Kalman Stef­áns­son fálka­orðu og nafni hans Jón Sig­urðs­son, sem var um tíma ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, einnig.

Þeir sem hlutu fálka­orð­una í dag voru:

  • Alma Möller land­læknir, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu heil­brigð­is­mála og fram­lag í bar­áttu við Covid-19 fara­sótt­ina
  • Anna Dóra Sæþórs­dóttir pró­fessor, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir kennslu og rann­sóknir á vett­vangi ferða­mála­fræði og úti­vistar
  • Bárður Haf­steins­son skipa­verk­fræð­ingur, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til hönn­unar fiski­skipa og íslensks sjáv­ar­út­vegs
  • Einar Bollason fyrr­ver­andi for­maður KKÍ og stofn­andi Íshesta, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íþrótta og störf á vett­vangi ferða­þjón­ustu
  • Ellý Katrín Guð­munds­dóttiur fyrr­ver­andi borg­ar­rit­ari, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf á opin­berum vett­vangi og fram­lag til opin­skárrar umræðu um Alzheimer sjúk­dóm­inn
  • Helgi Björns­son leik­ari og tón­list­ar­maður, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskrar tón­listar og leik­listar
  • Hildur Guðna­dóttir tón­skáld, Berlín, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskrar og alþjóð­legrar tón­listar
  • Hulda Karen Dan­í­els­dóttir kenn­ari og for­maður Þjóð­rækn­is­fé­lags Íslend­inga, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir frum­kvæði á sviði starfs­þró­unar og kennslu íslensku sem ann­ars máls og fram­lag til efl­ingar tengsla við afkom­endur Íslend­inga í Vest­ur­heimi
  • Jón Kalman Stef­áns­son rit­höf­undur, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til íslenskra bók­mennta
  • Jón Sig­urðs­son fyrr­ver­andi rektor, seðla­banka­stjóri og ráð­herra, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir störf í opin­bera þágu
  • Sigrún Þuríður Geirs­dóttir þroska­þjálfi, Mos­fellsbæ, ridd­ara­kross fyrir afrek á sviði sjó­sunds
  • Sig­ur­borg Ingunn Ein­ars­dóttir fyrr­ver­andi hjúkr­un­ar­for­stjóri og ljós­móðir, Eski­firði, ridd­ara­kross fyrir fram­lag til heil­brigð­is­þjón­ustu í heima­byggð
  • Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn, Kópavogi, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu heil­brigð­is­mála og fram­lag í bar­áttu við Covid-19 fara­sótt­ina

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir, Reykja­vík, ridd­ara­kross fyrir störf í þágu heil­brigð­is­mála og fram­lag í bar­áttu við Covid-19 fara­sótt­ina

Fréttin verður upp­færð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár